Víkurfréttir - 12.02.2004, Blaðsíða 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
sportið
Keflavík tryggði sér bikar-meistaratitil karla annaðárið í röð eftir öruggan
sigur á nágrönnum sínum úr
Njarðvík, 93-74. Þetta er í
fyrsta skiptið í 10 ár sem karla-
lið ver bikarmeistaratitil sinn,
eða síðan þeir afrekuðu slíkt
sjálfir árin 1993-94.
Aðdragandi leiksins markaðist
að miklu leyti af óvissu með liðs-
uppskipan Njarðvíkinga. Lykil-
menn eins og Brandon Woudstra
og Brenton Birmingham voru
meiddir og Egill Jónasson var
veikur. Þá var Páll Kristinsson
dæmdur í leikbann fyrir að hafa
stjakað við dómara í deildarleik.
Njarðvíkingar fengu Larry
Bratcher til liðs við sig til að fylla
í skarðið, en þegar kom loks að
leiknum voru Brenton og
Brandon báðir í byrjunarliði
þeirra, en voru greinilega ekki í
toppformi.
Stemmningin í Laugardalshöll-
inni fyrir leikinn var engu að síð-
ur frábær og Suðurnesjamenn
fjölmenntu til að styðja sín lið og
nötraði Höllin oft í látunum frá
þeim.
Fyrstu mínúturnar var leikurinn
jafn þar sem Larry Bratcher
skoraði fyrstu 8 stig sinna
manna. Hann skoraði þó ekki
meira það sem eftir lifði leiks á
meðan Keflvíkingar náðu smám
saman undirtökunum og jókst
munurinn stöðugt allan leikinn
án þess að Njarðvíkingar fengju
rönd við reist.
Brenton átti greinilega að bera
sóknarleik sinna manna uppi, en
hann var stífdekkaður allan tím-
ann og átti erfitt um vik. Þá sást
Brandon varla allan leikinn þar
sem meiðslin háðu honum og
hann skoraði bara 2 stig. Hjá
Keflvíkingum átti Arnar Freyr
Jónsson stórleik og dreif sína
menn áfram ásamt því að
Derrick Allen átti glimrandi leik
undir körfunni þar sem hann og
Friðrik Stefánsson hjá Njarðvík
áttust við í sögulegu einvígi.
Undir lok fyrri hálfleiks áttu
Njarðvíkingar mjög góðan sprett
þar sem þeir náðu að minnka
muninn í 3 stig, 43-40, en Kefl-
víkingar svöruðu að bragði og
juku muninn í 7 stig fyrir leikhlé.
Í seinni hálfleik breikkaði bilið
milli liðanna jant og þétt og þrátt
fyrir að Keflvíkingar misstu Jón
Nordal og fyrirliðann Gunnar
Einarsson útaf með fimm villur
varð ekkert úr neinu hjá Njarð-
víkingum og má segja að leikur-
inn hafi verið búinn þegar um
þrjár mínútur voru til leiksloka
og munurinn var 17 stig.
Lokamínútan leið og öllum var
ljóst hvernig færi og þegar flaut-
an gall fögnuðu Keflvíkingar
mikið og áhorfendur flykktust út
á gólf og fögnuðu sínum mönn-
um vel og innilega.
Falur Harðarson, annar þjálfara
Keflvíkinga, var í skýjunum eftir
leikinn. „Þetta var frábært! Við
náðum að spila okkar leik og
keyra upp hraðann og sóttum
stanslaust á þá. Þetta var bara frá-
bær sigur liðsheildarinnar.“
Friðrik Ragnarsson, kollegi Fals
hjá Njarðvík, var auðvitað ekki
sáttur við leikinn, en játaði að
betri aðilinn hefði sigrað. „Þeir
voru betri en við allan leikinn.
Brenton og Brandon voru greini-
lega ekki í góðu formi og við
söknuðum Palla líka, en við urð-
um bara að spila úr því sem við
höfðum.“
Eins og fyrr sagði átti Derrick
Allen stórleik þar sem hann skor-
aði 29 stig og tók 20 fráköst.
Nick Bradford kom honum næst-
ur með 22 stig, en hetja leiksins
var engu að síður hinn tvítugi
Arnar Freyr Jónsson sem skoraði
20 stig og gaf 9 stoðsendingar
auk þess að stela 5 boltum.
