Víkurfréttir - 12.02.2004, Page 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Námskeiðahald hjá Miðstöð símenntunarer komið á fullt skrið. Þátttaka hefur ver-ið góð það sem af er og eru Suðurnesja-
menn fróðleiksfúsir. Í næstu viku byrja nám-
skeið í vélgæslu, ensku, spænsku, einelti á vinnu-
stað, espressó, sölumennsku, sjálfsstyrkingu, list-
in að vera dama, Hvað ertu tónlist og leiðsögu-
námi. Á laugardaginn mun ráðgjafi vera hjá
MSS og geta þeir sem telja sig eiga við lestrarerf-
iðleika að stríða fengið greiningu og ráðgjöf.
Þátttakendur þurfa að skrá sig hjá Miðstöð sí-
menntunar á Suðurnesjum.
Jónas Ingimundarsonverður með sitt marg-rómaða prógramm sem
hann nefnir „Hvað ertu tón-
list?“ í Listasafni Reykjanes-
bæjar þann 19. febrúar nk.
Jónas segir nokkrum erfiðleik-
um bundið að lýsa uppákom-
unni. „Eigum við ekki að segja
að þetta byggist á spjalli og
spekúlasjónum um tónlist
ásamt þeim verkum sem ég
spila. Ég freistast til að velta
hugtakinu fyrir mér eins og
kristalskúlu milli handanna og
skoða það sem snýr upp hverju
sinni.“
Jónas segir tilganginn ekki
þann að fólk heyri músíkina
eins og hann heyri hana heldur
að kynna hvernig hægt er að
nálgast tónlist á ýmsa vegu.
„Við heyrum svo oft af því
hvað Mozart dó ungur og
hversu mörg börn Bach átti
eða af heyrnarleysi Beethoven
en fyrir mér er það bara heilsu-
fræði. Ég reyni að beina at-
hyglinni að tónlistinni sjálfri.
Auðvitað er hægt að nálgast
tónlist út frá meðvitaðri grein-
ingu á formi og strúktúr en
kannski erum við að tala hér
um aðra nálgun þar sem tón-
listin talar fyrir sig sjálf.“
Jónast gerir ráð fyrir að vera
með sýnishorn af mörgum
verkum. „Ég sit náttúrlega við
mitt píanó og hef hvorki sin-
fóníuhljómsveit eða rokkband
mér til fulltingis. Ætli ég tíni
ekki það úr handraðanum sem
mér er hugleikið og spila það
sem mér f innst gaman að
spila,“ segir Jónas Ingimundar-
son.
Helga Braga verður meðnámskeiðið „Listin aðvera dama“ í Reykja-
nesbæ þann 19. febrúar.
Helga segir að námskeiðið sé
„kokteill“ af gríni og gleði þar
sem gert sé grín af öllum þeim
mistökum sem dömur geta gert,
ásamt „alvöru“ ráðleggingum frá
ýmsum aðilum s.s. leikkonum,
„glamúr“ gellum, samkyn-
hneigðum vinum sínum og döm-
um víðsvegar úr heimi. Jafnframt
sé ákveðin sjálfsstyrking falin í
námskeiðinu. Það er ekki verið
að segja konum hvernig þær eigi
að vera heldur er verið að styrkja
ákveðinn þátt sem kannski hefur
verið í dvala. Námskeiðið er ein-
staklega létt og hlutirnir settir
upp með bröndurum enda hefur
það sannast að hláturinn sé eitt
besta meðal sem til sé. Konur á
öllum aldri hafa sótt þessi nám-
skeið og frá hinum margvísleg-
ustu starfsstéttum og haft gagn
og gaman af segir Helga að lok-
um.
➤ M I Ð S T Ö Ð S Í M E N N T U N A R Á S U Ð U R N E S J U M
Skemmtileg námskeið framundan
Hvað er tónlist? Listin að
vera dama
Nú er unnið að lagningu göngustígs með ströndinni við Keflavík.
Stórvirkar vinnuvélar hafa síðustu daga ekið með efni í sjóvarnargarð og stíg við
enda Básvegar og Hrannargötu í Keflavík. Í vikubyrjun var grafa að störfum neðan
við bakaríið hjá Ragnari Eðvaldssyni. Á fallegu sumarkvöldi verður örugglega
gaman að ganga þessa leið.
Sveitarfélagið Garður hef-ur samþykkt samhljóðaað taka upp viðræður við
Braga Guðmundsson og
Tryggva Einarsson um hugs-
anlega stækkun Byggðasafns-
ins á Garðskaga. Um er að
ræða hugmyndir að 676 fer-
metra byggingu samkvæmt
fyrirliggjandi frumteikningu
frá Verkfræðistofu Suðurnesja.
Breytingar hafa verið gerðar á
fyrri teikningum, sem gerðu ráð
fyrir stálgrindarhúsi. Nú er skoð-
uð bygging steinhúss sem er að
hluta til á tveimur hæðum. Á efri
hæð nýja hússins er gert ráð fyrir
veitingaaðstöðu með útsýni yfir
Faxaflóa.
Gerðahreppur hefur jafnframt
tekið við vitavarðarhúsinu að
Garðskaga. Nú er unnið að hug-
myndum um það hvernig húsið
verði nýtt.
Garðmenn ræða við verktaka
um byggingu byggðasafns
Göngustígur með ströndinni
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
H
ilm
ar
B
ra
gi
B
ár
ða
rs
on
Daglega á Netinu - vf.is
7. tbl. 2004 umbrot HEIMA 11.2.2004 13:36 Page 6