Víkurfréttir - 02.10.2014, Side 4
fimmtudagurinn 2. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR4
Félag áhugafólks og aðstandenda
Alzheimerssjúklinga og annarra með
skylda sjúkdóma
Kahúsa-spjall og pönnukökur!
Tenglar FAAS á Suðurnesjum halda 1. fræðslufund vetrarins, þriðjudaginn
7. október 2014, kl. 16:30 í Selinu, Vallarbraut 4 (Njarðvík), Reykjanesbæ.
Helga Hansdóttir öldrunarlæknir verður með fræðslu um byltur/dettni.
• Ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir minnisskerta og þeirra aðstandendur.
• Fyrirspurnir og umræður.
Allir velunnarar FAAS ásamt öllu áhugafólki um málefni félagsins velkomnir
Við hvetjum fólk til að láta sig málið varða, styðja þannig við félagið og fá
fræðslu um minnisskerðingu/heilbilun á heimaslóðum.
Kaveitingar á staðnum, enginn aðgangseyrir
en frjáls framlög upp í kostnað eru vel þegin.
Kveðja
FAAS tenglar á Suðurnesjum
Syngdu mig heim
Söngskemmtun í tilefni
aldarafmælis Jóns frá Ljárskógum
Grindavíkurkirkju
föstudaginn 3. okt. kl. 20:00
Einvala lið tónlistarmanna flytur mörg þekktustu
söngljóð skáldsins, þar á meðal nokkur
sem M.A.-kvartettinn gerði fræg á sínum tíma !
Einsöngslög, dúettar, kvartett og kór við dunandi undirspil
ásamt stiklum úr lífi þessa merka listamanns !
Fjölbreytt dagskrá þar sem sönggleðin ræður ríkjum
Aðgangseyrir kr. 2.000
Enginn posi – Allir velkomnir
Tillaga að
Aðalskipulagi Garðs 2013-2030
Bæjarstjórn hefur samþykkt að auglýsa tillögu að
Aðalskipulagi Garðs 2013-2030 í samræmi við 31.
gr. skipulagslaga nr. 123/2010, ásamt umhverfis-
skýrslu skv. 7. gr laga nr. 105/2006 um umhverfis-
mat áætlana.
Aðalskipulag sveitarfélagsins Garðs mótar stefnu um
landnotkun í sveitarfélaginu og reglur fyrir margvís-
lega málaflokka s.s. þróun íbúðarbyggðar, afmörkun
nýrra atvinnusvæða, samgöngur, legu raflína,
menningar- og náttúruvernd og óbyggð svæði.
Tillaga að aðalskipulagi, ásamt umhverfisskýrslu og
svörum við ábendingum sem komu fram á vinnslu-
stigi verður aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins,
www.svgardur.is, frá og með 2. október. Skipulags-
tillagan og umhverfisskýrsla verða til sýnis á bæjar-
rskrifstofum, Sunnubraut 4, 250 Garður og hjá
Skipulagsstofnun á Laugarvegi 166 í Reykjavík.
Ábendingar og athugasemdir við aðalskipulags-
tillögu skal senda til bæjarstjóra á netfangið
magnusstefansson@svgardur.is. Einnig er hægt að
senda athugasemdir merktar Aðalskipulag Garðs á
póstfangið, Sveitarfélagið Garður, Sunnubraut 4, 250
Garður.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér
með gefinn kostur á að gera athugasemdir til
mánudagsins 17. nóvember 2014.
Bæjarstjórn vonast til þess að sem flestir kynni sér
þá stefnumörkun um landnotkun sem unnin hefur
verið og þær áherslur og aðgerðir sem talið er
nauðsynlegt að ráðast í á næstu árum til að ná
settum markmiðum.
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri
-fréttir pósturu vf@vf.is
„Með því merkilegasta í þess-
ari bók er lögreglumannatalið,“
sagði Ólafur Helgi Kjartansson,
lögreglustjóri á Suðurnesjum,
eftir að hafa blaðað í gegnum
Sögu lögreglunnar í Keflavík
sem Jón Eysteinsson, fyrrverandi
sýslumaður, afhenti honum á
mánudag. Við afhendinguna voru
einnig staddir Jóhannes Jensson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn og Ás-
geir Eiríksson, fulltrúi sýslumanns.
Auk um 100 blaðsíðna lögreglu-
mannatals eru í bókinni reynslu-
sögur fjölda lögreglumanna úr
starfi, umfjöllun um sögu lög-
reglunnar og fjöldi mynda. Einar
Ingimundarson tók saman efni og
ritaði en fyrrum og núverandi fé-
lagar Lögreglufélags Suðurnesja
hafa verið í ritnefnd og hefur fé-
lagið stutt við útgáfu bókarinnar. Í
henni er rakin saga lögreglunnar í
Keflavík í máli og myndum. Hún
er góð heimild um líf og störf lög-
reglumanna og er þar að finna mik-
inn fróðleik um lögregluna áður
fyrr og fram til ársins 2007. Bókin
er í prentun en hægt er að panta
hana í forsölu á sérkjörum fram til
7. nóvember í gegnum netfangið
logreglufelag@dc.is en eftir það
verður hún aðeins dýrari. Kynning
á útgáfunni fer fram í Bókasafni
Reykjanesbæjar Tjarnargötu 12,
Reykjanesbæ, föstudaginn 7. nóv-
ember kl. 16-18 og eru lögreglu-
menn hvattir til að mæta.
■■ Afhentu Sögu lögreglunnar í Keflavík:
Lögreglumannatalið mikilvægt
F.v. Jón Eysteinsson, Ólafur Helgi Kjartansson,
Jón Eysteinsson og Ásgeir Eiríksson.
