Víkurfréttir - 18.11.2004, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR I 47. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 18. NÓVEMBER 2004 I 21
Miðstöð símenntunar mun standa fyrir námskeiðum og fræðslu um efni sem tengist víkingatímabilinu á næstu misserum. Búið er að halda námskeið í
Víkingaklæðnaði þar sem Helga Ingólfsdóttir kenndi þátttak-
endum að gera kirtla í víkingastíl.
Árangurinn var glæsilegur eins og sjá má á myndinni. Dagana 23.
og 24. nóvember mun Gunnar Marel Eggertsson halda fyrirlestur
um víkingasiglingar þar sem farið verður yfir smíði víkingaskipa
og siglinga þeirra yfir Atlantshafið. Fyrirlesturinn verður haldinn
á VÍK að Hafnargötu 80, kl. 20:00 og eru allir velkomnir.
Víkingasiglingar hjá MSS
Móðir okkar fríða,
er á fimmtugsaldurinn að skríða.
Hratt yfir færast árin
og með þeim öll gráu hárin.
En það verður ekki mikið í því gert,
því mamma, þú ert frábær eins og þú ert.
Elsku mamma
Til hamingju með afmælið 20. nóvember.
Kveðja Lilja, Jóna, Íris og Lúther. Allir á Evrópuleikinn í Keflavík í kvöld!