Víkurfréttir - 10.03.2005, Page 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Teppi á stiga
Erna Alfreðsdóttir er um þessar mundir að hefja hringastarf og aðra starf-
semi í húsnæði Sálarrannsókn-
arfélags Suðurnesja. Erna, sem
hefur starfað að andlegum mál-
efnum í yfir 20 ár um allt land,
m.a. hjá SFRS, mun fyrst í stað
fara í gang með þróunarhringi
þar sem áherslan verður jafnt á
orkusöfnun, hugleiðslu sem og
að senda út orku þangað sem
hennar er þörf.
Næsta skref við það gæti verið
að þjálfa upp fólk sem hefur
miðilshæfileika, til dæmis lækna-
miðlun, skyggni, transmiðlun og
fleira. Hún mun auk þess standa
fyrir opnum húsum í húsnæði
SRFS sem hún áætlar að hafa
einu sinni á mánuði þar sem
fólk getur reynt sína hæfileika
og spáð í bolla eða spil og lesið
í skrift eða gert ýmislegt annað
sér til skemmtunar. Á þeim
verður gefin heilun og verður
enginn aðgangseyrir. Erna segist
ætla að reyna að koma til móts
við breiðan hóp fólks sem vill
slappa af en er ekki endilega í
andlegum hugleiðingum en vill
ná innri ró.
„Fólk er kannski að upplifa
streitu sem það getur unnið á og
reynt að losa sig við. Gott er að
jafna sig eftir veikindi og áföll
með því að ná innra jafnvægi
og auka orku. Það þarf ekki and-
lega hæfileika til að taka þátt.
Aðeins áhuga á að byggja upp
sinn innri mann.”
Áhuga söm um er bent á að
hafa samband við Ernu í síma
864-1873 og fara hringir í gang
um leið og næg þátttaka fæst.
Áhugaverð starfsemi í húsi SRFS
8 Hringastarf og fleira á vegum Ernu Alfreðsdóttur:
Nýverið var fjölskyldudagur í Njarðvíkur-skóla. Dagurinn var helgaður umhverf-inu og nemendur buðu einhverjum úr
fjölskyldu sinni, ömmu og afa eða mömmu og
pabba, að koma í heimsókn í skólann frá kl.
10-12. Gestirnir byrjuðu á því að hlýða á stutta
dagskrá á sal þar sem nokkrir nemendur sögðu
frá því sem verið er að vinna í umhverfismennt í
skólanum. Að dagskránni lokinni fór hópurinn
í kennslustofur og fylgdist með því sem nem-
endur voru að vinna.
Dagskráin á sal hófst á því að Eyjólfur Auðuns-
son, nemandi í 3. HR, sagði frá fernuskolun sem
nemendur og kennarar eru með í 3. bekk og er
þetta annað árið sem þau skola drykkjarfernur
og senda í endurvinnslu. Tvær stúlkur úr 7. GG,
þær Dagmar Traustadóttir og Dalrós Þórisdóttir,
sögðu frá endurvinnslu á pappír sem árgangurinn
þeirra er að vinna og var sýnd stuttmynd sem
tekin var í tíma hjá þeim. Björn Traustason í 10.
KA sagði frá þrifum á skólalóðinni sem nemendur
og kennarar sjá um. Farið er út og skólalóðin
þrifin einu sinni í viku og fer hver bekkur u.þ.b.
tvisvar á vetri í þetta verkefni. Þá kynnti Svavar
Skúli Jónsson, nemandi úr 7. GG, niðurstöður úr
umhverfiskönnun sem send var heim til foreldra
í síðustu viku en það voru nemendur úr 7. bekk
sem unnu úr niðurstöðunum.
Þess má geta að Njarðvíkurskóli er núna í Comeni-
usar verkefni sem er samstarfsverkefni skóla
í Evrópu og er þema verkefnisins „Umhverfis-
menntun” (Environmental Education) og tengist
þema fjölskyldudagsins því verkefni.
Mjög góð mæting var hjá fjölskyldum nemenda
og tókst dagurinn einstaklega vel.
Fjölskyldudagur helg-
aður umhverfinu
©
FRÉTTASÍMINN
SÓLARHRINGSVAKT
898 2222