Víkurfréttir - 18.11.2004, Page 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Útgefandi:
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamenn:
Auglýsingadeild:
Útlit, umbrot og prentvistun:
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Prentvinnsla:
Dagleg stafræn útgáfa:
Skrifstofa Víkurfrétta:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Jóhannes Kr. Kristjánsson, sími 421 0004, johannes@vf.is
Þorgils Jónsson (íþróttir), sími 421 0003, sport@vf.is
Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is
Jón Björn Ólafsson, sími 421 0014, jbo@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 421 0005, kolla@vf.is
Anita Hafdís Björnsdóttir, s: 421 0013, anita@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0011, steini@vf.is
Prentsmiðjan Oddi hf.
www.vf.is og vikurfrettir.is
Stefanía Jónsdóttir, sími 421 0012, stebba@vf.is
Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 1010, aldis@vf.is
8 RITSTJÓRN VÍKURFRÉTTA
Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga er opið til kl. 15
Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint samband
við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild.
Fréttavakt allan sólarhringinn er í síma 898 2222
8 KALLINN Á KASSANUM
8 VIÐHORFSKÖNNUN Á NETINU
MUNDI
8 MUNDI
Mér skilst að Davíð hafi
samið við Powell um að
hamborgarastaðurinn
Wendy's verði alla vega
áfram á Vellinum...
Spurt var:
Á að setja lög á kennara-
deiluna
Já sögðu 66%
Nei sögðu 34%
Spurning vikunnar
á vf.is er:
Ert þú tilbúin(n) að greiða
hóflegt gjald, t.d. 100 kr.
pr. ferð, sem myndi tryggja
að framkvæmdum við tvö-
földun Reykjanesbrautar
myndi ljúka strax?
Farðu inn á vef Víkurfrétta,
www.vf.is og taktu þátt í
vikulegri viðhorfskönnun.
Niðurstöður verða birtar í
Víkurfréttum vikulega, ásamt
næstu spurningu.
EKKI EITT einasta orð
um kennarana - þeir
eiga það ekki skilið eftir
aðgerðirnar á mánudag.
KALLINN ER hrika-
lega ánægður með fram-
kvæmdirnar á Suðurnesjum.
Þessa dagana er verið að
reisa Reykjanesvirkjun,
Íþróttaakademíu og
Stálpípuverksmiðjan í
Helguvík hefur verið
byggð mörgum sinnum í
huga Suðurnesjamanna.
Framkvæmdir sem þessar
skipta svæðið miklu
máli og framundan virð-
ist ekkert annað vera en
frekari uppbygging.
EN AFTUR að Stálpípuverk-
smiðjunni og draumnum
um hana. Lóðin í Helguvík
virðist vera tilbúin - en hvar
er fyrirtækið sem þar ætlaði
að byggja? Hvað er að frétta
af þessu máli? Það er ekkert
fjallað um stöðuna á verk-
efninu og satt best að segja
telur Kallinn að verkefnið sé
dottið upp fyrir. Kallinn spyr
hvernig hægt sé að draga málið
svona lengi? Var ekki búið að
vinna neina undirbúnings-
vinnu? Kallinn óskar svara frá
atvinnuráði Reykjanesbæjar!
FREYJA Sigurðardóttir er
einn glæsilegasti íþrótta-
maður Suðurnesja. Freyja
rótburstaði eigið Íslandsmet
og tók 89 armbeygjur.
Kallinn óskar Freyju til
hamingju með árangurinn.
DAVÍÐ HITTI Powell
í vikunni og sýnist
Kallinnum allt líta út fyrir
að herþoturnar verði áfram
á Keflavíkurflugvelli. Hvort
þar verði eitthvað meira
er Kallinn ekki viss um.
NÚ ER BARA um að gera
að senda Kallinum tilkynn-
ingar um áhugaverð mál sem
hann getur skrifað um.
Kveðja, kallinn@vf.is
EFTIR VAL KETILSSON
Vals
fimmtud
ags
Stálpípan dottin uppfyrir?
Ekki hundrað prósent viss
Ég hélt í sannleika sagt að menn væru að hlaupa apríl í sjónvarpinu, þegar greint var frá skilmálum sem lán-takendur hjá ónefndum banka þurfa að uppfylla til að
öðlast 100% lán vegna húsnæðiskaupa. Ég spurði frúna til vonar
og vara hvaða mánuður væri, enda var veðrið sérstaklega milt
og ljúft og meira að segja voru rósarunnarnir við stofuglugg-
ann enn í fullum blóma. Jæja, allavega nokkrar rósir! Ég fékk
einkennilegar augngotur og ákvað að ergja hana ekki meira í
skammdeginu. Í staðinn lygndi ég aftur augunum og lét fara vel
um mig í Lasy Boy stólnum frá Ægi í Kjarna. Ég er ekki frá því að
ég hafi dottið eitt augnablik inn í dulúð draumalandsins:
Ég er staddur í sparibankanum að fylla út lánsumsókn. Kona í hvítum sloppi, ein af þokkadísunum í þjónustu-deildinni og heitir Jóna, tekur vel á móti mér. Á blaðinu
fyrir framan mig eru ítarlegar spurningar um hvort ég hafi verið
veikur sl. mánuð, tekið lyfin mín, legið í leti, farið í verslunarferð
til útlanda og ef svo, þá hversu miklu ég hafi eytt! Að því loknu
er mældur í mér blóðþrýstingurinn. Magga, sem er líka í hvítum
sloppi, þó innst inni vilji hún vera í grænum, er alvön. Upp með
ermina, vinurinn!
