Víkurfréttir - 12.02.2004, Side 13
VÍKURFRÉTTIR I 7. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 12. FEBRÚAR 2004 I 13
vísleg störf í gegnum tíðina sem
ég er stoltur af,“ segir Ómar og
það er greinilegt að samstarfið
við Leikfélag Keflavíkur stendur
Ómari mjög nærri. „Ég er ofsa-
lega stoltur af revíunum og sam-
starfinu við Leikfélag Keflavíkur.
Þar er rosalega mikið af hæfileik-
aríku og skemmtilegu fólki sem
ég hef unnið með. Þetta eru ofsa-
lega góðir vinir mínir eins og sést
best á því að það eru vinir mínir í
leikfélaginu sem standa fyrir tón-
leikunum.“
Trúin hjálpar
„Ég hætti að drekka fyrir
nokkrum árum og mér finnst
æðruleysið hafa hjálpað mér
mikið. Maður fyllist þessari innri
ró og tekst á við vandamálin með
æðruleysi,“ segir Ómar og fer að
tala um trúna á Guð. „Trúin hef-
ur alltaf hjálpað mér og hún gerir
það núna. Hjörtur Magni prestur
í Fríkirkjunni kemur í heimsókn
til mín reglulega og við ræðum
saman um trúna, lífið og tilver-
una. Hjörtur Magni er mjög góð-
ur maður og það sakar ekki að ég
þekki hann frá fornri tíð,“ segir
hann.
Langar að sjá börn og
barnabörn vaxa úr grasi
Þegar Ómar greindist með
krabbamein fyrir 28 árum síðan
var dóttir hans nýfædd. Hann
segir að tilviljanirnar í lífinu geti
verið skrýtnar því um svipað
leyti og maginn var fjarlægður úr
Ómari fékk hann þær dásamlegu
fréttir að hann ætti von á afa-
barni. Þegar viðtalið við Ómar er
tekið er Ómar Ingi, afabarnið sex
mánaða gamall. Strákurinn situr
rólegur á gólfinu og hjalar og af-
inn lítur reglulega til stráksins og
fylgist vel með honum. „Mér
finnst ég vera heppinn að hafa
séð litla manninn, hann Ómar
Inga og hefði viljað sjá hann
verða stærri. Ég hefði líka viljað
sjá börn og barnabörn okkar
Guðnýjar verða stærri. Það væri
gaman,“ segir Ómar sem svo
sannarlega hefur ekki gefist upp
gegn þessum hrikalega og oft
banvæna sjúkdómi. „Ég reyni að
vera sem jákvæðastur. Ég reyni
að skrifa og punkta hjá mér hluti.
Ég veit ekkert hvað ég fæ langan
tíma, það geta alveg eins verið
nokkrir mánuðir. Ég er frekar
máttfarinn en samt rólfær þannig
að ég get gengið um en þreytist
mjög fljótt,“ segir Ómar og gríp-
ur í handfangið sem hangir fyrir
ofan rúmið.
Ekki hræddur við að deyja
En er Ómar hræddur við það að
deyja? „Nei, ég er ekki hræddur
við það að deyja. Maður náttúru-
lega veltir því fyrir sér hvað taki
við. En það kemur upp kvíði hjá
mér. Sérstaklega gagnvart fólkinu
mínu. Maður hugsar mikið um
sína nánustu og hvernig þeim
reiðir af,“ segir hann og það er
svo auðséð þegar litið er í augu
hans að fjölskyldan er honum
allt.
„Ég trúi á kraftaverk, ég er bara
þannig í eðli mínu og ég vonast
eftir því. Maður gerir það nátt-
úrulega alltaf,“ segir Ómar og
reisir sig við í rúminu.
Fjármálin fara úr skorðum
Þegar erfið veikindi taka sig upp
hjá fjölskyldumanni riðlast allt
heimilislíf og það er margt sem
fer úr skorðum. Yfirleitt eru það
fjármálin sem leikur fólk verst og
segir Ómar að það hafi gerst í
hans tilfelli. Þegar vinir hans hjá
Leikfélagi Keflavíkur fréttu af
því að Ómar hefði meiri áhyggj-
ur af fjármálum fjölskyldunnar
heldur en heilsu sinni ákváðu
þeir að standa fyrir styrktartón-
leikum sem fram fara í Stapanum
í kvöld. „Vinir mínir úr Leikfé-
laginu komu til mín og spurðu
hvort þau mættu setja upp þessa
tónleika. Ég er þeim ofsalega
þakklátur fyrir þetta framtak og
þetta hjálpar mér að takast á við
erfiðleikana á réttum sviðum.
