Víkurfréttir - 18.11.2004, Side 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Laugardaginn 6. nóvember sl. var haldin f lugslysaæfing á Kef lavíkurf lugvelli. Æfingin var afrakstur nýs skipulags,
Flugslysaáætlunar fyrir Kef lavíkurf lugvöll
(FFK), sem unnið hefur verið að í f jögur
á r í s a m r áði v ið þá aði l a s em að hen n i
koma. Samkvæmt áætluninni er gert ráð
fyrir að almannavarnanefndirnar á svæð-
inu; á Keflavíkurflugvelli, í Grindavík og á
Suðurnesjum utan Grindavíkur, starfræki
eina yfirstjórn þegar um flugslys er að ræða.
Þessi stjórn er kölluð aðgerðastjórn og sitja í
henni fulltrúar f lugmálastjórnar, lögreglu,
slökkviliðs, Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja,
Rauðakrossdeildarinnar á Suðurnesjum og
svæðisstjórnar björgunarsveita. Aðrir aðilar
skipa tengiliði við aðgerðastjórnina eins og t.d.
Varnarliðið og það flugfélag sem við á í hverju
tilviki.
Fjölmiðlar fjölluðu nokkuð um æfinguna, en
auðvitað er í slíkri fréttaumfjöllun ekki hægt
að fjalla ítarlega um hvað liggur að baki slíkri
æfingu. Í fréttum kom þó fram að á áttunda
hundrað manns tók þátt í æfingunni. Verkefni
hjálparliða eru samkvæmt FFK í stórum dráttum
að bjarga fólki úr f lugvélarf laki, koma því í
hendur heilbrigðisstarfsmanna, hlúa að þeim
sem lentu í slysinu og öðrum þeim sem líða
vegna slyssins, rannsaka slysið og koma f lug-
starfsemi aftur í gang. Of langt mál yrði að telja
alla þá upp sem að æfingunni komu, en í megin-
atriðum voru það þessir:
* Sjálfboðaliðar sem léku fórnarlömb slyssins
* Björgunarsveitir af Suðurnesjum og höfuð-
borgarsvæðinu
* Flugmálastjórn
* Flugrekstraraðilar á Keflavíkurflugvelli
* Heilbrigðisstofnanir á Suðurnesjum og höfuð-
borgarsvæðinu
* Lögregla af Suðurnesjum og höfuðborgar-
svæðinu
* Rauðakrossdeildir af Suðurnesjum og höfuð-
borgarsvæðinu
* Slökkvi l ið Varnarliðsins og slökkvi l ið á
Suðurnesjum
* Aðrir, eins og t .d. tæknimenn, prestar,
Landhelgisgæslan, Vegagerðin, fjölmiðlar o.f l.
o.fl.
Eins og sjá má af þessari upptalningu kemur
mikill f jöldi að f lugslysaskipulaginu. Þarna
koma saman atvinnumenn og sjálf boðaliðar
og þótti það eftirtektarvert í æfingunni hversu
mikla virðingu menn báru fyrir störfum hvers
annars. Sjálf boðaliðasveitir björgunarsveit-
anna og Rauða krossins hafa sýnt það hér á
Suðurnesjum í gegnum árin hversu megnugar
þær eru við að takast á við stór og smá áföll sem
dunið hafa yfir. Fólkið í þessum sveitum er
samfélaginu okkar ómetanlegur styrkur.
Á engan er hallað þegar minnst er sérstak-
lega á þátt Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Stofnunin hefur verkskyldum að sinna á fjórum
stöðum. Starfsmenn hennar eru fyrstir á vettv-
ang og stjórna greiningu á slysstað. Þeir stjórna
söfnunarsvæði slasaðra þar sem jafnvægi er
komið á ástand fórnarlamba og þeir undirbúnir
fyrir f lutning. Fulltrúi þeirra gegnir lykilhlut-
verki í aðgerðastjórn við samhæfingu flutnings
fórnarlamba til Reykjavíkur. Á heilbrigðisstofn-
uninni sjálfri fer í gang hópslysaáætlun þar sem
hver starfsmaður er virkjaður þannig að hún
getur sinnt þeim hluta fórnarlamba sem henni
er ætlaður og gott betur. Stofnunin sýndi á
æfingunni að hún er einn af máttarstólpum
skipulagsins.
Við Suðurnesjamenn getum verið stoltir af því
fólki sem sinnir velferð okkar af áhuga og fag-
þekkingu. Ég vil færa því fyrir okkar hönd
kærar þakkir með ósk um áframhaldandi gott
samstarf.
Jón Eysteinsson, sýslumaður í Keflavík.
Getum verið stolt af því fólki sem sinnir
velferð okkar af áhuga og fagþekkingu
8 Jón Eysteinsson, sýslumaður í Keflavík, skrifar um flugslysaæfingu:
Áhugaverður fyrirlestur verður haldinn í Kirkjulundi laugardaginn 20. nóvember nk. kl. 10:15-12:00. Þá mun Marteinn Steinar Jónsson, sálfræðingur og sér-
fræðingur á sviði klínískrar sálfræði fjalla um samskipti
innan veggja heimilisins.
Þess má geta að klínískir sálfræðingar hafa sérhæft sig í orsaka-
greiningu og meðferð mannlegs vanda. Auk þess að stunda
klíníska sálfræði hefur Marteinn Steinar margra ára reynslu
af greiningarvinnu, ráðgjöf og meðferð fyrir einstaklinga, pör,
fjölskyldur og börn.
Umræður og léttur málsverður í hádeginu.
Fyrirlestur um samskipti
innan veggja heimilisins
Get ekki orða bundist varðandi skrif Gunnars Egils Sigurðssonar í síðasta tölublaði Víkurfrétta. Þannig var mál með vexti að maður þessi kom með Land Rover
jeppling 5 ára gamlan á sölu til okkar í vægast sagt ósöluhæfu
ástandi, bifreiðin var á handónýtum dekkjum með ónýtan
rafgeymi og brotin lykil. Í tví- eða þrígang þurftum við að gefa
bílnum start þegar viðskiptavinir vildu fá að reynsluaka bílnum
og í öll skiptin þurfti sölumaður frá okkur að aðstoða fólk til að
koma bílnum í gang. Og til þess þurfti að opna húddið á bílnum
og þegar kippt var í húddopnunina datt plasthlíf undan mæla-
borðinu og sér hver heilvita maður að ekki er allt með felldu
þegar maður heldur á hálfu mælaborði við þá einu aðgerð að
opna húdd á bíl. Varðandi lykilinn sem við eigum að hafa brotið
að þá var augljós sprunga í plasti lykilsins sem við einfaldlega
settum límband yfir til að reyna að halda lyklinum saman. Að
lokum vil ég ráðleggja Gunnari að reyna að koma bíl þessum í
söluhæft ástand áður en hann hyggst bjóða hann til sölu.
Ævar Ingólfsson, Toyota-salnum.
Í VÆGAST SAGT
ÓSÖLUHÆFU ÁSTANDI
8 Neytendamál í Víkurfréttum:
Til hamingju með 30 ára
afmælið elsku Nanna.
Það er ekki til betri vin-
kona eða systir og það er
engin systir betri en þú .
Þín uppáhaldssystir,
Ólöf Ásdís.