Víkurfréttir - 10.04.2014, Qupperneq 4
fimmtudagurinn 10. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR4
GARÐASEL
ATVINNA
Aðstoðarleikskólastjóri
Heilsuleikskólinn Garðasel auglýsir stöðu
aðstoðarleikskólastjóra lausa til eins árs frá 11. ágúst
2014 – 11. ágúst 2015.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtoga-
hæfileikum, jákvæðni, samskiptahæfni, þjónustulund
og áhuga á þróun nýjunga í leikskólastarfi.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og leyfisbréf
til að nota starfsheitið leikskólakennari.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf
sem leikskólakennari
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
• Góð tölvukunnáa
• Góð íslenskukunnáa
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og KÍ vegna Félags stjórnenda leikskóla.
Aðstoðarmatráður
Starfskraur óskast í 100% stöðu aðstoðarmatráðs
frá 1. júní 2014 eða eir samkomulagi.
Helstu verkefni:
• Að annast öll almenn störf í eldhúsi og þvoahúsi í
samvinnu við matráð og leikskólastjóra leikskólans.
Hæfniskröfur:
• Óskað er eir sjálfstæðum,
ábyrgum og jákvæðum einstaklingi
• Áhugi á að framreiða hollan og næringarríkan mat.
• Eigi auðvelt með samskipti og sé tilbúinn að takast á
við kreandi og skemmtilegt starf.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi
viðkomandi stéarfélags.
Umsóknarfrestur fyrir bæði störf
er til og með 28. apríl 2014.
Sækja skal um störfin á vef Reykjanesbæjar
www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Guðjónsdóir
leikskólastjóri í síma 420-3160 eða 896-5058
eða með tölvupósti á
ingibjorg.gudjonsdoir@leikskolinngardasel.is
EKUR ÞÚ VARLEGA?
30 km hámarkshraði er í
íbúðahverfum. Hvetjum íbúa til
að aka varlega
Sýnum tillitssemi
– ökum varlega.
30
Forsvarsmenn LS L egal í Reykjanesbæ hafa opnað fast-
eignasölu á skrifstofu stofunnar
að Hafnargötu 51-55 í Reykja-
nesbæ og hefur fasteignasalan
hlotið nafnið PRODOMO. Lilja
Valþórsdóttir mun gegna stöðu
sölumanns fasteigna í fullu starfi
og hefur hún þegar hafið störf.
Forsvarsmenn LS Legal og starfs-
menn PRODOMO telja að fram-
undan séu spennandi tímar í ís-
lensku atvinnulífi og á fasteigna-
markaðnum. Þá hafa þeir fulla trú
á því að það séu fjölbreytt tæki-
færi framundan í Reykjanesbæ og
á Suðurnesjum. Ljóst er að aukin
bjartsýni ríkir í atvinnulífinu á
Suðurnesjum.
Helstu starfssvið fasteignasölunnar
eru sala íbúðar- og atvinnuhús-
næðis, verðmöt á öllum tegundum
eigna, gerð leigusamninga og
önnur skjalagerð. Markmið starfs-
manna PRODOMO fasteignasölu
er að veita vandaða þjónustu á skil-
virkan hátt. Starfsmenn leggja sig
fram við að bregðast fljótt við fyrir-
spurnum viðskiptavina, þannig
að fasteignaviðskiptin geti gengið
hratt og örugglega fyrir sig.
LS Legal er alhliða ráðgjafarfyrir-
tæki í eigu Ásbjörns Jónssonar
hæstaréttarlögmanns og Unnars
Steins Bjarndal héraðsdómslög-
manns. Á lögfræðistofunni starfa
sjö lögfræðimenntaðir starfsmenn.
Stofan er rótgróin og hefur veitt
alla almenna lögmannsþjónustu
á Suðurnesjum og víðar síðustu
áratugi. LS Legal býður upp á lög-
fræðiþjónustu á breiðum grunni og
hafa lögmenn lögfræðistofunnar
mikla og haldbæra reynslu af
rekstri fasteignasölu og ráðgjafar á
sviði fasteignakauparéttar.
n Viðskipti og atvinnulíf:
Ný fasteignasala
í Reykjanesbæ
Lilja Valþórsdóttir er sölumaður á
fasteignasölunni Prodomo.
Fjölmennur félagsfundur samþykkti einróma tillögu
uppstillingarnefndar að fram-
boðslista Samfylkingarinnar og
óháðra í Reykjanesbæ. Hlut-
fall kynjanna er jafnt í efstu sex
sætum listans sem og á listanum
öllum. Framboðið er með lista-
bókstafinn S.
