Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.06.2004, Page 14

Víkurfréttir - 24.06.2004, Page 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Þ ann 17. júní 2004 varmerkisdagur fyrir Suð-urnesjamenn en þá var haldin fyrsta háskólahátíð- in á svæðinu. 17 nemendur voru útskrif- aðir úr hjúkr- unar- og við- skiptafræði. Þessir nemend- ur hafa stundað nám sitt við Háskólann á Akur- eyri í gegnum fjarfundabúnað hjá Miðstöð símenntunar og haft þar námsaðstöðu. Fjarnám hjá Miðstöð símenntunar Miðstöð símenntunar á Suður- nesjum á sér breiðan bakgrunn í samfélaginu hér fyrir sunnan en það voru stéttarfélög, mennta- stofnanir, atvinnurekendur á svæðinu ásamt Sambandi sveit- arfélaga á Suðurnesjum sem stofnuðu Miðstöðina árið 1997. Fjarnám á háskólastigi hefur ver- ið hluti af starfssemi Miðstöðvar- innar frá upphafi. Haustið 1998 var farið af stað með tilrauna- verkefni um fjarnám frá Háskóla Íslands í samvinnu við Markaðs- og atvinnuskrifstofu Reykjanes- bæjar. Átta nemendur hófu nám við Háskóla Íslands í Ferðamála- fræði í gegnum fjarfundabúnað sem staðsettur var í Kjarna. Í tvö ár sóttu einstaklingar tíma í ein- stökum fögum bæði í íslensku og ferðamálafræðum. Það urðu ákveðin tímamót haust- ið 2000 þegar kennsla hófst frá Háskólanum á Akureyri í fjar- fundabúnaði til Suðurnesja í hjúkrunar- og viðskiptafræði. Þarna gafst nýr valkostur í há- skólamenntun fyrir einstaklinga sem vildu búa áfram á Suður- nesjum og höfðu etv. ekki greið- an aðgang til að stunda nám á öðrum stöðum. Þar með voru fleiri einstaklingar sem fengu tækifæri til að mennta sig án þess að flytja úr bæjarfélaginu eða ferðast nokkra klukkutíma á dag til að sækja skóla. Einnig gafst tækifæri fyrir einstaklinga að stunda háskólanám jafnhliða vinnu. Jafnframt því sem fjar- námið hófst fluttist Miðstöðin í gamla barnaskólann í Reykjanes- bæ og fengu háskólanemarnir þar góða námsaðstöðu. Fyrirtæki á svæðinu tóku virkan þátt í upp- byggingu háskólanámsins og gáfu myndarlegar gjafir sem hafa nýst nemendum vel í náminu. Óhætt er að segja að án velvildar þessarra aðila hefði verið erfitt og etv. ekki hægt að fara af stað með fjarnámið. Þessi fyrirtæki eiga hrós skilið fyrir að styðja við eflingu háskólanáms á svæðinu. Án samvinnu margra aðila s.s. Háskólans, bæjarfélaga, Mið- stöðvarinnar og fyrirtækja hefði ekki verið hægt að fara af stað með fjarnámið. Suðurnesjabúar geta verið stoltir af þeirri sam- stöðu sem skapaðist við að koma fjarnáminu á og hvernig til hefur tekist. Fjöldi nemenda og deildir Árið 2000 voru 36 nemendur sem hófu nám í hjúkrunar- og rekstrarfræði í gegnum fjarfunda- búnað Miðstöðvarinnar. Nem- endum sem stunda nám í fjar- fundabúnaði hjá Miðstöðinni hefur fjölgað og í viðbót við fyrr- nefndar greinar hafa verið teknir inn nemendur í grunnskóla- kennarann, leikskólakennarann og í auðlindadeild. Á síðustu önn stunduðu um 70 nemendur fjar- nám hjá Miðstöðinni. Næstu ár Gert er ráð fyrir að nýjir hópar hefji nám í haust á leikskólabraut og í viðskiptafræði. Samkvæmt samningi við Háskólann á Akur- eyri er gert ráð fyrir að hjúkrun- arnám muni hefjast að nýju haustið 2005 ef nægur fjöldi næst. Fjölmargir háskólar eru farnir að bjóða upp á fjarnám og ætti því að vera hægt að auka framboð á háskólakennslu hér syðra á næstu árum. Það er og verður eitt af verkefn- um Miðstöðvarinnar að hvetja og skapa aðstöðu til að sem flestir geti farið aftur í nám. Það