Víkurfréttir - 09.01.2014, Blaðsíða 29
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 9. janúar 2014 29
Burt með
sykurpúkann!
Sennilega ertu búin að borða aðeins of mikið af sykri
síðustu vikur og þarft að hafa helling fyrir því að kom-
ast í gegnum daginn án þess að freistast í leyfarnar af
konfektinu eða sætmeti hér og þar. Óstjórnleg
sykurlöngun er eitthvað sem margir glíma við
daglega en það er mikilvægt fyrir heilsu okkar
að hafa þetta í jafnvægi og láta ekki einhver
vanabindandi efni stjórna líðan okkar. Vissu-
lega allt í góðu að fá sér eitthvað sætt við og við
svona á tyllidögum en nú er það bara harkan
sex og eina vitið að koma líkamanum aftur í
jafnvægi eftir allt sykurátið. Hér eru nokkrar
leiðir til að komast út úr sykurvítahringnum
svo þú getir átt sætari ár framundan;)
• Byrjaðu daginn á próteinríkri máltíð með
góðri fitu. T.d. eggjahræru með kókósolíu
eða ólífuolíu, eða næringarríkan hristing.
• Borðaðu reglulega yfir daginn. Ég veit þú veist þetta
en það skiptir bara svo miklu máli að hafa þetta á
tæru upp á að halda orku og blóðsykri stöðugum.
Hentar mörgum að hafa 3 aðal máltíðir og 2 holla
millibita.
• Bættu í fæðuna þína heilnæmum kryddum sem slá
á sykurlöngun og gefa náttúrulega sætu eins og kanil,
kardimommur, múskat, negul og vanillu.
• Hreyfðu þig! Hvaða hreyfing sem er mun auka
orkuna þína, minnka streitu og draga úr löngun
í sætindi.
• Núllstilltu líkamann með nokkra daga hreinsun á
léttu, hreinu og fersku mataræði.
• Passaðu upp á að fá nægileg vítamín hvort heldur
úr fæðunni eða í formi bætiefna eins og omega 3
fitur, fjölvítamín/steinefni, D3 vítamín. Annað sem er
gott til að stilla blóðsykur og sykurlöngun er t.d.
króm, grænt te, magnesíum, spirulina, lakkrísrótar
tuggutöflur (DGL) og trefjar eins og husk.
• Fáðu nægilegan svefn en þegar við erum vansvefta
eykst löngun okkar í sætindi og kolvetni.
• Ekki skipta yfir í gervisætuefni eins og aspartam og
acesulfame-k heldur notaðu frekar lágkolvetna sætu
efni eins og xylitol, erythriol, stevíu og súkkulaði sætt
með maltitoli.
• Þegar sykurlöngunin gerir vart við sig, gríptu þá epli
með lífrænu hnetusmjöri eða fáðu þér t.d. nokkrar
hnetur og 1-2 döðlur. Lífrænt dökkt 70-85%
súkkulaði er líka gott svona spari til að slá á sykur
löngunina.
• Lærðu að lesa utan á pakkningar til að sniðganga
inntöku á földum sykri.
• Finndu út hvað veldur þessari viðvarandi sykur
löngun hjá þér og taktu skref í að vinna í sjálfri/
sjálfum þér ef orsökin er tilfinningalegs eðlis.
Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.
www.facebook.com/grasalaeknir.is
www.pinterest.com/grasalaeknir
HEILSUHORNIÐ
ÁSDÍS
GRASALÆKNIR
SKRIFAR
- viðtal
Í upphafi hvers árs þegar jólahátíð-inni lýkur hugsa margir sér til
hreyfings og bættrar heilsu. Sagt er
að nú skuli skrefið tekið til fulls til
þess að koma sér í betra líkamlegt og
ekki síður andlegt form. Hjá Sport-
húsinu á Ásbrú hafa verið gerðar
töluverðar breytingar innanhúss
til að bæta aðstöðu enn frekar fyrir
viðskiptavini. „Við hjá Sporthúsinu
höfum lagt okkar af mörkum til þess
að fólk geti stundað heilsurækt sína
af kappi í aðstöðu sem við teljum vera
orðna eina þá bestu á landinu, enda á
Suðurnesjafólk skilið að rækta líkama
og sál í toppaðstöðu,“ segir Ari Elías-
son, framkvæmdastjóri Sporthússins
í Reykjanesbæ.