Samkvæmt öllu geturðu fengið 4,2% vexti ef blóðþrýstingur mælist 120/80, en vaxtastigið hækkar strax við hærri blóð-þrýsting. Góð útkoma úr DNA greiningu þýðir að lántöku-
gjaldið er fellt niður og einnig stimpilgjaldið, ef maður þekkir
sýslumanninn þokkalega vel. Það eru þó litlar líkur á því síðast-
nefnda enda verið að gera fínt á Vatnsnesveginum. Ef maður
getur rakið ættir sínar til sparibankastjórans, lengist lánstíminn
en styttist að sama skapi eftir fjölda ættliða.
Þeir sem komast svo langt að ná í næsta herbergi eru öllu nær því að fá auramálin afgreidd, svo lengi sem þeir gefi bankanum blóð og pissi í glas. Allt í þágu áhættumatsins,
er sagt! Grétar rýnir í ættartréð úr Íslendingabók, í samráði
við Kára. Þegar greiðslumatið er fullfrágengið, lífeyrisspar-
naður, greiðsludreifing, kreditkort og líftrygging innsigluð
opnar Geirmundur sparikassann og út streyma KB krónur, ætt-
aðar frá útlöndum.
Ef verðbólgan fer af stað, þá er kallað á þig aftur í mælingu, til að sjá hvort þú getir staðið við afborganirnar. Þú verður e.t.v. settur á blóðþynningarlyf ef útlit er fyrir minni-
háttar verðbólgu. Allt að því hjartamagnýl. Svona bara til þess að
sjá hvort þú sért 80, 90 eða 100% maður. Alger skylda er að taka
púlsinn á ættmennum í næsta jólaboði. Sparibankinn auglýsir
að hann þurfi 70 lánþega á dag til að halda stofnfjáreigendum
glöðum...
Ég rumskaði í stólnum við hávaðann í húsfrúnni: ,,Hættu þessum helvítis hrotum, maður og drífðu þig út með ruslið!’’ Var sloppaatriðið þá bara draumur? Ég er ekki
alveg hundrað prósent viss!
Ágæti Kall
Sjaldan eða aldrei hefur nem-
endum og foreldrum verið sýnd
jafn mikil óvirðing og í þessari
viku. Ég er móðir tveggja barna
í Reykjanesbæ og er vægast sagt
fjúkandi reið yfir framkomu
kennara, sú litla samúð sem eftir
var fauk um níuleytið á mánu-
dagsmorguninn þegar ég var
kölluð í skólann til að sækja 6
ára gamalt barn mitt sem hafði
engan skilning á þessu uppá-
tæki. Kennarar hafa staðið á
Austurvelli og veifað banönum,
hvað segir það um þjóðfélagið
þegar tugir kennara taka sig
saman og sammælast um að til-
kynna sig veika eða bara mæta
alls ekki? Geta mín börn gert
ráð fyrir því ef þeim dettur í hug
að skrópa eða mæta of seint þá
sé það bara allt í lagi? Þú mætir
bara ef þú vilt og þarft ekki einu
sinni að láta vita! Á ég að segja
mínum börnum að í landinu séu
lög en þau þurfi bara að fara eftir
sumum þeirra? Þurfa þau endi-
lega að koma inn kl. 20 af því að
útivistarreglurnar segja það? Þarf
ég endilega að borga afnotagj-
öldin? Ég held að í staðinn fyrir
að benda á alla aðra og heimta
og hvika hvergi í kröfum sínum
ættu kennarar að líta í kringum
sig og hugsa um fleiri í kringum
sig, vera sanngjarnir og jafnvel
hugsa til kjarabarátta fyrri ára,
og átta sig kannski aðeins betur
á hversu miklum villigötum
þeir eru á. Ég er þó ekki að segja
að sökin sé aðeins þeirra, það
var á ábyrgð allra deiluaðila að
leysa þetta mál og sjá til þess
að svona færi ekki. Ef til vill
er kominn tími til að skipta út
fólkinu sem er í forystu? Best
væri að mínu mati að vinnutími
kennara væri frá kl. 8-16 eða 17
alveg eins og hjá okkur hinum
og við afnemum jóla-, vetrar- og
páskafrí, styttum sumarfrí í 5
vikur, höfum þetta bara alveg
eins og hjá flestum okkar sem
eru útivinnandi án þess að lengja
skólaárið, s.s. nemendur færu
í frí en kennarar væru áfram
við störf, vel undirbúnir þegar
krakkarnir kæmu úr fríi. Þá
hlytu kennarar að vera ánægðir,
eða hvað? Við kennara segi ég:
Skammist ykkar fyrir framkomu
ykkar og fordæmi síðastliðna
viku og hafið manndóm í ykkur
til að biðja nemendur ykkar
afsökunar, þeir eiga það skilið!
Brjáluð mamma í Reykjanesbæ
Já: 66%
Nei: 34%