hefur sýnt sig að aðstaða skiptir máli þegar hugað er að námi og er nauðsynlegt að hlúa vel að henni. Þar er ekki hægt að slá slöku við. Nú fjórum árum eftir að fjarnám- ið byrjaði í núverandi húsnæði er tækjabúnaður að ganga sitt síð- asta skeið. Mikilvægt er að Mið- stöðinni sé gert kleift að endur- nýja búnað eftir því sem tækn- inni fleygir fram. Því er afar brýnt að allir aðilar hvort sem eru stjórnvöld, menntastofnanir, bæj- arfélög eða fyrirtæki haldi áfram að styðja við bakið á fjarnáminu og auka þannig möguleika íbú- anna á því að mennta sig. Tak- mark okkar allra er að hækka menntunarstig hér á Suðurnesj- um og með samstilltu átaki mun það takast. Guðjónína Sæmundsdóttir, forstöðumaður Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. Tímamót í menntun á Suðurnesjum ➤ Guðjónína Sæmundsdóttir, forstöðumaður Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum skrifar: ➤ Háskólinn á Akureyri útskrifaði 17 nemendur úr fjarnámi á Suðurnesjum: S autján nemendur semstunduðu fjarnám viðHáskólann á Akureyri voru útskrifaður við hátíðlega athöfn í Keflavíkurkirkju á 17. júní. Var þetta í fyrsta sinn sem nemendur af háskólastigi voru útskrifaður á Suðurnesjum. Nemendurnir hafa stundað fjarnámið í gegnum fjarfunda- búnað sem staðsettur er í mið- stöð símenntunar, en nemend- urnir hafa námsaðstöðu hjá MSS. Níu nemendur útskrifuð- ust úr hjúkrunarfræði og 8 úr rekstrar- og viðskiptafræði. S ólveig Guðmundsdóttirer ein þeirra sem útskrif-aðist úr hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri við hátíðlega athöfn á þjóðhá- tíðardaginn. Sólveig segir að hún sé hæstánægð með námið en nám í hjúkrunarfræði tek- ur fjögur ár og sótti Sólveig kennslustundir í Miðstöð Sí- menntunar alla virka daga vikunnar. „Ég kunni vel við námið, en auðvitað voru erfið- leikar fyrsta árið þegar maður var að koma sér inn í hlutina,“ segir Sólveig. Hún er mjög ánægð með að geta stundað nám á Suðurnesjum. „Það er náttúrulega frábært að geta sótt nám hér á svæðinu, í stað þess að þurfa að fara til Reykjavíkur í tíma.“ Nemendur útskrifaðir í fyrsta sinn af háskólastigi á Suðurnesjum Frábært að geta sótt nám hér á svæðinu Aftur á skólabekk eftir 25 ár Nánar á vf.is Ávarp rektors Háskólans á Akureyri, sem flutt var við brautskráningu í Keflavíkurkirkju þann 17. júní, er að finna á vef Víkurfrétta, www.vf.is undir liðnum aðsent. Guðbjörg Sigurðardóttir flutti ávarp fyrir hönd nemenda og að lokinni útskriftinni bauð Samband sveitar- félaga á Suðurnesjum til samsætis. „Það var frúin sem ýtti mér út í þetta og hvatti mig til áfram, sagði Hlöðver Sig- urðsson sem lauk fjögurra ára námi á fjármálabraut. Hann sagði að námið hafi verið skemmtilegt en um leið krefjandi. „Þetta var mikil vinna og fórn en ekki bara á mig heldur líka á fjöl- skylduna og starfið“, en Hlöðver er fram- kvæmda- stjóri Sóln- ingar í Njarðvík. Hann var ekki alls ókunnur háskóla- námi þar sem hann hóf nám í efnafræði við HÍ 1976. „Það var skrítið að byrja aftur eftir 25 ára hlé enda var þetta allt öðruvísi. Sérstaklega að venjast því að vinna á tölvur sem var minn helsti þrösk- uldur“. Hlöðver sagðist hafa lært mikið á náminu og skaut ekki loku fyrir það að halda áfram á námsferlinum. „Ég ætla alla vegana að nýta mér þess sem ég hef aflað og svo skoðar maður bara framhald- ið“. 26. tbl. 2004 32 sidur umbrot 2 23.6.2004 14:16 Page 14

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.