Í liði Njarðvíkur var Brenton
stigahæstur með 24 stig, en Frið-
rik Stefánsson bar af með 18 stig,
18 fráköst og 7 varin skot.
Í úrslitaleik bikarsins um helgina kvaddi ungur og efnilegurleikmaður sér hljóðs og sannaði sig svo um munar.ArnarFreyr Jónsson, tvítugur Keflvíkingur, stal senunni og átti
stórleik sem tryggði sínum mönnum sætan sigur á erkifjendun-
um Njarðvíkingum í skemmtilegum leik.Víkurfréttum lék for-
vitni á að vita meira um þennan efnilega leikmann og gaf hann
sér tíma til að svara nokkrum laufléttum spurningum.
Hvenær fórstu að æfa körfubolta?
Ætli ég hafi ekki verið svona ellefu ára. Það kom ekkert annað en
Keflavík til greina.
Hverjir eru þínir helstu styrkleikar sem leikmaður?
Ég er snöggur og les leikinn vel.
Hverjir eru þínir helstu veikleikar sem leikmaður?
Ætli ég þurfi ekki aðeins að laga skotið hjá mér. Það er svona það
helsta, en það er alltaf hægt að bæta sig.
Ertu í skóla?
Já, ég er í FS. Ég er skráður á náttúrufræðibraut, en ég fer annað
hvort í arkitektúr, eða bara í fasteignasölu eins og pabbi eða eitt-
hvað.
Truflar boltinn skólagönguna?
Nei alls ekki.
Nú stóðstu þig sérlega vel í úrslitum bikarkeppninnar.Varstu
öðruvísi stemmdur fyrir þennan leik en aðra?
Já, það var náttúrulega meiri spenna og bikar í húfi þannig að mað-
ur hugsaði aðeins meira um þetta.
Hvernig leið þér eftir leikinn?
Bara eintóm gleði maður! Svo er rosa gaman núna þegar maður
hittir fólk úti á götu og allir eru að óska manni til hamingju og hrósa
manni fyrir góðan leik.
Hefurðu leitt hugann að atvinnumennsku?
Nei, ekki neitt svoleiðis. Ég ætla bara að reyna að standa mig hérna
heima fyrst áður en ég fer eitthvað að spá í því.
Hefurðu einhverja hjátrú í sambandi við leiki?
Já, ég reyni að gera alltaf sömu hlutina og svo á ég kross sem ég er
alltaf með í leikjum.
Keflvíkingar sneru aftur frá Reykjavík á laugardaginn með tvo bikartitla í fartesk-
inu þar sem bæði karla- og kvennalið félagsins unnu góða sigra. Þetta var enn-
fremur í fjórða skipti sem liðið vinnur báða titlana sama árið, en einu félögin
sem hafa afrekað slíkt eru KR (1977) og ÍS (1978).
Öruggt hjá Keflavíkurstrákum
Tvöfalt hjá Keflavík
Margt Smátt
Hæð: 182
Skónúmer: 42 1/2
Áttu kærustu? Já, hún heitir Elín-
borg Ósk Jensdóttir
Bíll: Nissan Almera
Hvaða bók lastu síðast? Ég held
bara að ég hafi ekki lesið bók síðan
ég las Lalla Ljósastaur um árið. Ég
les bara ef ég þarf að lesa í skólanum
og ekkert meira en það.
Hvaða diskur er í græjunum? R-
Kelly
Uppáhalds hljómsveit: Engin sér-
stök. Ég hlusta mest á rapp, en er
eiginlega alæta á tónlist og get hlust-
að á allt sem er með góða melódíu
og svoleiðis.
Kvikmynd: Shawshank Redemption
Lið í enska: Liverpool, en maður
hálfskammast sín fyrir það núna.
Lið/leikmaður í NBA: Boston Celt-
ics og LeBron James
Matur: Subway
Drykkur: Kók
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
To
bí
as
Sv
ei
nb
jö
rn
ss
on
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
To
bí
as
Sv
ei
nb
jö
rn
ss
on
7. tbl. 2004 umbrot HEIMA 11.2.2004 12:44 Page 16