Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.02.2004, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 12.02.2004, Blaðsíða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Fannar Ólafsson leikmað-ur körfuknattleiksliðsKeflavíkur er illa skor- inn í andliti eftir árás á skemmtun félagsins í Stapan- um á laugardagskvöld þar sem karla- og kvennalið félagsins hélt uppá bikarmeistaratitlana sem unnust fyrr um daginn. Fannar var fluttur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans á þriðju klukkustund. Yfirlýsing frá stjórnum körfuknat- tleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur Vegna fólskulegrar árásar sem Fannar Ólafsson, leikmaður Keflavíkur, varð fyrir aðfararnótt sunnudags á Bikargleði Keflvík- inga í Stapanum vilja stjórnir körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur koma eftirfarandi á framfæri: Keflavík og Njarðvík eru sigur- sælustu félögin í íslenskum körfubolta á undanförnum árum. Eitt af því sem heldur þessum félögum á toppnum er stöðug og öflug samkeppni milli félaganna. Þessari samkeppni fylgir heil- brigður rígur sem hvetur menn til dáða og eykur stemmninguna á kappleikjum. Enda eru leikir þessara félaga engu öðru líkir. Rígurinn birtist yfirleitt sem góð- látlegt grín og oft mont ef vel gengur og í mesta lagi eru ill- kvittin orð látin falla í hita leiksins. Þetta þekkja menn úr íþróttum þar sem nálægðin er mikil. En á bak við samkeppnina og ríginn er öflugt samstarf deild- anna og oft á tíðum vinskapur meðal leikmanna, stjórnarmanna og stuðningsmanna. Sem dæmi um samstarf má nefna að félögin starfa mikið saman að mótahaldi og ýmis konar uppákomum. Gott dæmi er nýafstaðinn úrslitaleikur KKÍ & Lýsingar þar sem stjórnir félaganna funduðu stíft saman og unnu saman að framkvæmd leiksins sem heppnaðist vel í alla staði. Árásin á Fannar var fólskuleg, tilefnislaus og grimm. En að gefnu tilefni viljum við taka fram að þessi árás er engan veginn sprottin úr téðum ríg, heldur er hún einstakt og einangrað atvik ógæfumanns sem eflaust á um sárt að binda. Það var enginn undanfari þessarar árásar okkur vitandi, engar deilur, engin rifrildi, engin slagsmál milli Keflvíkinga og Njarðvíkinga. Því þykir okkur afar leitt að borið hefur á því að sumir vilja tengja þetta atvik við ríginn milli félag- anna. Slík umræða er afar skað- leg og gæti hugsanlega stuðlað að óæskilegri hegðun í kjölfarið. Við viljum því árétta að þrátt fyrir mikla samkeppni er mikill vinskapur milli þessara félaga og þetta atvik mun engu breyta í því sambandi. Mikilvægt er að stuðningsmenn félaganna geri sér grein fyrir þessu. Fannar er góður drengur og baráttuglaður, allir kunna vel að meta hans kröftugu framgöngu á leikvellinum. Körfuboltasamfélagið á Íslandi er furðu lostið eftir þetta atvik og fjölmargir hafa fordæmt árásina og óskað Fannari góðs bata. Við viljum taka undir það í samein- ingu og lýsa því yfir að ofbeldi hefur aldrei verið og mun aldrei verða partur af okkar samkeppni. Við erum miklir keppnismenn, eins og dæmin sanna, en við útkljáum ávallt okkar deilur á vellinum. Með keppniskveðju, Hrannar Hólm, formaður KKDK Hafsteinn Hilmarsson, formaður KKD UMFN ➤ A L V A R L E G L Í K A M S Á R Á S Í S TA P A N U M ILLA SKORINN OG Á ÞRIÐJU KLUKKUSTUND Í AÐGERÐ Fannar (í hvítum bol) fagnar með sínum mönnum í Keflavík þegar úrslitin voru ljós í Laugardals- höllinni. VF-mynd: Tobbi Styrktarreikningur í Sparisjóðnum Fyrir þá sem komast ekki á styrktartónleikana í Stapanum sem haldnir verða í kvöld til styrktar Ómari Jóhannssyni er bent á reikning sem stofnaður hefur verið í Sparisjóðnum í Keflavík: 1109-05-409040 7. tbl. 2004 umbrot HEIMA 11.2.2004 14:44 Page 4

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.