Það skiptir svo miklu að þurfa
ekki að vera með áhyggjur af
einhverjum hlutum sem hægt er
að laga með veraldlegum aðferð-
um,“ segir Ómar og bætir við.
„Ég mæti á tónleikana þó ég
þurfi að vera í hjólastól og ég
hlakka mikið til.“
Stutt í húmorinn
Þeir sem þekkja Ómar, og þeir
eru margir, vita að það er aldrei
langt í húmorinn hjá honum.
Honum tekst alltaf með sinni ein-
stöku snilld að sjá spaugilegu
hliðarnar á heiminum. Sjálfur
segist Ómar nota húmorinn til að
hjálpa sér þó hann sé mikið veik-
ur. „Svona dagsdaglega hugsa ég
sem minnst um sjúkdóminn. Ég
reyni að hugsa um eitthvað allt
annað. Ég nota húmorinn mikið
og hugsa um eitthvað skemmti-
legt - reyni að lyfta mér upp,“
segir Ómar og lýsandi dæmi um
hans stundum kaldhæðna húmor
er þegar hann segir við blaða-
mann með bros á vör. „Ég er nú
ekki dauður ennþá!“
Ávallt Suðurnesjamaður
Hjartað í Ómari slær á Suður-
nesjum og hann ber miklar til-
finningar til Suðurnesjamanna.
Þegar hann bjó á Suðurnesjum
starfaði hann við ýmislegt. Með-
al annars starfaði hann í Fríhöfn-
inni, við skrifstofustörf í Garðin-
um, í Verslunarbankanum og sem
framkvæmdastjóri Golfklúbbs
Suðurnesja. Áður en veikindin
tóku sig upp voru þau hjónin að
huga að flutningi til Keflavíkur.
„Við vorum farin að skoða fast-
eignaauglýsingar í Víkurfréttum.
En veikindin hafa breytt þeim
áformum,“ segir Ómar en það
eru um 12 ár síðan hann fluttist
til Reykjavíkur frá Keflavík.
„Þetta átti aldrei að verða svona
langur tími hér í höfuðborginni.“
Ómar fæddist á Seyðisfirði og
árið 1960 fluttist hann í Garðinn
þar sem faðir hans var kennari
við Gerðaskóla. Hann bjó í Garð-
inum til 1975 þegar hann fluttist
til Keflavíkur. Ómar segist líta á
sig sem Suðurnesjamann og ekk-
ert annað. „Þó ég hafi flutt í KR
hverfið þá held ég ekki með KR.
Það skiptir mig ekki máli hvort
ég komi úr Garðinum eða Kefla-
vík. Ég er Suðurnesjamaður. Það
ætti náttúrulega að vera búið að
sameina þetta allt saman fyrir
löngu síðan og ég held ég sé bú-
inn að nefna þetta í hverri einustu
revíu.“
Lítur á sig sem sagnamann
Ómar hefur svo sannarlega skrif-
að sig inn í hjörtu Suðurnesja-
manna með revíunum sínum og
hafa þær fengið góða dóma. Í
revíunum nær Ómar fram
spaugilegu hliðunum á bæjarlíf-
inu á mjög eftirminnilegan hátt.
„Það eru mjög fáir sem hafa ver-
ið að skrifa revíur eins og ég hef
verið að gera. Það er alltof lítið
gert af revíum og það er svo oft
sem litið er niður á spaugið.
Margir líta á það sem annars
flokks list. Það er bara ekkert öll-
um gefið að koma spauginu nið-
ur á blað. Maður fer að ystu
mörkum í húmornum, en spaug
er ekkert fyndið þegar farið er að
særa fólk. Það er bara ekkert
fyndið og það geta allir gert það.
Spaug á ekki að særa,“ segir
Ómar og hann lítur á sig sem
sagnamann. „Mér finnst rosalega
gaman að heyra góðar sögur og
ég legg þær á minnið. Ég lít á
mig sem sagnamann frekar en
skáld. Ég hef aldrei gefið mig út
fyrir að vera skáld þó ég búi til
kvæði og skáldlegan texta,“ segir
hann en hann hefur samið þrjár
revíur fyrir Leikfélag Keflavíkur,
eitt leikrit fyrir Leikfélagið í
Garðinum og hann hefur ekki
tölu á þeim smáþáttum og skiss-
um sem hann hefur skrifað. Auk
þess segist hann eiga efni í að
minnsta kosti þrjár ljóðabækur.
