Víkurfréttir - 10.03.2005, Side 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Í nafni guðs
föður, sonar, og
heilagrar Jónínu.
8 Erlingur Jónsson og samtímamenn:
MUNDI
MUNDI
Siðmennt - félag um borgaralegar athafnir hefur skorað á menntamálayfirvöld að stöðva allt trúboð sem félagið sé stundað
víða í grunnskólum þar sem börn eru látin fara
með bænir á skólatíma. Þar sé gengið á svig við
aðalnámsskrá grunnskóla þar sem segir m.a.:
„Skólinn er fræðslustofnun en ekki trúboðs-
stofnun...”
Félagið vísar til orða Jónínu Guðmundsdóttur,
skólastjóra Holtaskóla, í viðtali á RÚV fyrir
skemmstu þar sem fram kemur að kennsla í fyrsta
tíma í bekkjum á yngri barna sviði hefjist á bæn.
Í samtali við Víkurfréttir sagði Jónína að hún
hafi fengið mikil viðbrögð við fréttinni, langflest
jákvæð en einungis eitt neikvætt. Þessi siður hafi
verið tekinn upp fyrir um sex árum þegar fyrir-
komulagi var breytt þannig að allir bekkir væru
í skólanum í því sjónarmiði að fá börnin til að
hugleiða og sýna samstöðu áður en skóladagurinn
hefst fyrir alvöru.
„Við vinnum mikið eftir Montessori-stefnunni
sem leggur áherslu á lífsgildi og kristna siðferði,
en við erum alls ekki að stunda einhverskonar
innrætingu. Börnin fara ekki alltaf með bænir því
stundum er farið með ljóð.”
Jónína segir að lokum að þau hyggist ekki breyta
út af þessum sið þrátt fyrir gagnrýnisraddir. „Við
munum ekki hætta nema okkur verði skipað að
gera svo og ég skil ekki með hvaða rökum ætti að
gera það.”
Hætta ekki með bænir í Holtaskóla
8 Reykjanesbær:
Laugardaginn 12. mars n.k. kl. 15.00 verður opnuð í sýningarsal
Listasafns Reykjanesbæjar
í Duushúsum sýningin Er-
lingur Jónsson og samtíma-
menn. Er ling ur Jóns son
varð fyrstur til að hljóta heið-
ursnafnbótina Listamaður
Keflavíkur sem nú kallast
Listamaður Reykjanesbæjar.
Erlingur þótti vel að þessum
titli kominn þar sem hann
hafði í áratugi unnið að list-
sköpun í þágu bæjarbúa,
bæði með eigin verkum og
ekki síður sem áhrifavaldur
ungra og upprennandi lista-
manna í bænum en hann
starfaði lengi sem kennari
við grunnskóla bæjarins.
Síðustu árin hefur Erlingur
lifað og starfað í Osló.
Á þessari sýningu er lögð
áhersla á að sýna lágmyndir
Erlings Jónssonar og brjóst-
myndir en þær hafa ekki
áður verið sýndar saman og
sumar aldrei sést opinberlega
fyrr. Einnig er persónuleika
Erlings gerð skil með ljós-
myndum og myndbandi, því
maðurinn sjálfur er lífsins
listaverk! Í sýningarskránni
segir Aðalsteinn Ingólfsson
listfræðingur m.a. um Erling:
„Þetta tvennt, innlifunarhæfi-
leikinn og bókmenntirnar, er
sennilega það sem sett hefur
ríkulegast mark á listsköpun
Erlings sjálfs. Hið fyrrnefnda
skýrir að hluta næmið sem
kemur fram í myndum af sam-
tímamönnum, meðvitundina
um að sérhver andlitsdráttur
skipti máli þegar móta skal
eftir lifandi andliti. Bókmennt-
irnar eru svo kveikjan að
mörgum og fjölbreytilegum
skúlptúrum listamannsins,
sem velunnarar hans í Kefla-
vík hafa sett upp í bæjarland-
inu á undanförnum árum. “
Í sýningarskránni er einnig
yfirlitskort af bænum þar sem
búið er að staðsetja verk Er-
lings og gestum þannig gert
auðveldara að skoða verkin í
eðlilegu umhverfi.
Auk verka Erlings Jónssonar
má sjá á sýningunni ljós-
myndir eftir Arnar Fells, Tom
Sandberg og Vigdis Hind-
hammer og einnig er mynd-
band eftir Viðar Oddgeirsson
sem m.a. er byggt á viðtali
Jónatans Garðarssonar við Er-
ling.
