Víkurfréttir - 12.02.2004, Page 14
Intersport-deildin
KR-GRINDAVÍK
Grindvíkingar eiga enn eftir að
finna sig eftir jól þar sem þeir
hafa tapað þremur af fimm deild-
arleikjum og misst toppsætið í
hendur Snæfellinga.
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Grindvíkinga, segir leikinn gegn
KR vera mjög krefjandi verkefni.
„Þeir hafa verið mjög sterkir að
undanförnu og duttu í lukkupott-
inn með Kanann sem þeir fengu
eftir áramót og hefur verið alveg
óstöðvandi. Þannig að við þurf-
um að hafa okkur alla við. Páll
Axel er að koma aftur eftir
meiðsli og verður vonandi klár í
slaginn og það skiptir miklu máli
fyrir okkur.“
ÍR-NJARÐVÍK
Njarðvíkingar hafa haft góðan
tíma til að ná sér eftir tapið í bik-
arúrslitunum um síðustu helgi og
þurfa að fara að einbeita sér að
deildinni þar sem þeir hafa slegið
slöku við í síðustu leikjum. Í
kvöld mæta þeir ÍR-ingum sem
hafa hins vegar staðið sig með
mikilli prýði eftir áramót þar sem
þeir hafa unnið 4 leiki en bara
tapað einum sem var gegn Kefla-
vík í Sláturhúsinu. Þar með hafa
þeir híft sig upp af botni deildar-
innar og eru komnir með gott
forskot á Breiðablik, KFÍ og Þór.
Friðrik Ragnarsson, þjálfari, seg-
ir sína menn vera búna að sleikja
sárin síðan í bikarúrslitunum en
nú sé kominn tími á að bíta á
jaxlinn. „ÍR eru orðnir mjög
sterkir og við verðum að ná sigri
í þessum leik. Við megum alls
ekki við tapi.“
KEFLAVÍK-KFÍ
Nýkrýndir bikarmeistarar Kefla-
víkur fá KFÍ í heimsókn á morg-
un og er næsta auðvelt að lofa ör-
uggum heimasigri þar sem ekk-
ert íslenskt lið hefur sótt stig til
Keflavíkur í rúmlega 30 leiki. Þá
eru Ísfirðingar ekki manna lík-
legastir til að breyta út af þeim
vana þar sem þeir hafa verið við
botn deildarinnar í allan vetur.
Falur Harðarson, annar þjálfara
Keflavíkur, segir stemmninguna
góða í hópnum, en nú ríði á að ná
upp baráttunni eftir bikarsigur-
inn. „Það er oft erfitt eftir úrslita-
leiki að ná upp andanum, en við
höfum sett okkur það markmið
að vinna alla leiki sem eftir eru,
en munum taka einn leik fyrir í
einu.“
NJARÐVÍK-BREIÐABLIK
Njarðvíkingar ættu ekki að þurfa
að hafa mikið fyrir þessum sigri
þar sem Blikarnir hafa ekki verið
að gera miklar rósir að undan-
förnu og hafa aðeins unnið tvo af
síðustu tíu leikjum sínum sem
voru gegn botnliðum KFÍ og
Þórs.
Friðrik þjálfari sagði þó að hann
byggist ekki við auðveldum leik.
„Við erum þó á heimavelli sem
kemur okkur vel, en við verðum
að fara að bíta frá okkur. Við
erum búnir að setja okkur raun-
hæft markmið um að lenda í
þriðja eða fjórða sæti í deildinni
og treystum á að toppa í úrslita-
keppninni.“
TINDASTÓLL-KEFLAVÍK
Á sunnudaginn fara Keflvíkingar
í heimsókn á Sauðarkrók þar sem
þeir mæta Tindastóli. Stólarnir
hafa verið æði misjafnir í vetur
þar sem þeir hafa unnið nokkra
góða sigra, en dalað þess á milli.
Heimavöllur Tindastóls er þó
með þeim betri á landinu og þýð-
ir því lítið að gefa sér nokkuð
fyrirfram heldur verður að vinna
fyrir sigrunum. Keflvíkingar
setja stefnuna á að vera með sem
besta stöðu fyrir úrslitakeppnina,
en Falur Harðarson segir að þeir
verði að stóla á sjálfa sig og
vinna sína leiki þar sem ekki
þýði að setja traust sitt á að öðr-
um liðum fatist flugið.
GRINDAVÍK-ÞÓR ÞORL.
Þór frá Þorlákshöfn hóf feril sinn
í úrvalsdeild með látum þar sem
þeir unnu fyrstu tvo leiki sína, en
síðan hafa þeir tapað öllum 14
leikjum sínum og virðast dæmdir
til að falla niður í fyrstu deildina
á ný í vor. Grindvíkingar hafa yf-
irburði hvað varðar mannskap og
ættu ekki að lenda í vandræðum í
þessum leik sem fer fram á
mánudaginn.
Friðrik Ingi segir að Þór sé and-
stæðingur sem þeir taki alvar-
lega. „Það er nú þannig í þessu
að það er ekki á vísan að róa.
Hvert verkefni er krefjandi og
liðin hafa verið að breytast eftir
áramót og þeir hafa sjálfsagt tek-
ið framförum eftir því sem nýju
mennirnir koma betur inn í lið-
ið.“
1. deild kvenna
ÍS-NJARÐVÍK
Bæði þessi lið hafa dalað nokkuð
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
sportið
að honum líði eins vel og best
verður á kosið. „Ég fæ næringu í
æð ásamt smá deyfilyfi. Ég er
ekkert kvalinn sem stendur, hvað
sem síðar kann að verða. Ég bað
um að fá að vera heima því hér
líður mér vel. Ég reyni að borða
en ég held engu niðri. Það koma
hjúkrunarkonur kvölds og
morgna til að tengja mig við tæk-
ið,“ segir Ómar og bendir á tæki
sem stendur við hliðina á rúminu
hans.
Tekur einn dag í einu
Sögurnar hans Ómars eru margar
og hann er svo sannarlega mikill
sagnamaður. Það væri auðvelt að
gleyma sér í marga klukkutíma
við að hlusta á sögurnar hans. En
hann er orðinn þreyttur. „Ég tek
bara einn dag í einu, en lít alltaf
fram á veginn. Hef alla tíð gert
það og hætti því ekki. Maður
bíður bara eftir því sem verða
vill. Maður veit aldrei hvaða
stefnu þetta líf tekur, ég er nú bú-
inn að kynnast því.“
Ekki hræddur
við að deyja...
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
H
éð
in
n
Ei
rík
ss
on
Styrktarreikningur í Sparisjóðnum
Fyrir þá sem komast ekki á styrktartónleikana í Stapanum sem
haldnir verða í kvöld til styrktar Ómari er bent á reikning sem
stofnaður hefur verið í Sparisjóðnum í Keflavík: 1109-05-409040
Í dag hlýtur Ómar
líknandi meðferð en
markmiðið með
henni er að honum
líði eins vel og best
verður á kosið.
7. tbl. 2004 umbrot HEIMA 11.2.2004 12:43 Page 14