Grín er dauðans alvara
Eins og áður segir er ekki langt í
húmorinn hjá Ómari sem hann
segist hafa í genunum og úr æsk-
unni. „Ef ég hefði ekki húmorinn
í lagi - þá væri þetta ofboðslega
erfitt. Ef maður hefur ekki skapið
í lagi þá held ég að það hefði svo
vond áhrif á sálina. Það myndi
draga úr manni ef maður legðist í
eymd og volæði. Það sagði ein-
hvern tíma góður maður: Grín er
dauðans alvara og þannig lít ég á
málin. Mér þykir svo margt fynd-
ið í lífinu og þannig hafa náttúru-
lega revíurnar orðið til,“ segir
Ómar og það er ekki hægt að
segja annað en að hann fylgist
vel með og sjái spaugilegu hlið-
arnar á málunum. „Þegar ég sá
þetta umdeilda skilti sem búið er
að koma fyrir við Reykjanes-
brautina þá fór ég að hugsa um af
hverju umhverfisstofnun fór að
væla yfir skiltinu. Ég meina,
þetta er auðn þarna og skiltið
fríkkar bara upp á umhverfið. Til
hvers er verið að væla út af
þessu,“ segir hann og finnst um-
fjöllunin um forsetamálið svo-
kallaða vera fyndið fyrir lífstíð
eins og hann orðar það.
Og hann hefur ákveðnar skoðanir
á bæjarmálunum. „Það er leiðin-
legt að horfa á hvernig verið er
að fara með Suðurnesin. Mér
finnst hálf fyndið að sjá hvernig
Akureyringarnir fá fjármagn til
sín á silfurfati og hvernig þing-
menn kjördæmisins bera fatið
fram og þurfa lítið fyrir því að
hafa. Vestfirðingarnir eru ekki
hálfdrættingar á við Akureyring-
ana. Miðað við ástandið á Suður-
nesjum þá finnst mér vanta að
fjármagn komi þangað. Það er
ekki lengur hægt að segja: Þið
hafið herinn. Meirihluti kvótans
er farinn og það er ekki lengur
hægt að segja svona. Það verður
að gera eitthvað róttækt. Þess er
ekki langt að bíða að það koma
fleiri körfuboltamenn til Kefla-
víkur heldur en hermenn,“ segir
Ómar og bætir því við að þetta
yrði fínt efni í nýja revíu.
Líknandi meðferð
Í dag hlýtur Ómar líknandi með-
ferð en markmiðið með henni er
Í kvöld verða haldnir styrktartónleikar í Stapa til stuðnings
og heiðurs Ómari Jóhannssyni, revíu- og leikritahöfundi
með meiru. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30. Miðasala
hefst kl. 19:30 í Stapa.
Dagskrá tónleikanna verður eftirfarandi:
* Flutt verða nokkur lög úr revíum Ómars
* Rúnar Júlíusson - trúbador
* Rúnar og Mæja Baldurs - söngur
* Gálan - trúbador
* Breiðbandið - hljómsveit
* Víkingarnir - söngsveit
* Kjartan Már - fiðluleikur
Aðgangseyrir á tónleikana verður að lágmarki
1000 krónur, en að öðru leiti verður aðgangseyrir frjáls.
Aðstandendur tónleikanna hvetja fólk til að mæta, bæði
þá sem þekkja Ómar en einnig hina sem þekkja verkin
hans og hafa haft skemmtan af.
Styrktartónleikar
í Stapa í kvöld!
Framhald á næstu síðu...
Ómar hefur samið og leikstýrt
revíum fyrir bæði leikfélögin í
Garði og Keflavík.
Ómar ásamt Ómari Inga barnabarni sínu og nafna. Ómar er
mikill áhugamaður um ensku knattspyrnuna og gallharður
stuðningsmaður Chelsea. Um síðustu helgi, þegar Chelsea var að
spila voru teknar myndir af nöfnunum í Chelsea búningum.
7. tbl. 2004 umbrot HEIMA 11.2.2004 12:43 Page 13