Víkurfréttir - 13.11.2003, Qupperneq 27
Í síðustu viku skrifuðuKörfuknattleiksdeild ogUngmennaráð UMFN und-
ir samstarfssamning við Bón-
us.Af því tilefni var Jóhannesi
Jónssyni í Bónus boðið að vera
heiðursgestur á heimaleik
Njarðvíkinga gegn KR-ingum
á fimmtudaginn. Skrifað var
undir samninginn áður en leik-
urinn hófst, en að því loknu
heilsaði Jóhannes upp á leik-
menn liðanna. Samningurinn,
sem er til fimm ára, felur í sér
að Bónusmerkið verður á
keppnistreyjum yngri flokka
auk þess sem Bónusgrísinn
mun prýða stigatöfluna í
Íþróttamiðstöðinni. Báðir aðil-
ar lýstu yfir ánægju með
samninginn og horfðu spenntir
til samstarfsins næstu árin.
VÍKURFRÉTTIR I 46. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 13. NÓVEMBER 2003 I 27
■Karfan / 1. deild kvenna
■Knattspyrna / Grindavík
AUGLÝSING UM STARFSLEYFISTILLÖGU
Umhverfisstofnun, stjórnsýslusvið.
Suðurlandsbraut 24,
108 Reykjavík.
ÍS-NJARÐVÍK
Njarðvík tapaði fyrir ÍS í 1. deild
kvenna í körfuknattleik á mánu-
dagskvöld 70-59.
Njarðvíkurstúlkur byrjuðu betur
og höfðu 6 stiga forskot í hálfleik
28-34. Í þriðja leikhluta tóku ÍS-
stúlkur stjórnina og komust 9
stigum yfir. Þær héldu forystunni
til loka og unnu góðan sigur að
lokum og tryggðu sæti sitt á
toppi deildarinnar.
Njarðvík hitti illa úr 2ja stiga
skotum sínum og er auðvelt að
kenna innan við fjórðungs hittni
um tapið auk þess sem ÍS tók
mun fleiri fráköst og vörðu fjölda
skota. Andrea Gaines var hafði
algera yfirburði í Njarðvíkurlið-
inu og skoraði 26 stig, tók 8 frá-
köst og gaf 8 stoðsendingar, en
þar á eftir kom Auður Jónsdóttir
með 9 stig. Stigahæst ÍS stúlkna
var Alda Jónsdóttir með 17 stig
og þar á eftir kom Lovísa Guð-
mundsdóttir með 16 stig. Svan-
dís Sigurðardóttir var öflug undir
körfunni og tók 14 fráköst.
GRINDAVÍK-KEFLAVÍK
Keflavíkurstúlkur unnu Grinda-
vík í viðureign liðanna á laugar-
daginn. Lokatölur voru 75-107,
en Keflavíkurstúlkur náðu afger-
andi forystu strax í öðrum leik-
hluta.
Pétur Guðmundsson, þjálfari
Grindavíkur, játaði fúslega að
hans leikmenn hefðu mætt ofjarli
sínum. „Við héngum í þeim fram
undir miðjan annan leikhluta, en
þar sigu þær fram úr. Þær náðu
öllum fráköstum og fengu að
leika lausum hala í teignum.”
Pétur sá samt ýmislegt jákvætt í
leiknum til dæmis í vörninni, auk
þess sem liðið var að hitta mun
betur utan af velli heldur en í síð-
ustu leikjum.
Hjörtur Harðarson hjá Keflavík
var að vonum ánægður með
frammistöðu síns liðs. „Leikur-
inn var nokkuð jafn til að byrja
með en svo fór breiddin hjá okk-
ur að skila sér og munurinn jókst
bara upp frá því. Nú er liðið von-
andi búið að finna sig eftir tvo
tapleiki í röð um daginn og ef
stelpurnar koma til leikja tilbúnar
til að spila og leggja eitthvað á
sig erum við ekki auðsigraðar.”
Stigahæstar Grindavíkur voru
Sólveig Gunnlaugsdóttir (27
stig), Ólöf Pálsdóttir (15 stig) og
Petrúnella Skúladóttir (14 stig).
Hjá Keflavík voru Birna Val-
garðsdóttir (27 stig) og Erla Þor-
steinsdóttir (24 stig).
Eftir sex umferðir eru Stúdínur
efstar í 1. deildinni með 10 stig
en Keflavík fylgir þeim fast á eft-
ir með 8. Njarðvík er í þriðja sæti
en Grindavík er í neðsta sæti
deildarinnar. Pétur Guðmunds-
son telur þó að hans lið hafi enn
góðan möguleika á að ná einu af
fjórum efstu sætunum og komast
í úrslitakeppnina.
Grétar Hjartarson, hinn öflugi framherji Grindavíkur, erfarinn að æfa aftur eftir erfið ökklameiðsli sem hafa haldiðhonum frá allri fótmennt svo mánuðum skiptir. Hann spil-
aði ekkert með Grindavíkurliðinu í sumar, enda átti liðið afleitu
gengi að fagna í Landsbankadeildinni í sumar þar sem þeir björg-
uðu sér frá falli í lokaumferðinni.
Grindvíkingar hljóta að fagna því að Grétar sé kominn á ferðina og
vonast eflaust til þess að hann finni aftur form eins og hann var í sum-
arið 2002 þar sem hann var markahæsti maður deildarinnar. Grétar
segir í samtali við heimasíðu Grindavíkur að á næstu dögum komi í
ljós hvenær hann gæti farið að beita sér af fullum krafti á æfingum.
Grindavíkurstúlkur
mættu ofjarli sínum
Grétar Hjartarson stíg-
ur upp úr meiðslum
Bónus í samstarf við Njarðvíkinga FRAMKVÆMDATILBOÐ - 2 FYRIR 1
Þú kaupir og sækir pizzu og hvítlauksbrauð.
Þú færð aðra pizzu sömu stærðar frítt með.
Þú greiðir fyrir dýrari pizzuna.
Síminn er 421 4067 • Hafnargötu 30 Keflavík
VF 46. tbl. 2003 #3 12.11.2003 15:47 Page 27