Víkurfréttir - 12.02.2004, Page 15
VÍKURFRÉTTIR I 7. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 12. FEBRÚAR 2004 I 15
HAFNARGÖTU 45 • KEFLAVÍK • SÍMI 421 3811
Láttu
sjónfræðing
okkar kanna
ástandið á
gleraugunum
þínum eða
linsum
– tímapantanir
í síma 421 3811
GLERAUGNAVERSLUN KEFLAVÍKUR
Óheppni Grindavíkurmeð erlenda leikmennheldur enn áfram þar
sem Stanley Blackmon fór af
landi brott á laugardag án þess
að láta nokkurn mann vita.
Hann hafði verið til reynslu hjá
liðinu í um vikutíma og hafði
m.a. leikið tvo leiki fyrir
Grindavík þar sem hann skor-
aði samtals 31 stig. Eftir að
Grindvíkingar létu Daniel
Trammel fara eftir jól hefur
gengið á ýmsu í þeirra málum
þar sem Timothy Szatko og
Blackmon hafa gert stuttan
stans og Derrick Stroud var
búinn að ganga frá öllum
pappírum þegar honum snerist
hugur og hann hætti við að
koma til landsins.
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Grindvíkinga, sagði í samtali við
Víkurfréttir að þeir hefðu gjarnan
viljað hafa Blackmon áfram, en
hann hafi á föstudaginn látið í
veðri vaka að hann vildi halda á
önnur mið. „Honum hafði geng-
ið ágætlega og okkur leist mjög
vel á hann, en nú þurfum við aft-
ur að fara að leita að öðrum leik-
manni. Það er mjög sérstakt að
tveir leikmenn skuli svíkja okkur
svona illa eins og Stroud og
Blackmon, en nú höldum við
bara áfram að leita og búumst
við því að fá nýjan leikmann til
reynslu í vikunni.“
að undanförnu þar sem ÍS hefur
gefið eftir í toppslagnum fyrir
Keflvíkingum og Njarðvík hefur
misst fjórða sætið í hendur
Grindvíkinga. Velgengni Njarð-
víkinga í þessum leik sem fer
fram í kvöld mun velta mikið á
því hvort Andrea Gaines sé kom-
inn í leikform aftur því án hennar
verður erfitt að sækja nokkuð til
ÍS, sem er þrátt fyrir allt með
afar sterkt lið með góða einstak-
linga innanborðs.
Jón Júlíus Árnason, þjálfari
Njarðvíkurstúlkna, segir liðið
koma vel undirbúið til leiksins
og muni leggja áherslu á að
reyna að stöðva Öldu Leif Jóns-
dóttur. „Ef það tekst er búið að
taka heilmikið af þeim. Annars
setjum við mikið traust á Andreu
og ég er að vona að hún fari með
sinn leik upp á næsta stig.“
ÍR-KEFLAVÍK
Keflavíkurstúlkur halda til
Reykjavíkur á mánudaginn og
munu þar etja kappi við botnlið
ÍR, sem missti Eplunus Brooks
frá sér nýlega, en Brooks var allt
í öllu í liðinu og má teljast næsta
víst að ÍR fari aftur niður um
deild í vor. Keflvíkingar eru hins
vegar í rymjandi formi og eru til
alls líklegar þessa stundina og
ættu að klára þennan leik án þess
að hafa mikið fyrir því.
Hjörtur Harðarson, þjálfari
Keflavíkur, segist vona að stelp-
urnar verði komnar niður á jörð-
ina eftir bikarsigurinn. „ÍR hefur
auðvitað veikst nokkuð eftir að
Kaninn fór frá þeim, en það get-
ur allt gerst í þessu. Þær eru með
baráttulið og við förum í þennan
leik til að vinna og verja toppsæt-
ið.“
NJARÐVÍK-GRINDAVÍK
Leikur Njarðvíkur og Grindavík-
ur á miðvikudaginn verður svo
sannarlega þess virði að fylgjast
með því þar eigast við liðin sem
eru að berjast um fjórða sæti
deildarinnar og sæti í úrslita-
keppninni. Grindvíkingar hafa
verið á góðri siglingu að undan-
förnu, en Njarðvíkingar hafa ver-
ið að dala, en eru þó sýnd veiði
en ekki gefin. Vörn Grindvík-
inga er föst fyrir og verður erfitt
fyrir Njarðvíkurstúlkur að vinna
á henni en allt verður lagt í söl-
urnar í þessum leik.
Jón Júlíus hjá Njarðvík á von á
hörkuleik. „Grindvíkingar hafa
sýnt það undanfarið að þær geta
unnið alla, en ég er sannfærður
um að mínar stelpur geta lagt
þær að velli ef þær eru með hug-
arfarið á réttum stað.“
Pétur Guðmundsson, þjálfari
Grindvíkinga, segir bjartsýni
ríkja í sínum herbúðum, en segir
sigur í leiknum mjög mikilvæg-
an. „Við ætlum okkur að tryggja
okkur sæti í úrslitunum og koma
inn í úrslitakeppnina á fleygiferð.
Við erum með það mikið betra
lið að við eigum að vinna ef
stelpurnar mæta til leiks með rétt
hugarfar og leggja sig fram.“
Helgin sem leið var við-burðarík í meira lagihjá yngri flokkum
knattspyrnuiðkenda.
Laugardaginn 7. febrúar var mik-
ið um að vera í Reykjaneshöll-
inni hjá knattspyrnudeild Kefla-
víkur. Árla dags fór fram Lýs-
ingarmót Keflavíkur í 5. flokki
pilta. Mótið fór í alla staði mjög
vel fram og voru keppendur og
áhorfendur ánægðir í mótslok.
Þátttökulið á mótinu voru; Kefla-
vík, Njarðvík, Grótta, Skalla-
grímur, ÍA og Þróttur R.
Spilaðir voru 60 leikir og í þeim
voru skoruð 238 mörk! Keppt
var í fjórum deildum og voru
sigurvegarar sem hér segir:
Argentínska deildin:
Njarðvík. Brasilíska deildin:
Grótta. Chile deildin: Keflavík.
Danska deildin: Keflavík. Að
móti loknu var verðlaunaafhend-
ing og pizzuveisla.
Að loknu 5. flokks mótinu hófst
7. flokks mót KB - Banka (7 og
8 ára).
Þátttökulið voru: Keflavík,
Njarðvík, Reynir, Víðir, ÍA,
Þróttur R. og Víkingur R. Spil-
aðir voru 60 leikir og í þeim voru
skoruð 149 mörk, hvert öðru
glæsilegra. Keppt var í 4 deild-
um eins og hjá 5. flokki en engir
sigurvegarar krýndir. Allir þátt-
takendur fengu verðlaunapening
að móti loknu ásamt ljúffengri
pizzu frá Langbest.
Mikill fjöldi fylgdist með mótun-
um og má áætla að um 1000
manns hafi verið í höllinni
þennan daginn.
Þá héldu Njarðvíkingar hraðmót
í 3. flokki karla s.l. sunnudag.
Þátttökulið voru: Keflavík,
Njarðvík, Reynir/Víðir, Hruna-
menn og Fram. Keflavíkurpiltar
sigruðu mótið með fullu húsi
stiga.
Kátir Keflvíkingar.
Alltaf fjör í yngri boltanum
Sigurlið Keflvíkinga í hraðmóti 3. flokks.
Blackmon stakk af!
7. tbl. 2004 umbrot HEIMA 11.2.2004 13:53 Page 15