Sýningin er opin alla daga frá
kl. 13.00 - 17.30 og stendur til
24. apríl.
Tölvulistinn opnaði stór-glæsi lega versl un að Hafnargötu 90 í Reykja-
nesbæ á mánudag. Tölvulistinn
bauð upp á léttar veitingar og
var Árni Sigfússon, bæjarstjóri
á meðal góðra gesta.
Ásgeir G. Bjarnason, forstjóri
Tölvulistans taldi Reykjanesbæ
vera tilvalinn stað til að opna
tölvuverslun, „Við teljum að hér
sé vöntun og uppgangurinn í
Reykjanesbæ er mikill og Árni
Sigfússon hefur lyft bænum
upp,” Ásgeir segir að Tölvulist-
inn beiti sér fyrir lágu verði og
miklu úrvali á tölvum og tölvu-
búnaði ásamt því að vera með
öfluga menn á gólf inu til að
þjónusta viðskiptavini.
stuttar
F R É T T I R
Sex að il ar sóttu um stöðu skólastjóra Akur-skóla í Tjarnahverfi en
umsóknarfrestur rann út 1.
mars sl.
Þeir sem sóttu um eru: Bryn-
dís Björg Guðmundsdóttir,
Reykjanesbæ. Daði Viktor
Ingimundarson, Sel fossi.
Guðbjörg Málfríður Sveins-
dóttir, Reykjanesbæ, Helgi
Arnarson, Blönduósi, Jónína
Ágústsdóttir, Kópavogi og
Ragnheiður Ásta Magnús-
dóttir, Reykjanesbæ.
Unnið verður hæfnismat á
umsækjendum í samvinnu
við Kennaraháskólann og
það lagt fyrir bæjarráð Reykja-
nesbæjar sem mun taka end-
anlega ákvörðun um umsækj-
endur. Akurskóli tekur til
starfa næsta haust.
Ný sýning í Listasafni
Reykjanesbæjar
Árni Sigfússon, bæjar-stjóri Reykjanesbæjar, boðar til framkvæmda-
þings í Reykjanesbæ fimmtu-
daginn 10. mars 2005.
Á þinginu verða kynntar helstu
verkframkvæmdir sem fyrirhug-
aðar eru á árinu 2005 í landi
Reykjanesbæjar og á Keflavíkur-
flugvelli. Frá þessu er greint á
vef Reykjanesbæjar í dag.
Kynntar verða framkvæmdir á
vegum Reykjanesbæjar, Reykja-
neshafnar og Fasteignar hf.
auk þess sem fjallað verður um
framkvæmdir vegna alþjóðaflug-
vallar á Keflavíkurflugvelli, fram-
kvæmdir hjá Varnarliði, Hita-
veitu Suðurnesja og byggingar-
framkvæmdir í Tjarnahverfi og
víðar.
Þá hefur helstu verktökum á
svæðinu verði boðið að kynna
eigin framkvæmdir.
Þingið verður haldið á veitinga-
húsinu Ránni við Hafnargötu
kl. 16 - 19:00 og er öllum opið.
8 Reykjanesbær:
Boðað til framkvæmda-
þings á Ránni í kvöld
Tölvulistinn opnar
8 Ný tölvuverslun opnar í Reykjanesbæ:
Tölvulistamennirnir Ásgeir Bjarnason, Hafþór Helgason
og Bjarni Sigurðsson.
Árni Sigfússon að skoða tilboð
Tölvulistans ásamt Ásgeiri.
Fyrirhugað er að stofna svokallaða lávarða-deild í tengslum við
knattspyrnuna í Keflavík.
Allir fyrrum leikmenn og
stjórnarmenn í Keflavík fá
boð um að starfa með deild-
inni. Stofnfundur verður á
miðvikudag í næstu viku.
Guðjón Þórðarson, þjálfari
Keflavíkur, mun fara yfir
undirbúninginn fyrir sum-
arið á fundinum og margt
annað fróðlegt verður uppi
á borðum. Með lávarðadeild-
inni er hugmyndin að virkja
bæði fyrrum leikmenn og
stjórnarmenn til starfa og
finna þeim hlutverk í ört
stækkandi klúbbi, sem Kefla-
vík er að verða.
Lávarða-
deild stofnuð
í Keflavík
Sex vilja stýra
Akurskóla