1. Friðjón Einarsson,
57 ára bæjarfulltrúi, ráðgjafi
og kennari, Suðurgötu 51
2. Guðný Birna Guðmunds-
dóttir,
32 ára hjúkrunarfræðingur
og mastersnemi, Vallarási 19
3. Eysteinn Eyjólfsson,
47 ára bæjarfulltrúi
og leiðbeinandi, Íshússtíg 6
4. Dagný Steinsdóttir,
52 ára framkvæmdastjóri,
Túngötu 18
5. Sigurrós Antonsdóttir,
33 ára hársnyrtimeistari,
Kirkjubraut 13
6. Gunnar Hörður Garðarsson,
25 ára stjórnmálafræðinemi,
Erlutjörn 2
7. Jón Haukur Hafsteinsson,
33 ára forstöðumaður sérdeildar
og stjórnunarfræðinemi,
Skógarbraut 928
8. Jóhanna Sigurbjörnsdóttir,
42 ára fótaaðgerðafræðingur,
Garðavegi 12
9. Ómar Jóhannsson,
33 ára þjálfari og nemi,
Brekkubraut 5
10. Katarzyna Jolanta Kraciuk,
47 ára kennari, Heiðarvegi 19a
11. Teitur Örlygsson,
47 ára verslunarmaður
og þjálfari, Melavegi 4
12. Heba Maren Sigurpálsdóttir,
31 árs þroskaþjálfi,
Heiðarholti 26a
13. Hinrik Hafsteinsson,
19 ára stúdent, Hraunsvegi 23
14. Valgeir Ólason,
42 ára vakt- og björgunarstjóri,
Reykjanesvegi 6
15. Elínborg Herbertsdóttir,
42 ára kennari, Álsvöllum 10
16. Elfa Hrund Guttormsdóttir,
42 ára félagsráðgjafi, Lágmóa 18
17. Arnbjörn H. Arnbjörnsson,
48 ára trésmíðameistari,
Melavegi 13
18. Margrét Blöndal,
43 ára hjúkrunarfræðingur,
Garðavegi 7
19. Vilborg Jónsdóttir,
32 ára þroskaþjálfi
og sérkennslustjóri, Hæðargötu 14
20. Bjarni Stefánsson,
41 árs málarameistari, Íshússtíg 14
21. Ásmundur Jónsson,
68 ára rafvirki, Hlíðarvegi 60
22. Erna Þórdís Guðmundsdóttir,
76 ára kennari, Hjallavegi 5c
n Listi Samfylkingarinnar
og óháðra í Reykjanesbæ:
S-listinn samþykktur á
fjölmennum félagsfundi
Átak í menntunar-
málum sjúkra-
flutningamanna
u Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja hefur í samstarfi við
nokkra aðila gert átak í mennt-
unarmálum sjúkraflutninga-
manna HSS í Grindavík og
sent þrjá sjúkraflutningamenn
í framhaldsnám í sjúkraflutn-
ingum.
Í tilkynningu frá HSS segir að
stofnunin vilji koma á fram-
færi þakklæti til þessara aðila
því mikilvægt er að sjúkraflutn-
ingamenn hafi kost á framhalds-
menntun sem þessari. Námið er
um 320 klst. og kennt í streymi
með verklegum staðarlotum.
Eftirtaldir aðilar, ásamt HSS,
styrktu verkefnið: Landssamband
Slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna, Sjómanna- og vélstjóra-
félag Grindavíkur, Stakkavík ehf,
Vísir hf og Þorbjörn hf.
Foreldrar ánægðir
með skólastjóra í
Reykjanesbæ
uForeldrar nemenda í Reykja-
nesbæ eru afar ánægðir með
skólastjórana sína. Þessar upp-
lýsingar koma fram í Skólavoginni
þar sem safnað er saman upp-
lýsingum um starf grunnskóla á
Íslandi.
Í Skólavoginni kemur fram
að skólastjórar í Reykjanesbæ
voru í 4. sæti af þeim 27 sveitar-
félögum sem tóku þátt í foreldra-
hluta könnunarinnar hvað varðar
ánægju með störf þeirra.
Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri er
að vonum ánægður með sitt fólk
og segir að vel hafi tekist til með
val á skólastjórum. „Skólafólkið
okkar hefur það að markmiði að
laða fram það besta í hverjum og
einum og búa nemendur undir
fullorðinsárin. Mat foreldra-
hópsins á störfum skólastjóranna
bendir eindregið til að það sé
þeim að takast,“ segir Gylfi Jón.
-fréttir pósturu vf@vf.is