Víkurfréttir - 10.04.2014, Síða 21
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 10. apríl 2014 21
-mannlíf pósturu vf@vf.is
www.vf.is LESTUR
VINSÆLASTI FRÉTTAMIÐILL Á SUÐURNESJUM
+ 83%
KEFLAVÍKURKIRKJA
DAGSKRÁ
Helgihald í Keflavíkurkirkju, í dymbilviku og á páskum
Pálmasunnudagur, 13. apríl, kl. 17:00 og kl. 20:00
Kór Keflavíkurkirkju ásamt hljómsveit og einsöngvurum flytur
Sálumessu Fauré undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Einnig verða
fluttar þekktar aríur, m.a. úr íslensku óperunni Ragnheiður sem slegið
hefur öll met. Miðaverð kr. 2000.- Kynnir er sr. Skúli S. Ólafsson.
Skírdagur 17. apríl, kl. 20:00
Kvöldmessa í kirkjunni. Lesið úr Passíusálmum Hallgríms Péturssonar.
Prestar eru sr. Erla Guðmundsdóttir og sr. Skúli S. Ólafsson.
Föstudagurinn langi 18. apríl, kl. 11:00
Guðsþjónusta. Lesið úr Passíusálmum Hallgríms Péturssonar og þeir
hugleiddir. Prestar eru sr. Erla Guðmundsdóttir og sr. Skúli S. Ólafsson.
Páskadagur, 20. apríl, kl. 8:00
Hátíðarguðsþjónusta á páskdag. Prestur er sr. Sigfús B. Ingvason.
Að guðsþjónustu lokinni verður messugestum boðið
í páskadögurð Kirkjulundi.
Annar í páskum, 21. apríl, kl. 11:00
Barnastund í Keflavíkurkirkju. Páskaguðspjallið lesið og góðir gestir
koma í heimsókn. Páskaeggjaleit! Sr. Erla Guðmundsdóttir leiðir
stundina ásamt Systu, Esther og Önnu Huldu.
Kór Keflavíkurkirkju syngur við guðsþjónustur
undir stjórn Arnórs Vilbergssonar, organista.
Keflavíkurkirkja
www.keflavikurkirkja.is
HVATNINGARVERÐLAUN FRÆÐSLURÁÐS
ER EKKI ÁSTÆÐA
TIL HRÓSA
Fræðsluráð Reykjanesbæjar kallar eir tilnefningum
til Hvatningarverðlauna fræðsluráðs.
Allir bæjarbúar geta tilnefnt einstaklinga eða
skólaverkefni til verðlaunanna. Tilnefna má þróunar-
og nýbreytniverkefni eða önnur vel unnin störf sem
þykja til fyrirmyndar í starfsemi skóla á yfirstandandi
skólaári.
Tekið er á móti tilnefningum á Fræðsluskrifstofu
Reykjanesbæjar fram til 2. maí 2014.
STYRKIR ÚR SKÓLAÞRÓUNARSJÓÐI
FRÆÐSLURÁÐS
MANNGILDISSJÓÐS
Hlutverk sjóðsins er að veita styrki og viðurkenningar
sem að stuðla að nýbreytni- og þróunarstarfi í leik-,
grunn- og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Styrkirnir
eru veiir í samráði við reglur fræðsluráðs um styrki
til þróunarverkefna frá 2006.
Sækja þarf um til Fræðsluskrifstofu
Reykjanesbæjar fyrir 2. maí 2014.
20% KYNNINGAR
AFSLÁTTUR
af öllum Sothys vörum
í Lyfju Keflavík 10. - 14. apríl.
Sérfræðingur verður með
kynningu föstudaginn 11. apríl.
Rakanærður líkami – falleg húð
Yndislegt body lotion sem gefur húðinni raka og
mýkt á einstakan hátt með langvarandi virkni.
Hentar vel fyrir erfið svæði eins
og olnboga, hné og fætur.
Almond seed extract og Shea butter sem nærir.
White lupine styrkir varnarfilmu líkamans.
LÍKAMSSKRÚBBUR
– FYLGIR FRÍTT MEÐ ÁSAMT GLÆSILEGRI TÖSKU
CHERRY BLOSSOM ILMKJARNAR NÆRA HÚÐINA OG VÉLRÆNU
SKRÚBBKORNIN SKILJA HÚÐINA EFTIR SILKIMJÚKA.
body lotion tvö orð
Setja punkt í lok
ensku setninganna
tveggja í lokin, annars
tengjast þær og verða
ruglingslegar. :)
FYRSTA HJÓLASTÓLA-
RÓLAN Á ÍSLANDI
Ný hjólastólaróla var tekin í notkun við 88 húsið í Reykjanesbæ sl. föstudag. Rólan er sú fyrsta sinnar
tegundar á Íslandi en hún er staðsett í ört vaxandi ung-
mennagarðinum við 88 Húsið við Hafnargötu.
