Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 1
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• fimmtudagurinn 2. júní 2016 • 22. tölublað • 37. árgangur
SJÓNVARP
V ÍKURFRÉTTA
NÝR ÞÁTTUR
Í HVERRI
VIKU INNÁ
WWW.VF.IS/VEFTV
SJÁÐ’ANN Í
HÁSKERPU Í TÖLVUNNI,
SPJALDTÖLVUNNI
EÐA SÍMANUM ÞÍNUM!
Með blik í auga
haldið í sjötta sinn
■ Með blik í auga verður sett á svið í sjötta sinn á komandi
Ljósanótt í Reykjanesbæ. Þessi viðburður hefur fest sig í
sessi sem nokkurs konar upphaf Ljósanætur á hverju ári og
jafnframt sem lokaviðburður hátíðarinnar.
Með blik í auga VI verður eins og undanfarin ár með þrjár
sýningar. Annars vegar eina sýningu á miðvikudeginum fyrir
Ljósanótt og svo tvær sunnudagssýningar í lok Ljósanætur.
Ekki verður upplýst strax hvaða söngvarar taka þátt í upp-
færslunni, annað en að þeir eru úr íslenska tónlistarlands-
liðinu.
Fjölgar á biðlista eftir
félagslegu leiguhúsnæði
■ Um áramót voru 119 umsækjendur á biðlista í
Reykjanesbæ eftir félagslegu leiguhúsnæði, þar á bak-
við voru 93 börn. Í apríllok 2016 voru 125 umsækjendur
á biðlista, þar á bakvið voru 95 börn.
Farið var yfir málið á síðasta fundi Velferðarráðs Reykja-
nesbæjar. Ekki kemur fram í gögnum frá fundi ráðsins
hvernig bregðast skuli við stöðunni.
Þá var á fundinum rætt um húsnæðismál umsækjenda
með fíkni- og geðvanda og felur velferðarráð sviðsstjóra
að ræða við Hjálpræðisherinn og Rauða kross Íslands.
Tónlistarkennari í 53 ár
Ragnheiður Skúladóttir lét af störfum sem píanókennari við Tónlistarskólann í
Reykjanesbæ á dögunum eftir yfir hálfrar aldar starf. // 12-13
■ Hin 16 ára Anita Lind Daníelsdóttir fagnar hér sigurmarki sínu gegn Grindavík ásamt liðsfélögum sínum í ungu
og efnilegu Keflavikurliði. Keflvíkingar höfðu fram að þessum 1-0 sigri ekki unnið Grindavík í deildarleik á þessari
öld. Nánar er fjallað um leikinn í blaðinu ásamt umfjöllun um sama Suðurnesjaslaginn í karlaboltanum.
Fyrsti Keflavíkursigurinn á þessar öld
MESTA AUKNING GISTI-
NÁTTA Á SUÐURNESJUM
Aukning gistinátta erlendra ferðamanna, í þeirri upp-
sveiflu sem nú er, hefur hvergi á landinu verið meiri en
á Suðurnesjum. Þetta kom fram í erindi Gústafs Stein-
grímssonar, sérfræðings í Hagfræðideild Landsbankans,
á fundi bankans í Reykjanesbæ í síðustu viku. Fundurinn
bar yfirskriftina: Hvar liggja fjárfestingartækifæri á Íslandi?
Á tímabilinu 2010 til 2015 var aukning gistinátta erlendra
ferðamanna á Suðurnesjum 245 prósent. Landsmeðaltal
aukningar á tímabilinu var 161 prósent og er því ljóst að
aukning á Suðurnesjum er langt umfram það. Næst mest
var aukningin á Vesturlandi, eða 234 prósent. Minnst var
aukningin á Austurlandi, 138 prósent.
Herbergjum fjölgaði um allt land á milli áranna 2014 og
2015 en mest var aukningin á Vesturlandi, 96 prósent. Næst
mest var aukningin á Suðurnesjum eða 95 prósent.
Til samanburðar hefur erlendum ferðamönnum hér á landi
fjölgað um 175 prósent svo nýting herbergjanna hefur
batnað töluvert. Að sögn Gústafs hefur herbergjanýting
yfirleitt verið best á höfuðborgarsvæðinu og þannig er
staðan enn. Hvað nýtingu varðar, koma Suðurnesin vel út
og best af svæðum utan höfuðborgarsvæðisins og skiptir
nálægð við alþjóðaflugvöllinn miklu máli í því samhengi.
Hvunndagshetjan
Kristján varð internet-
stjarna á svipstundu
●● Kóreskir●ferðamenn●ánægðir●með●
úrlausn●sinna●mála●sem●tók●rúmlega●þrjá●
klukkutíma // 16