Víkurfréttir - 18.11.2004, Síða 24
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Þessari spurningu er ekki auð-svarað, en ljóst er að innanlands-flugið mun fyrr eða síðar flytj-
ast ti l Kef lavíkur.
Þ e t t a v it a f l e s t i r
og eru f lestir sam-
m á l a u m a ð e i n -
ungis sé spurning
u m „ h v e n æ r “ e n
ek k i „hvor t“ inn-
anlandsf lugið f lyst
til Keflavík-urflug-
vallar. Reykjavíkur-borg hefur þegar
ma rk að þá stef nu að meg i nþor r i
starfsemi Reykjavíkurflugvallar flytj-
ist úr Vatnsmýrinni árið 2016 og að
fullu árið 2024. Þessi þróun gæti orðið
fyrr sé miðað við yfirlýsingar fulltrúa
Reykjavíkurborgar í fjölmiðlum sem
og annars staðar.
Eitt stærsta atvinnumál fyrir
Suðurnesin
Ég lít á það sem eitt af meginverkefnum
alþingismanna Suðurkjördæmis og
sveitarstjórnamanna á Suðurnesjum
að tryggja að innanlandsf lugið verði
f lutt t i l Kef lav íkur. Þó svo að v ið
Suðurnesjamenn lítum á þetta sem
augljóst og einfalt mál, þá er alls ekki
svo víðast hvar á landinu. T.d. var ein
af hugmyndum nefndar Reykjavík-
urborgar um staðsetningu fyrir nýjan
innanlandsflugvöll að slíkur flugvöllur
gæti veið staðsettur í Hvassahrauni
á Reykjanesi og var þetta talin góður
kostur af nefndarmönnum. Ég minni
Suðurnesjamenn á þetta vegna þess að
oft geta vitlausar hugmyndir orðið að
veruleika og er það skylda okkar að
grípa inn í og stöðva slíkt. Í þessu sam-
bandi má benda á að fyrirhuguð stað-
setning flugvallarins í Hvassahrauni er
einungis í 15 mínútna akstursfjárlægð
frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar, auk þess
sem staðsetningin er útilokuð vegna
flugöryggis.
Ég tel f lutning innanlandsf lugs ti l
Kef lav íkur raunhæfasta kost inn í
atvinnumálum hér á svæðinu til að
mæta þeim samdrætti sem verið hefur
í tengslum við starfsemi Varnarliðsins.
Auk þess er óþarfi er að reka tvo öfluga
og fullkomna f lugvelli nánast hlið við
hlið hér á Íslandi. Færa má fyrir því
margvísleg rök að innanlandsflugið eigi
að flytjast til Keflavíkur.
T.d. er ljóst að:
* rekstrarkostnaður Reykjavíkurf lug-
val lar nemur vel á f jórða hundrað
milljón króna á ári fyrir utan stofnkost-
nað og yfirstjórn. Auðvelt er að draga
þá ályktun að þessir fjármunir muni
sparast hjá hinu opinberra vegna flutn-
ingsins.
* nýting á Keflavíkurflugvelli mun auk-
ast til muna og þar með munu fjárfest-
ingar nýtast mun betur.
* M e ð s a m d r æ t t i á s t a r f s e m i
Varnarliðsins aukast líkurnar á því að
við þurfum sjálf að reka Kef lavíkur-
flugvöll og NATO greiði einhverskonar
aðstöðugjald með svipuðu hætti og
NATO gerir í Frankfurt í Þýskalandi.
* nýting á tvöfaldri Reykjanesbraut
mun aukast og því hægt að ljúka því
verkefni mun fyrr en ella.
* ýmis af leidd starfsemi mun eðli
málsins samkvæmt þurfa að f lytjast
til Suðurnesja svo sem eins og rekstur
L a nd helg i sgæ s lu n na r og rek s t u r
Flugmálastjórnar Íslands sem kostar
yfir 2 milljarða á ári.
* sjúkraflug mun beinast hingað og þar
með styrkja rekstur Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja sem mun aftur auka
nýtingu fjárfestingar ríkisins betur og
gera Heilbrigðisstofnunni betur kleift
að þjónusta íbúa svæðisins.
* umsvif í kringum einkaflug og ferju-
f lug mun færast á Suðurnesin með
margfeldisáhrifum o.s.frv.
* margir farþegar sem nýta sér innan-
landflug eru á leið erlendis en ekki til
Reykjavíkur.
Samgöngur milli höfuðborgar-
svæðisins og landsbyggðarinnar
Ljóst er að f lutningur innanlandsflugs
til Keflavíkur mun hafa veruleg áhrif á
samgöngur milli höfuðborgar og lands-
byggðar. Gagnrýnisraddir við þessu
munu vera háværar af hálfu lands-
byggðarfólks og ef laust mun lands-
byggðin hafa eitthvað til síns máls.
Helst munu heyrast raddir um það
að f lutningurinn muni drepa innan-
landsf lugið endanlega vegna þess að
fólk muni velja þann kostinn að aka
til Reykjavíkur í stað þess að f ljúga,
einkum vegna viðbótartíma sem við
bætist við ferðalagið að þurfa að aka
Reykjanesbrautina.