Góð hvatning frá
viðskiptavinum
Gríðarlega góð stemning hafi skapast í
stöðinni frá upphafi, þótt hún sé ekki
nema rétt rúmlega ársgömul. „Þau um-
mæli frá fólkinu okkar um að andrúms-
loftið, snyrtimennskan, hreinlætið,
framboð á tímum og námskeiðum séu
til fyrirmyndar hlýjar okkur um hjarta-
rætur og hvetja okkur enn frekar til að
halda ótrauð áfram á þeirri braut sem
við lögðum upp með. Við höfum viljað
veita góða þjónustu, snyrtilega og hlý-
lega stöð með góðri stemningu. Hún
kemur með fólkinu og það skapar and-
rúmsloftið,“ segir Ari.
Glæný tæki
Meðal breytinga sem ráðist var í sl.haust
nefnir Ari splunkunýjan spinningsal
með glæsilegu ljósa-„showi“ í takt við
tónlistina, nýja og bætta barnagæslu og
nýjan teygjusal, ásamt glæsilegum og
endurgerðum Crossfit-sal. Að sama
skapi var farið út í talsverðar fjárfest-
ingar síðastliðið vor þegar pantaður
var nýr tækjabúnaður frá Technogym á
Ítalíu sem Ari segir að sé stærsti og jafn-
framt þekktasti framleiðandi líkams-
ræktartækja í heiminum í dag. „Tækin
frá Technogym eru þekkt fyrir gæði,
hönnun og útlit og skora nánast undan-
tekningalaust best allra í samanburði á
líkamsræktartækjum. Ekki má gleyma
þeim tækja- og búnaðarkaupum sem
áttu sér stað þegar við hófum sjálf að
reka Crossfit-stöð undir nafninu Cross-
fit Suðurnes. Sá búnaður kemur að
miklu leyti frá Rouge í Bandaríkjunum,
þekktasta framleiðanda Crossfit-bún-
aðar í heiminum í dag.“
Aðgangur að báðum stöðvum
Allur þessi tækjabúnaður var tekinn í
notkun í október og nóvember síðast-
liðnum. „Það má því segja að þeir sem
stunda heilsu- og líkamsrækt í Sport-
húsinu fái allt það besta sem völ er á
í heiminum í dag,“ segir Ari og bætir
við að í Sporthúsinu í Kópavogi hafi á
sama tíma verið ráðist í stærstu fram-
kvæmdir og fjárfestingar frá upphafi
þegar megnið af tækjasal og upphit-
unarlínu voru endurnýjuð með tækjum
frá Technogym. Þess má geta að við-
skiptavinir Sporthússins fá aðgang að
báðum stöðvum fyrir eitt verð.
Starfsfólkið helsti
styrkleikinn
„Einn helsta styrkleika Sporthúss-
ins tel ég þó vera starfsfólkið sjálft en
innan veggja þess eru á fimmta tug
starfsmanna, hæfileikaríkir þjálfarar
og kennarar ásamt starfsmönnum í
móttöku, við ræstingar og barnagæslu
og hefur starfsandinn verið gríðarlega
góður allt frá upphafi,“ segir Ari. Mark-
mið Sporthússins sé að bjóða upp á
framúrskarandi aðstöðu til æfinga og
líkamsræktar.
Jákvætt og gott viðmót
Áherslan er lögð á jákvætt og gott við-
mót til viðskiptavinarins, tækjabúnaður
sé ávallt í lagi og gert við svo fljótt sem
unnt er þegar eitthvað bregst. Einnig
séu þrif tíð og góð svo stöðin sé ávallt
snyrtileg. Með þessu er lögð áhersla
á jákvæða upplifun viðskiptavinarins.
„Við hvetjum því alla til að kíkja við hjá
okkur í Sporthúsinu og skoða aðstöð-
una, prófa tíma og ræða við ráðgjafa
okkar um hvers er leitað að og hvers
er vænst. Við munum alveg örugglega
finna eitthvað við þitt hæfi eins og slag-
orð okkar segir „Sporthúsið, heilsurækt
fyrir alla.“
Fólkið skapar
stemninguna
n Sporthúsið byrjar nýtt ár af krafti:
Íbúðalánasjóður auglýsir eignir
til leigu á fasteignir.is og mbl.is
undir leiga.
Áhugasömum er bent á að kynna sér
úthlutunarreglur á vef Íbúðalánasjóðs.
ils.is/leiga
Hvernig sæki ég um leigueign
hjá Íbúðalánasjóði?
www.ils.is | Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími: 569 6900, 800 6969
Sólrisuhátíð
2014
Félag eldri borgara á Suðurnesjum og Kvenfélagið Hvöt halda Sólrisuhátíð
sunnudaginn 12. janúar kl. 15:00 í Samkomuhúsinu Sandgerði.
Fyrir Sólrisuhátíðina er messa kl. 14:00 í Safnaðarheimilinu Sandgerði.
Prestur séra Sigurður Grétar Sigurðsson.
Eldri borgarar hvattir til að mæta.