Vilja Landhelgisgæsluna til Reykjanesbæjar
– Þingmenn Suðurkjördæmis meðflutningsmenn tillögunar
Silja Dögg Gunnarsdóttir þingmaður Framsóknar-
flokks í Suðurkjördæmi leggur
í annað sinn fram þingsálykt-
unartillögu á Alþingi þess eðlis
að hefja undirbúning á flutningi
Landhelgisgæslunnar til Reykja-
nesbæjar. Meðflutningsmenn
með frumvarpinu eru einnig
Suðurnesjaþingmennirnir; Páll
Valur Björnsson, Páll Jóhann
Pálsson, Oddný G. Harðardóttir
og Ásmundur Friðriksson.
Að mati flutningsmanna fylgja
fjölmargir kostir því að flytja alla
starfsemi Landhelgisgæslunnar á
Suðurnesin, nánar tiltekið á ör-
yggissvæðið á Ásbrú, en nú þegar
er Landhelgisgæslan með um-
fangsmikla starfsemi á svæðinu
og þúsundir fermetra af vannýttu
húsnæði. Það fylgir því mikil hag-
ræðing að hafa alla starfsemina
á einum stað og þjónusta og
öryggi munu einnig aukast þar
sem viðbragðstími Landhelgis-
gæslunnar styttist með því að færa
alla starfsemi hennar. Einnig mun
flugfloti gæslunnar komast í gott
framtíðarhúsnæði sem uppfyllir
öryggisstaðla. Á öryggissvæðinu
á Keflavíkurflugvelli er til staðar
afar heppileg aðstaða fyrir alla
starfsemi Landhelgisgæslunnar
til framtíðar. Þar er húsnæði, flug-
brautir, góð hafnaraðstaða og
stoðkerfi sem fullnægir þörfum
Landhelgisgæslunnar að öllu leyti.
Enn fremur segir í tillögunni
að mannvirkin sem um ræðir á
öryggissvæðinu séu nú þegar í
rekstri Landhelgisgæslunnar og
með því að nýta þau betur undir
starfsemi gæslunnar næðist
mikil fjárhagsleg hagræðing fyrir
ríkið til lengri tíma. Óverulegar
breytingar þarf að gera á þessum
byggingum svo þær henti starf-
semi gæslunnar og í þessu sam-
hengi er rétt að benda á ábyrgð
ríkisins gagnvart Mannvirkjasjóði
Atlantshafsbandalagsins varðandi
viðhald og rekstur mannvirkj-
anna.
Í tilögunni er það nefnt að með
flutningi til Suðurnesja fengi
Landhelgisgæslan gott framtíðar-
húsnæði og stórbætta aðstöðu.
„Á svæðinu er einkar góð hafn-
araðstaða: Njarðvíkurhöfn, Kefla-
víkurhöfn og Helguvíkurhöfn.
Nú þegar ber Landhelgisgæslan
ábyrgð á rekstri hluta Helgu-
víkurhafnar, þ.e. þess hluta sem
er á eignaskrá Mannvirkjasjóðs
Atlantshafsbandalagsins. Úttekt
á nauðsynlegum breytingum á
hafnaraðstöðu liggur fyrir (2009).
Njarðvíkurhöfn getur strax tekið
við skipaflota Landhelgisgæsl-
unnar og Helguvíkurhöfn kemur
einnig til greina. Landhelgis-
gæslan rekur nú þegar öryggis-
svæðið á Keflavíkurflugvelli og
fer með framkvæmd öryggis- og
varnartengdra verkefna, auk þess
sem sprengjueyðingarsveitin
hefur aðstöðu á svæðinu. Þess má
einnig geta að sérsveit ríkislög-
reglustjóra er með aðstöðu á ör-
yggissvæðinu og hópar á vegum
lögreglu og Lögregluskólans æfa
þar. Með flutningi Landhelgis-
gæslunnar á Suðurnes mundi rík-
isvaldið gera Landhelgisgæsluna
að enn öflugri stofnun til hagsbóta
fyrir landsmenn alla, aðstaðan
fyrir starfsemina yrði mun betri
og tryggð til framtíðar og síðast
en ekki síst mundi flutningurinn
styðja við atvinnuuppbyggingu á
svæðinu öllu,“ segir í ályktunni.
Gatnagerðargjöld
lækki tímabundið
um 30%
■uUmhverfis- og skipulagsráð
Reykjanesbæjar leggur til að
á árinu 2015 verði gjaldskrá
gatnagerðargjalda í Reykja-
nesbæ lækkuð tímabundið um
30%. Þetta kem fram á síðasta
fundi nefndarinnar. Lækkun
gjaldanna gæti orðið til þess að
örva byggingaframkvæmdir í
Reykjanesbæ á nýjan leik.
Í tillögunni segir að lækkunin
gildi tímabundið á árinu 2015
en þá taki fyrri gjaldskrá gildi að
nýju nema annað verði ákveðið.
Umhverfis- og skipulagsráð sam-
þykkir tillöguna samhljóða og
vísar henni til umfjöllunar bæjar-
ráðs samhliða vinnu við fjár-
hagsáætlun 2015.
Grindvíkingar
hafna 62 metra
hárri vindmyllu
■uSkipulags- og umhverfisnefnd
Grindavíkur hefur hafnað erindi
um uppbyggingu vindmyllu á
Stað við Grindavík.
Í erindi frá Biokraft er lýst áætl-
unum um uppbyggingu vind-
myllu á Stað. Mastur vindmyll-
unnar er 40 m, þvermál blaða-
hrings er 44 m og mun mann-
virkið því ná 62 m hæð. Skipu-
lags- og umhverfisnefnd telur
mannvirkið ekki falla vel að þeirri
náttúru sem er í nágrenni Grinda-
víkur og hafnar erindinu.