Víkurfréttir - 12.02.2004, Blaðsíða 8
MIKIÐ ER GAMAN hjá ritstjórum DV þar sem
þeir sitja sem kóngar og nafngreina persónur í gríð
og erg í fréttum sínum. Á forsíðu DV sl. mánudag
nafngreindu kóngarnir pilt-
inn sem sló Fannar Ólafs-
son í andlitið með bjórglasi.
Kallinum dettur ekki í hug
að verja þennan pilt því það
sem hann gerði er ekki af-
sakanlegt. En hvernig í
ósköpunum leyfa þessir ný-
krýndu kóngar á slúður-
blaðinu DV að nafngreina
ungan dreng sem hefur
sjálfsagt í ölæði sínu slegið Fannar? Hvaða vald
hafa þeir? Og frá hverjum? Kallinn lýsir sinni
mestu vanþóknun á þessari stefnu slúðurritstjóranna
og vonar að aðrir taki þar við stjórnartaumunum.
SNJÓMOKSTUR er mismunandi á Suðurnesjum
- Kallinn hefur fengið bréf þar sem íbúi í Grindavík
kvartaði undan því að ekki væri vel staðið að snjó-
mokstri þar á bæ. Það er langt síðan Kallinn kom til
Grindavíkur - en gaman væri að heyra frá íbúum
um það hvað þeim finnist um snjómokstur hjá
þeim.
KALLINN er mikið í kringum Suðurnesjamenn
sem vinna hjá Varnarliðinu og nú er uppi orðrómur
um að uppsagna sé að vænta á vellinum. Kallinn
hefur heyrt að allt að 40 slökkviliðsmönnum verði
sagt þar upp innan tíðar. Samkvæmt heimildum
Kallsins hafa blaðamenn Víkurfrétta kannað þennan
orðróm upp á síðkastið, en þeir hafa enga staðfest-
ingu fengið á að uppsagna sé að vænta. Kallinn hef-
ur áhyggjur af þessu, en ljóst er að frekari uppsagnir
eru fyrirhugaðar á vellinum - allar fréttir benda til
þess. Kallinn óskar eftir upplýsingum.
KALLINN TELUR SIG hafa nokkuð traustar
heimildir fyrir því að 40 slökkviliðsmönnum verði
sagt upp innan tíðar. Vonandi gerist það ekki - en
Kallinn óskar eftir upplýsingum!
FLUGVALLARVEGURINN er hrikalegur. Í
langan tíma hefur hann verið holóttur og vart fær
fólksbílum. Hvenær á að laga þennan veg?
VEGNA BRÉFA sem Kallinum hefur borist lætur
hann hér staðar numið.
BARÁTTUKVEÐJA!
kallinn@vf.is
stuttar
f r é t t i r
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Grundarvegi 23,
260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamaður:
Jóhannes Kr. Kristjánsson,
sími 421 0004, johannes@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, jonas@vf.is
Auglýsingadeild:
Jófríður Leifsdóttir,
sími 421 0008, jofridur@vf.is
Útlit, umbrot og
prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Kallinn á kassanum
MUNDI
Sýning
Árna John-
sen opnar á
laugardag
Laugardaginn 14. feb.kl. 15.00 verður opn-uð sýning á listaverk-
um Árna Johnsen í Gryfj-
unni, Duushúsum í Reykja-
nesbæ. Um er að ræða
tæplega 40 verk sem unnin
eru úr grjóti frá Grundar-
firði, stáli og ýmsu öðru
efni. Sýningin stendur til
14. mars og er hún opin
alla daga frá kl. 13.00-
18.00.
Duushús - menningarmiðstöð
Reykjanesbæjar
Menningarmiðstöð Reykja-
nesbæjar, Duushúsin hafa
verið í uppbyggingu síðustu
ár og hýsa nú þegar margs
konar menningarstafsemi þó
ekki séu öll húsin tilbúin enn.
Bátasafn Gríms Karlssonar
er staðsett í norðurenda
Duushúsanna og hefur yfir
að ráða 350 m2 sýningarsal.
Þar eru sýnd 59 bátalíkön eft-
ir Grím Karlsson fyrrv. skip-
stjóra úr Njarðvík og er saga
sjávarútvegs á Íslandi reifuð
með þeirra hjálp.
Listasafn Reykjanesbæjar
hefur yfir að ráða 240 m2
sýningarsal inn af Bátasafn-
inu og þar hafa til þessa verið
settar upp 8 sýningar valin-
kunnra listamanna. Lista-
maðurinn sem sýnir nú í
salnum heitir Carlos Barao
og kemur frá Portúgal. Salur
Listasafnsins hefur einnig
verið notaður til tónleika-
halds.
Þriðji salurinn, Gryfjan, er
nú í endurgerð og mun
Byggðasafn Reykjanesbæjar
opna þar sýningu á 10 ára af-
mælisdegi Reykjanesbæjar,
11. júní n.k.. Byggðasafnið
er 25 ára á þessu ári og er
sýningin því afmælissýning
og mun standa í eitt ár. Sýn-
ing Árna Johnsen er í þess-
um sal.
Kæri Kall.
