Víkurfréttir - 12.02.2004, Page 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Frummælendur flytja erindi í 15 mín. hver:
Árni Sigfússon bæjarstjóri.
Upplýsingamiðstöðin og ferðamál í Reykjanesbæ.
Reynir Sveinsson formaður SSS.
Hvernig á að auka ferðamennsku á Suðurnesjum?
Ómar Smári Ármannsson lögreglumaður.
Gönguleiðir, saga og minjar.
Kjartan Lárusson ráðgjafi.
Markaðsskrifstofur ferðaþjónustunnar.
Anna Sverrisdóttir aðstoðarfrkvstj.
Bláa Lóninu. Uppbyggingin í Bláa Lóninu.
Fyrirspurnir í 20 mín.
Pallborð:
Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæ.
Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri Grindavík.
Sigurður Jónsson bæjarstjóri Garði.
Reynir Sveinsson forseti bæjarstjórnar Sandgerði.
Jón Gunnarsson alþm. og oddviti Vatnsleysustrandarhreppi.
Guðjón Guðmundsson framkvstj. SSS.
Ráðstefnustjórar: Kristján Pálsson formaður
Ferðamálasamtaka Suðurnesja
og Guðbjörg Jóhannsdóttir atvinnuráðgjafi SSS.
Ferðamálaráðstefna
Hvert stefnir í ferðaþjónustunni á Reykjanesi?
Ferðamálasamtök Suðurnesja og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum boða
til fundar um ferðamál föstudaginn 13. febrúar 2004.
Ráðstefnan verður haldin í Eldborg, Svartsengi, frá kl. 13.30 til kl. 17.00.
Allir velkomnir.
Fundarboðendur.
Anna Sverrisdóttir
aðstoðarframkvstj.
Ómar S. Ármannsson
lögreglumaður.
Reynir Sveinsson
formaður SSS.
Árni Sigfússon
bæjarstjóri.
M ig langar að faranokkrum orðum umferðaþjónustu á
Reykjanesi. Mín aðkoma að
ferðaþjónustu á Reykjanesi er
ný eða frá því um miðjan júni
2003.
Þá var ég ráðin í tímabundið starf
á Upplýsingamiðstöð Reykjaness
sem þá var opnuð. Hef ég á
þessum tíma orðið þess áskynja
að það skortir meiri samvinnu á
meðal sveitarstjórna og ferða-
þjónustuaðila á svæðinu og
stendur það ferðaþjónustunni á
Reykjanesi fyrir þrifum. Þrátt
fyrir mikið starf sem hefur verið
unnið hér á síðustu árum höfum
við dregist aftur úr í samkeppn-
inni um ferðamanninn.
Heildarmynd svæðisins er að
mínu mati ekki nógu skýr. Ferða-
þjónusta er ímynd sem þú selur
og það verða allir að standa sam-
an að baki þeirri ímynd svo að
hún sé sönn. Hvert sveitarfélag
þarf að skilgreina ímynd sína í
samræmi við heildarmyndina.
Galdurinn á bak við þetta er að
það þarf að vera náið samstarf og
samstaða allra aðila, hver einasti
maður þarf að vita hvert hlutverk
hans er og vinna sína vinnu í
samræmi við það. Allir þurfa að
stefna að því sama, sveitarstjórn-
ir jafnt og þjónustuaðilar.
Ferðaþjónusta er atvinnugrein
þar sem samvinna er undirstaða
alls.
Lausnina tel ég felast í samein-
uðu átaki allra, bæði þjónustuað-
ila/ferðaþjónustuaðila og sveitar-
stjórna í markaðssetningu og
kynningu Reykjaness í heild
sinni. Til þess að það verði að
veruleika, þarf að vera til vett-
vangur allra til að koma skoðun-
um sínum og hugmyndum á
framfæri. Sé ég fyrir mér Ferða-
málasamtök Suðurnesja sem
slíkan vettvang, þar sem sætu í
stjórn aðilar frá ferðaþjónustuað-
ilum og sveitarstjórnum óháð
pólitískum meirihluta sveitarfé-
laganna. Þar gæti hugsanlega
verið gerð stefnumörkun um
heildarmynd svæðisins sem væri
síðan unnið markvisst eftir.
Metnaður samtakanna þyrfti að
vera sá að það væri kappsmál
fyrirtækjanna að vilja taka þátt,
t.d. með góðri kynningu og auð-
veldu aðgengi að samtökunum,
reglulegu námskeiðahaldi,
áhugaverðum fyrirlestrum og fl.
Með slíkum vinnubrögðum tel
ég að megi lyfta grettistaki í
kynningu á svæðinu.
Eitt langar mig til að minnast á í
lokin, það er að til er einn vett-
vangur fyrir ferðaþjónustuaðila
sem aðra að koma skoðunum
sínum og hugmyndum á fram-
færi, það er vefsíðan
www.reykjanes.is, þetta er vef-
síða sem höfða á til allra sem
vilja kynna sér eitthvað um
Reykjanes. Síðan er í stöðugri
þróun og gaman væri að fá at-
hugasemdir um hvað mætti betur
fara á henni og hvað fólk er
ánægt með, og hvort fólk sé al-
mennt að skoða hana.
Rannveig L. Garðarsdóttir
verkefnisstjóri
Upplýsingamiðstöð Reykjaness
reykjanes@reykjanesbaer.is
Ferðaþjónusta á Reykjanesi
Lesendur og greinahöfunar athugið!
Talsvert magn aðsendra greina bíður birtingar
í þessari viku. Efnið má allt finna á vf.is
Greinarnar munu birtast í næstu tölublöðum.
7. tbl. 2004 umbrot HEIMA 11.2.2004 13:47 Page 20