Víkurfréttir - 12.02.2004, Síða 2
➤ G A M L A R AT S J Á R S T Ö Ð I N Á M I Ð N E S H E I Ð I
Fasteignamarkaður Suðurnesja - inn á öll heimili á Suðurnesjum!
Sjáið fasteignaauglýsingar á blaðsíðum 21-23 í Víkurfréttum í dag
Fasteignasalan Ásberg,
sími 421 1420
Eignamiðlun Suðurnesja
Sími 421 1700
Fasteignasala G.Ó.
sími 421 8111
Fasteignasalan Stuðlaberg
sími 420 4000
stuttar
f r é t t i r
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
stuttar
f r é t t i r
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
Jó
ha
nn
es
K
r. K
ris
tjá
ns
so
n
Auglýsingasími
421 0000
Ekki hefur enn verið haf-ist handa við að hreinsasvæðið í kringum
Rockville á Miðnesheiði og seg-
ir Matthías G. Pálsson sendi-
ráðsritari á Varnarmálaskrif-
stofu Utanríkisráðuneytisins að
helsta ástæðan sé að Varnarlið-
ið sé í peningakröggum. Um
hálft ár er síðan meðferðar-
heimilið Byrgið fór af svæðinu
og vöktu þær fréttir mikla at-
hygli þar sem Byrgið hafði lagt
tugmilljónir króna í að bæta
aðstöðu á svæðinu.
Að sögn Matthíasar er krafa ís-
lenskra stjórnvalda að byggingar
á svæðinu verði rifnar. Matthías
segir að Varnarliðið leiti leiða til
að fá fjármagn til verksins, en að
svæðið sé stórt sem þurfi að
hreinsa og það sé kostnaðarsamt.
„Það eru einnig uppi kröfur um
að svæðið verði hreinsað í sam-
ræmi við umhverfissjónarmið og
gildandi lög og reglur, með hlið-
sjón af hættulegum efnum sem
þarna geta verið. Stjórnvöld
halda uppi stöðugri pressu á
Varnarliðið um að hreinsa svæð-
ið, en eins og allir vita er Varnar-
liðið í peningakröggum,“ sagði
Matthías í samtali við Víkurfrétt-
ir.
Meirihluti þeirra bygginga sem á
svæðinu standa hafa verið lagðar
í rúst og hefur heilu bílförmunum
af allskyns drasli verið stolið.
Fyrir stuttu var veginum að
Rockville svæðinu lokað og
þungum steypustólpum komið
fyrir utan vegar.
1000 e-töflur og
130 grömm af
kókaíni gerð
upptæk
Lögreglan í Keflavík, ísamstarfi við lögregluog tollgæslu á Kefla-
víkurflugvelli, lögregluna í
Reykjavík,Tollstjórann í
Reykjavík og lögregluna á
Húsavík, hefur undanfarið
unnið að rannsókn máls er
varða innflutning á 1000 E-
töflum og u.þ.b. 130 g af
kókaíni.
Í þágu rannsóknar var á föstu-
dag lögð fram krafa hjá Hér-
aðsdómi Reykjaness og Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra
að átta einstaklingar yrðu úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald og
hefur Héraðsdómur Reykja-
ness þegar úrskurðað 6 aðila í
gæsluvarðhald í 3-14 daga.
Ekki verða gefnar frekari
upplýsingar um málavexti að
svo stöddu, segir á vef lög-
reglunnar.
„Roðlausa ýsan
selst best“
„Viltu ekki fá þér bita -
þetta er úrvals harðfiskur,“
segir Kristján F. Kristins-
son harðfisksölumaður
þegar viðskiptavinir í
Njarðvíkurútibúi Spari-
sjóðsins í Keflavík ganga
þar inn.
Kristján er 68 ára gamall og
hættur að vinna eins og hann
segir. „Ég er að selja harð-
fisk frá Þingeyri, Sandgerði
og Grindavík,“ sagði hann í
samtali við Víkurfréttir, en
roðlausa ýsan er vinsælust.
Kristján hefur búið lengi á
Suðurnesjum. „Ég er nú bú-
inn að eiga heima í Njarðvík
í 30 ár og eiga sömu konuna
í 42,“ sagði þessi hressi harð-
fisksölumaður, en þau hjónin
selja einnig kleinur.