Ég er ruslakelling að eðlisfari. En núna er mér nóg
boðið. Ég NEYÐIST til að fara að flokka ruslið mitt.
Held bara að ég hafi ekki fengið leiðinlegra við-
fangsefni í hendurnar í langan tíma. Endalausar
pælingar um hvar ég á að setja þetta eða hitt ruslið
íhhhh. En þar sem seinnanafnið mitt er POLLÝ-
ANNA og áramótaheitið mitt var að vera jákvæð
ákvað ég að reyna að gera þetta allt á jákvæðan
hátt. Ég og vinnufélagi minn ákváðum að byrja á að
setja Moggann og Fréttablaðið í kassa og koma
blöðunum í gám sem má setja í ÓKEYPIS (ENN
ÞÁ). En ég þekki mig svo vel þannig að ég veit að ég
verð að dröslast með kassa með gömlum dagblöðum
í bílnum í margar vikur áður en ég kem því í gáminn.
Man einu sinni eftir að hafa farið með blöð, og ég
var í tómu stríði við að troða því í gatið og hlaupa
um allt Samkaupsplan á eftir fjúkandi Moggum því
það er náttúrulega ekki alltaf logn hér í Reykjanes-
bæ.
En ég skal og get og vil. Ég kem þessu í gáminn. Svo
í vor ætla ég svo að kaupa mér safnkassa, eða biðja
minn elskulega eiginmann að smíða eitthvað svona
apparat sem ég set allt draslið í og þá verður það að
mold innan fárra daga, mánaða eða ára.... ég á sko
eftir að kynna mér þetta betur. En það besta við þetta
allt saman er, er að ég þarf að fá mér nýja eld-
húsinnréttingu. Jú ég er bara með svona skáp með
einfaldri ruslatunnu.... en ég þarf margskipta tunnu
til að fá stimpilinn ALVÖRU RUSLAKELLING.
Ég hefði viljað fá svona kynningu í Víkurfréttir þar
sem mér og fleirum ruslakellingum og köllum er
kennt að meika tíu daga án sorphirðu án þess að
fara að kveikja í rusli í gamalli olíutunnu í garðinum
mínum.
Bjarta ruslatíð, íbúi í fagrabæ....
Ekkert varð úr snjóstríði sem nemendur úr 4. SH í Njarðvíkur-
skóla ætluðu að halda á dögunum. Nemendurnir voru búnir
að hlaða mikið snjóvirki á bílaplaninu fyrir utan Sparisjóðinn
í Njarðvík og hugðust taka þar á móti nemendum úr öðrum
fjórða bekk. Spenningurinn var mikill. „Við rústum þessu,“
sagði einn guttinn þegar Víkurfréttir hættu sér inn á átaka-
svæðið. Það var jú alvöru snjóstríð í uppsiglingu þar sem
snjóbolta átti að nota sem vopn. Nemendurnir voru einnig
búnir að koma sér upp þungavopnum, s.s. stórum snjóköggl-
um sem átti að nota til að hrinda árás á virkið.
Spennan í algleymi og hróp á milli bekkjanna. „Komiði ef þið
þorið!“ Vöðvarnir spenntir til hins ýtrasta. Allt í einu heyrðist
skaðræðisöskur: „Gangavörður - gangavörður,“ og þar með
tvístraðist hópurinn. Þegar einn guttanna var spurður hvers
vegna hætt hafi verið við stríðið svaraði hann: „Við megum
ekki vera hérna,“ og með það hljóp hann ásamt hópnum í átt
til skólans og þar voru allir vinir að sjálfsögðu. En snjóstríðið
bíður betri tíma. Og kannski komast friðargæsluliðar skólans
ekki að því hvar fyrirhugað átakasvæði verður.
VF-ljósmynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson
B jörgunarsveitin Suður-nes verður 10 ára áþessu ári. Að því tilefni
hefur verið ákveðið að stofna
kvennadeild. Fyrirhugað er að
ná saman hópi kvenna sem
hefði áhuga á að taka þátt í
skemmtilegum og gefandi fé-
lagskap með það að markmiði
að styðja við bakið á þessu frá-
bæra fólki í þessu óeigingjarna
starfi sem oft hefur leitt til
björgunar mannslífa.
Í kvöld, 12. febrúar, kl. 20.00
mun Kristín Gunnbjörnsdóttir,
formaður Hraunprýðis í Hafnar-
firði, koma í hús Björgunarsveit-
arinnar að Holtsgötu 51 og kynna
starfsemi kvennadeilda víðs veg-
ar um landið. Ef þig langar að
láta gott af þér leiða og vera í
skemmtilegum félagskap vertu
þá velkomin, það mun verða tek-
ið vel á móti þér.
Okkur vantar þig!
Snjóstríði afstýrt snögglega
Efri mynd:
Við öllu búnir í virkinu.
Neðri mynd:
Gangavörðurinn mættur
og hópurinn tvístrast.
Árni fékk að DUUS-a í steininum
og nú eru steinarnir hans Árna
í DUUS-húsum...
7. tbl. 2004 umbrot HEIMA 11.2.2004 13:11 Page 8