Víkurfréttir - 12.02.2004, Síða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Fannar Ólafsson leikmað-ur körfuknattleiksliðsKeflavíkur er illa skor-
inn í andliti eftir árás á
skemmtun félagsins í Stapan-
um á laugardagskvöld þar sem
karla- og kvennalið félagsins
hélt uppá bikarmeistaratitlana
sem unnust fyrr um daginn.
Fannar var fluttur á slysadeild
þar sem gert var að sárum
hans á þriðju klukkustund.
Yfirlýsing frá stjórnum körfuknat-
tleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur
Vegna fólskulegrar árásar sem
Fannar Ólafsson, leikmaður
Keflavíkur, varð fyrir aðfararnótt
sunnudags á Bikargleði Keflvík-
inga í Stapanum vilja stjórnir
körfuknattleiksdeilda Keflavíkur
og Njarðvíkur koma eftirfarandi
á framfæri:
Keflavík og Njarðvík eru sigur-
sælustu félögin í íslenskum
körfubolta á undanförnum árum.
Eitt af því sem heldur þessum
félögum á toppnum er stöðug og
öflug samkeppni milli félaganna.
Þessari samkeppni fylgir heil-
brigður rígur sem hvetur menn til
dáða og eykur stemmninguna á
kappleikjum. Enda eru leikir
þessara félaga engu öðru líkir.
Rígurinn birtist yfirleitt sem góð-
látlegt grín og oft mont ef vel
gengur og í mesta lagi eru ill-
kvittin orð látin falla í hita
leiksins. Þetta þekkja menn úr
íþróttum þar sem nálægðin er
mikil.
En á bak við samkeppnina og
ríginn er öflugt samstarf deild-
anna og oft á tíðum vinskapur
meðal leikmanna, stjórnarmanna
og stuðningsmanna. Sem dæmi
um samstarf má nefna að félögin
starfa mikið saman að mótahaldi
og ýmis konar uppákomum. Gott
dæmi er nýafstaðinn úrslitaleikur
KKÍ & Lýsingar þar sem stjórnir
félaganna funduðu stíft saman og
unnu saman að framkvæmd
leiksins sem heppnaðist vel í alla
staði.
Árásin á Fannar var fólskuleg,
tilefnislaus og grimm. En að
gefnu tilefni viljum við taka fram
að þessi árás er engan veginn
sprottin úr téðum ríg, heldur er
hún einstakt og einangrað atvik
ógæfumanns sem eflaust á um
sárt að binda. Það var enginn
undanfari þessarar árásar okkur
vitandi, engar deilur, engin
rifrildi, engin slagsmál milli
Keflvíkinga og Njarðvíkinga. Því
þykir okkur afar leitt að borið
hefur á því að sumir vilja tengja
þetta atvik við ríginn milli félag-
anna. Slík umræða er afar skað-
leg og gæti hugsanlega stuðlað
að óæskilegri hegðun í kjölfarið.
Við viljum því árétta að þrátt
fyrir mikla samkeppni er mikill
vinskapur milli þessara félaga og
þetta atvik mun engu breyta í því
sambandi. Mikilvægt er að
stuðningsmenn félaganna geri
sér grein fyrir þessu.
Fannar er góður drengur og
baráttuglaður, allir kunna vel að
meta hans kröftugu framgöngu á
leikvellinum.
Körfuboltasamfélagið á Íslandi
er furðu lostið eftir þetta atvik og
fjölmargir hafa fordæmt árásina
og óskað Fannari góðs bata. Við
viljum taka undir það í samein-
ingu og lýsa því yfir að ofbeldi
hefur aldrei verið og mun aldrei
verða partur af okkar samkeppni.
Við erum miklir keppnismenn,
eins og dæmin sanna, en við
útkljáum ávallt okkar deilur á
vellinum.
Með keppniskveðju,
Hrannar Hólm,
formaður KKDK
Hafsteinn Hilmarsson,
formaður KKD UMFN
➤ A L V A R L E G L Í K A M S Á R Á S Í S TA P A N U M
ILLA SKORINN OG Á ÞRIÐJU
KLUKKUSTUND Í AÐGERÐ
Fannar (í hvítum bol) fagnar
með sínum mönnum í Keflavík
þegar úrslitin voru ljós í Laugardals-
höllinni. VF-mynd: Tobbi
Styrktarreikningur í Sparisjóðnum
Fyrir þá sem komast ekki á styrktartónleikana í Stapanum sem
haldnir verða í kvöld til styrktar Ómari Jóhannssyni er bent á
reikning sem stofnaður hefur verið í Sparisjóðnum í Keflavík:
1109-05-409040
7. tbl. 2004 umbrot HEIMA 11.2.2004 14:44 Page 4