Víkurfréttir - 18.11.2004, Blaðsíða 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Það var mikið fjör og eftirvænting hjá krökkunum sem töku þátt í hönnunark-epninni „Stíll 2004“ en keppnin fór fram
í Grunnskóla Grindavíkur á dögunum. Það eru
nemendur á elsta stigi Grunnskólanna sem hafa
rétt á þátttöku og er kepnin á vegum Samfés.
Keppnin byggist upp á fatahönnun, hárgreiðslu
og förðun og er viðfangsefnið í ár litir.
Ekki var hægt að sjá annað en að krakkarnir
skyldu vel hvers væri ætlast ti l af þeim því
þarna leit dagsins ljós mjög svo litskrúðugur
klæðn-aður, háralitur og förðun og greinilegt að
margir fengu útrás fyrir sköpunargleðina. Veitt
voru þrenn verðlaun en þau eru veitt fyrir hár
og skartgripi, fyrir förðun og svo fyrir heild-
arútlit en þau féllu í skaut hóps sem nefndi sig
„Gula línan“ sem samanstendur af þeim stöllum:
Elínborgu Ingvarsdóttir, Grétu Halldórsdóttur og
Hrönn Árnadóttur og var módelið þeirra Stefanía
Margeirsdóttir. Mun þessi hópur svo taka þátt
í aðalkeppninni sem haldin verður Íþróttahúsi
Digranesskóla 20. nóvember næstkomandi og
verður spennandi að fylgjast með gengi þeirra
þar. Hópurinn sem fékk verðlaun fyrir „hár og
skartgripi“ kallaði sig Litaf lækja og heita þær
Kristín Bessa Sævarsdóttir og Íris Jónsdóttir
og var módelið þeirra Ingunn Þorsteinsdóttir.
Verðlaun fyrir förðun fékk svo hópurinn Litir
náttúrunnar en þær heita Elka Mist Káradóttir
og Sólveig Dröfn Jónsdóttir og var módelið
þeirra Hrefna Harðardóttir. Einnig tóku nokkrir
strákar þátt í keppninni sem voru ansi skrautlegir
og frumlegir enda vöktu þeir mikla hrifningu
og kátínu áhorfenda en náðu þó ekki að fanga
athygli dómara keppninnar og hrepptu þar af
leiðandi ekkert verðlaunasæti en halda þó von-
andi áfram að vera skapandi í hugsun.
Grindvískafréttasíðan
U m s j ó n : Þ o r s t e i n n G u n n a r K r i s t j á n s s o n
Besta heildarútlit Einn frumlegur
Viðurkenning fyrir förðun Viðurkenning fyrir hár og skart Þessi var algjör engill!
Flottir strákar Frumlegur þessi...
Flottur Stíll í Grindavík
VF
-L
JÓ
SM
YN
D
IR
: Þ
O
RS
TE
IN
N
G
U
N
N
AR
K
RI
ST
JÁ
N
SS
O
N
Ka r l Á g ú s t Ú l f s s o n s k e m m t i k r a f t u r o g f r æ ð i m a ð u r í h ú m -
o r s k u m f r æ ð u m k o m á
aðalfund hjá Foreldrafélagi
G r u n n s k ó l a G r i n d a v í k u r
(FG G ) og gerði stor ma nd i
lukku.
Karl Ágúst kallar fyrirlestur
sinn „gildi þess að brosa“og er
á mjög faglegum nótum fjallað
um húmor frá ýmsum hliðum
eins og honum er einum lagið.
Eins og margir vita á húmor
sér margar hliðar og getur oft
verið vandmeðfarið hvernig
gríni er beitt og vitnaði Karl
Ágúst m.a. í tilvikið þegar þeir
Spaugstofumenn lentu í yfir-
heyrslu hjá rannsóknarlögreglu
vegna eins af grínþáttum þeirra.
En samkvæmt fræðum Karls
Ágústs er húmor bráðnauðsyn-
legur í mannlegum samskiptum
o g g e t u r l e y s t ú r ý m s u m
flækjum sem komið geta upp á
og getur jafnvel létt undir þegar
svartnætti, þunglyndi og sorg
hellist yfir fólk. Það má ljóst
vera að margir Grindvíkingar
misstu af frábærum fyrirlestri
og góðum fundi hjá FGG.
Karl Ágúst á fundi
hjá Foreldrafélaginu
8 Hönnunarkeppnin Stíll í Grunnskóla Grindavíkur:
VF-LJÓSMYNDIR: ÞORSTEINN GUNNAR KRISTJÁNSSON
Scott Ramsey knatt-s p y r n u m a ð u r ú r Kef lavík hefur játað
að hafa orðið danska liðs-
f o r i n g j a n u m F l e m i n g
Tolstrup að bana. Fyrstu
niðurstöður krufningar frá
þriðjudegi síðastliðnum
b e nd a t i l að ba n a me i n
Danans hafi verið heilabl-
æðing af völdum höggsins
sem Ramsey veitt Tolstrup
á skemmtistaðnum Traffic
síðustu helgi.
Banameinið
heilablæðing