Ég tel hins vegar að rödd skynsem-
innar verði að ráða og vel sé hægt að
leysa þau vandkvæði sem fylgja því
að lenda á Miðnesheiðinni en ekki í
Vatnsmýrinni. Undirritaður er t.d.
einn þeirra sem sækir daglega vinnu
í miðborg Reykjavíkur og fullyrði ég
það að með bættum samgöngum sé
hægt að ná ferðatíma frá Miðnesheiði
í Vatnsmýri niður undir 30 mínútur.
Flöskuhálsinn á þessari leið er ekki
kaf linn frá Keflavík til Hafnarfjarðar.
Vandamálið liggur í samgönguhnútum
innan Stór- Reykjavíkursvæðisins.
Margar leiðir eru til að bæta úr þessum
f löskuhálsum, einn er t.d. sá að með
því að leggja Reykjavíkurflugvöll niður,
losnar verðmætasta og eftirsóttasta
byggingarland innan borgarmarkanna
sem leiðir til þéttingar byggðar sem
mun aftur létta verulega á helstu sam-
gönguæðum til miðborgar Reykjavíkur
og þar með draga úr f löskuhálsum.
Önnur leið til að bæta úr þessu væri t.d.
bein samgöngutenging frá Straumsvík
í Vat n s mý r i n a s e m k a l l a m æ t t i
„BESSASTAÐAHJÁLEIГ eða “hjá-
leið um Bessastaði. Vel mætti hugsa sér
jarðgöng og/eða brú yfir Skerjafjörðinn,
þá tel ég einnig koma til greina að slík
samgöngutenging væri gerð í einka-
framkvæmd og heimilt væri að inn-
heimta veggjald. Ég tel fullvíst að slík
samgöngutenging myndi borga sig og
stytta umferðartíma allverulega. Þá er
ljóst að verulega mætti bæta úr almenn-
ingssamgöngum frá Flugstöðinni beint
í Vatnsmýrina og ætti að vera tiltölulega
auðvelt að niðurgreiða þær með þeim
fjármunum sem sparast á ári hverju
við það að reka einungis einn flugvöll á
Suðvesturhorninu.
Flugöryggi, hvenær gerist fyrsta
slysið, á að bíða eftir því ?
Fleiri rök eru fyrir f lutning innan-
landf lugs ti l Kef lavíkur og má þar
helst nefna f lugöryggi. Verulega hefur
þrengt að Reykjavíkurflugvelli undan-
farin ár og er einungis spurning hvenær
fyrsta alvarlega slysið verður. Ég tel ekki
hyggilegt að bíða eftir því og vil þess
vegna f lýta f lutningi starfseminnar til
Kef lavíkur sem ég fullyrði að sé mun
öruggari f lugvöllur auk þess sem allar
öryggiskröfur eru mun strangari.
Stefna Framsóknarflokksins í
Suðurkjördæmi
Kjördæmisþing Framsóknarfélaganna
í S u ð u r k j ö r d æ m i v a r h a l d i ð á
Hvolsvel l i í Rangárþing i um síð-
ustu helgi. Þar sýndu þingfulltrúar
Framsóknarfélaganna mikinn kjark
og framsýni, og var m.a. eftirfarandi
ályktun samþykkt einróma eftir þó
nokkrar umræður bæði á þinginu og í
hópastarfi.
„Þingið skorar á samgöngumálaráð-
herra í samvinnu við hagsmunaað-
ila að hefja nú þegar vinnu við hag-
kvæmisathugun á því að f lytja innan-
landsf lug frá Reykjavíkurf lugvelli til
Keflavíkurflugvallar. Þingið telur líkur
til að með flutningi innanlandsflugs til
Keflavíkur megi ná verulegum sparnaði
fyrir þjóðfélagið ásamt því að byggja
upp atvinnulífið á Suðurnesjum. Þá má
ætla að flugöryggi aukist og að svigrúm
skapist til að lækka fargjöld í innan-
landsflugi.”
Það er ætlun mín og annarra Fram-
sók na r ma n na á Suðu r nes ju m að
fylgja þessari ályktun eftir á f lokks-
þingi Framsóknarf lokksins í febrúar
2005. Ég vil nota þetta tækifæri og
biðja Suðurnesjamenn um stuðning og
sýna það í verki með því að skrá sig í
Framsóknarflokkinn en það er hægt að
gera á vefslóðinni www.framsokn.is.
Eysteinn Jónsson
Íbúi í Reykjanesbæ og aðstoðar-
maður landbúnaðarráðherra
Hvenær flyst innan-
landsflug til Keflavíkur?
„Ég lít á það sem eitt af
meginverkefnum alþing-
ismanna Suðurkjördæmis
og sveitarstjórnamanna á
Suðurnesjum að tryggja
að innanlandsflugið verði
flutt til Keflavíkur.“
8 Eysteinn Jónsson skrifar um flutning innanlandsflugs frá Reykjavík til Keflavíkurflugvallar: