Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.06.2016, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 02.06.2016, