Víkurfréttir - 24.06.2004, Page 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
HEILSA, SLÖKUN OG VELLÍÐAN
Íþróttanudd - Sænskt Líkamsnudd - Sjúkranudd - Slökunarnudd - Þrýstipunktanudd
➤ Tíunda hrefnan á vertíðinni kom á land í Sandgerði:
➤ Svæðisvinnumiðlun Suðurnesja:
J a k o b Á r n a s o n - s í m i 4 2 1 1 6 6 1
JAKOBS PELSAR
Á konan stórafmæli?
Dömur og herrar
Er ekki upplagt að gefa
henni Jakobspels?
Óviðunandi
þjónusta
- tilbúið
heilbrigðisvandamál!
E itt af þýðingarmestuheilbrigðismálumhvers sveitarfélags er
regluleg sorphirða. Fyrir
skömmu varð sú breyting á
að sorp er hirt þrisvar í
mánuði í stað þess að vera
hirt vikulega.
Viðunandi sorphirða var með
einu pennastriki gerð óviðun-
andi. Með þessari breytingu
hefur verið skapað heilbrigð-
isvandamál þar sem rotnunar-
fýla frá yfirfullum tunnum
laðar að flugur, mýs og rottur.
Ég fer hér með fram á að
þessi ótrúlega afturför verður
stöðvuð og að embættismenn
sveitarfélagsins sjái sóma
sinn í því að koma sorphirðu í
Reykjanesbæ aftur í viðun-
andi horf því þessi tilraun til
sparnaðar hefur greinilega
mistekist.
Leó M. Jónsson
Nesvegi 13. Höfnum
S væðisvinnumiðlun Suð-urnesja mun á næstunnistanda fyrir frumkvöðla-
námskeiði í samvinnu við 88-
húsið.
Námskeiðið er ætlað ungu fólki á
aldrinum 18-25 ára sem er í at-
vinnuleit og miðar að því að
breyta hugsunarhætti þátttakenda
með það að markmiði að efla
skapandi hugsun og sjá mögu-
leika þar sem þeir virtust ekki
vera til staðar.
María Rut Reynisdóttir er leið-
beinandi á námskeiðinu, en hún
er stjórnmálafræðingur að mennt
og hefur undanfarin tvö ár numið
frumkvöðlastarfsemi og stjórnun
við KaosPilot skólann í Árósum í
Danmörku.
„Þátttakendur fá verkefni til að
spreyta sig á þar sem þau munu
vinna í hópum auk þess sem þau
munu fá góða einkaþjálfun“,
sagði María Rut í samtali við
Víkurfréttir í dag. „Þar verður
lögð áhersla á að hugsa jákvætt
og á skapandi hátt. Þetta verður
eins konar innblástursnámskeið.“
Þátttakendur munu fá í hendur
verkefni t.d. frá bænum þar sem
þau kappkosta við að finna ný-
stárlegar lausnir. Þeir munu svo
kynna hugmyndir sínar fyrir við-
komandi aðilum.
Námskeiðið hefst á mánudaginn
og mun standa yfir í 4 vikur. Að
námskeiðinu loknu fá allir þátt-
takendur viðurkenningaskjal.
Kynningarfundur verður haldinn
í dag kl. 15 í 88-húsinu og vilja
aðstandendur hvetja alla til að
kynna sér þessa skemmtilegu ný-
breytni.
U nnið var við hvalskurð í Sandgerði sl. fös-tudag. Starfsmenn Hafrannsóknarstofn-unar skáru þar hval sem veiddist fyrr um
daginn, 10 sjómílur undan Stafnesi. Hrefnan,
rúmlega 7 metra langur tarfur, endaði inni á
gólfi í fiskvinnsluhúsi í Sandgerði, þar sem dýrið
var skorið niður og ísað í kör eftir að fjölmörg
sýni höfðu verið tekin úr skepnunni.
Kjötið af dýrinu var ennþá vel heitt þegar það var
skorið í Sandgerði og ljóst að þarna voru menn að
verki sem kunnu réttu handtökin. Á nokkrum mín-
útum var búið að hluta dýrið niður en áður var mál-
bandinu beitt óspart og allt skráð í sérstakar skýrsl-
ur. Meira að segja karlmennska þessa dýrs var
mæld og umfang hennar og lengd er af þeirri stærð-
argráðu að mennskir láta sig ekki einu sinni dreyma
um þannig stolt!
Á myndinni má sjá myndarlegt „fille“ sem varla
mundi rúmast á nokkru grilli og án efa þarf bæði
mikið af mjólk og pipar til að steikja.
Skotinn við Stafnes og skorinn í Sandgerði
Verðandi frum-
kvöðlar fá tilsögn24 TÍMA FRÉTTAVAKT898 2222
26. tbl. 2004 32 sidur umbrot 2 23.6.2004 14:37 Page 8