H jálmar Árnason, þingmaður Framsókn-arflokks í Suðvesturkjördæmi, vill aðhætt verði við hugmyndir um að byggja
nýtt fangelsi við Geitháls í Reykjavík. Nær væri
að nýta húsnæði Íslenskra aðalverktaka á Kefla-
víkurflugvelli og skapa þannig ný störf í stað
hundraða starfa sem eru að hverfa.
Íslenskir aðalverktakar hafi þar boðið lausn sem sé
500 miljónum króna ódýrari. Þingmaðurinn segir
frá því á heimasíðu sinni að samkvæmt áætlunum
ríkisins kosti um einn miljarð króna að reisa nýtt
fangelsi við Geitháls í Reykjavík. Hjálmar Árnason
hefur efasemdir um þetta og líst betur á lausn sem
Íslenskir aðalverktakar hafa boðið í húsnæði sínu á
Keflavíkurflugvelli. Hún feli í sér möguleika á starfi
og námi fanga, svari aðkallandi vanda vegna fjölda-
uppsagna hjá varnarliðinu og sé um 500 milljónum
ódýrari. Húsnæði sé til staðar og á skömmum tíma
megi laga það að kröfum fangelsisyfirvalda. Til
þess hafi Aðalverktakar þekkingu. Á vegum fyrir-
tækisins allt um kring umrædd hús, séu ýmiskonar
verkstæði og vinnustaðir þar sem fangar gætu
stundað uppbyggilega vinnu og starfsþjálfun. Þing-
maður kjördæmisins minnir á að oft hafi verið grip-
ið til pólitískra aðgerða vegna áfalla byggðarlaga,
varla hafi byggðalag áður mætt jafn miklu róti í at-
vinnulífi eins og nú blasi við Suðurnesjum vegna
breytinga hjá varnarliðinu. Því mæli bæði pólitísk
og fagleg rök með þessari lausn.
Vill fangelsi í húsnæði
ÍAV á Keflavíkurflugvelli
Varnarlið í fjárkröggum
getur ekki rifið Rockville
Búið er að loka veginum að Rockville. Eins og sést á myndunum hafa
stórfelld skemmdarverk verið unnin á byggingum á svæðinu.
- Krafa íslenskra stjórnvalda að byggingar á svæðinu verði rifnar
Víkurfréttamynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson
Farþegar um Leifsstöð:
Mesti fjöldi í
janúarmánuði
frá því mæling-
ar hófust
Farþegum um FlugstöðLeifs Eiríkssonarfjölgaði um tæplega
21% í janúarmánuði miðað
við sama tíma í fyrra, úr
rúmlega 61 þúsund farþeg-
um árið 2003 í um 74 þús-
und farþega nú. Fjölgun
farþega til og frá Íslandi
nemur rúmlega 19% milli
ára. Farþegum sem milli-
lenda hér á landi á leið yfir
Norður-Atlantshafið fjölgar
þó hlutfallslega enn meira
eða um 28%.
Farþegafjöldi í janúarmánuði
hefur ekki verið svo mikill frá
því mælingar hófust.
Mávabraut 7, Keflavík.
Góð 74m2 íbúð á 2. hæð í fjöl-
býli með 3 svefnh. Nýlegir
gluggar, endaíbúð. Laus fljótl.
7.000.000,-
Suðurgarður 2, Keflavík.
Huggulegt og mjög rúmgott
endaraðhús, 194m2, ásamt 23m2
bílskúr. Allar innr. og gólfefni
eru úr vönduðum efnum. 28m2
sólstofa. 18.900.000,-
Grundarvegur 15, Njarðvík.
Sérlega hugguleg 5 herb. íbúð á e.h.
með sérinngangi. Eign sem mikið er
búið að endurnýja ma.
nýjar innréttingar, ný gólfefni, lagnir
og fl. Stór sólpallur í suð-vestur.
14.200.000,-
Smiðjuvellir 6, Keflavík.
Um 273m2 steypt atvinnu- og
verslunarhúsnæði á góðum stað.
Inngangur aðgengilegur, ýmsir
möguleikar.
Nánari uppl. á skrifstofu
7. tbl. 2004 umbrot HEIMA 11.2.2004 13:57 Page 2