Ástvaldur Ragnar Bjarnason fékk þann heiður að fara
fyrstu ferðina en hann skemmti sér konunglega. Boðið
var upp á grillaðar pylsur og Sóley Þrastardóttir formaður
Ungmennaráðsins flutti stutt ávarp sem og Árni Sigfússon
bæjarstjóri.
Sóley sagði að þeir sem væru bundnir við hjólastól ættu
að eiga sama rétt og aðrir á að skemmta sér. Það að róla
hafi hingað til ekki verið fyrsti kostur fyrir þá sem eru í
hjólastól, en með tilkomu þessarar rólu myndi það von-
andi breytast til hins betra. „Vonandi verður þessi nýja róla
mikið notuð og mín ósk er sú að það verði mjög skemmti-
legt að róla í henni,“ sagði Sóley við vígslu rólunnar.
Snædís Guðmundsdóttir og Óskar Haraldsson eru sigur-
vegarar í Superform-áskorun
2014. Þátttakendur æfa í Sport-
húsinu á Ásbrú. Árshátíð Super-
form var haldin sl. laugardags-
kvöld þar sem úrslitin voru birt.
Áskorunin hófst 15. janúar og stóð
yfir í 12 vikur eða þar til á laugar-
daginn. Árangurinn stóð ekki á
sér en keppendur undir leiðsögn
Sævars Inga Borgarssonar, eiganda
Superforms. Þátttakendur lögðu
mikið á sig og sneru við blaðinu
varðandi hollt mataræði og heil-
brigða hreyfingu. Allir keppendur
fengu góð ráð um mataræði
bæði í fyrirlestrarformi og ráð-
gjöf í gegnum tölvupóst. Að auki
var boðið var upp á fyrirlestur með
Hauki Inga Guðnasyni sem ráðlagði
um það hvernig er hægt að ná ár-
angri og setja sér raunhæf markmið.
Heildarverðmæti verðlauna í
keppninni voru hvorki meira né
minna en 1,3 milljónir króna en
veitt voru verðlaun fyrir efstu þrjú
sætin í karla- og kvennaflokki.
Eins og fyrr segir voru það Snæ-
dís Guðmundsdóttir og Óskar
Haraldsson sem enduðu í fyrsta
sæti en þau náðu hreint út sagt
frábærum árangri og fengu bæði
í sinn hlut 100.000 krónur í bein-
hörðum peningum ásamt veg-
legum gjafabréfum frá Superform,
Sporthúsinu, Nike, Sci Mx, Bláa
Lóninu, Sportvörum, Snyrti Gall-
erý og Cabo.
Í öðru sæti urðu Laufey Vil-
mundardóttir og Einar Orri Einars-
son og í þriðja sæti voru Harpa Rós
Drzymkovska og Guðni Sigurbjörn
Sigurðsson. Sannarlega glæsilegur
árangur hjá þeim og öllum hinum
keppendunum.
Eftir að úrslit voru kunngerð
ákváðu báðir sigurvegarar að
láta allt sitt verðlaunafé renna til
góðra málefna. Óskar Haraldsson
setti 100.000 krónur í söfnun fyrir
æskufélaga sinn Gylfa Örn Gylfa-
son en hann háir hetjulega baráttu
við hvítblæði um þessar mundir.
Snædís Guðmundsdóttir gerði
slíkt hið sama ásamt því að bæta
við öðru eins í nafni fyrirtækis
síns Dís íslenskrar hönnunar og
að auki gaf verslunin 10-11 inn-
eign að andvirði 100.000 krónur.
Snædís ákvað að færa Huldu Ósk
Jónsdóttur og Hirti Fjeldsted, vina-
fólki sínu, alla fjárhæðina en þau
eru foreldrar ungs drengs að nafni
Stefán Sölvi sem hefur undanfarið
glímt við erfið veikindi og dvelur
að mestu leyti inni á Barnaspítala
Hringsins. Rausnarlegt framtak hjá
þeim báðum.
Superform og Sporthúsið þakkar
öllum keppendum fyrir frábæra
keppni og öllum styrktaraðilum
fyrir veittan stuðning.
n Sigurvegarar í Superformi létu gott af sér leiða:
Gáfu verðlaunafé til góðra mála
Snædís Guðmundsdóttir og
Óskar Haraldsson eru sigurveg-
arar í Superform-áskorun 2014.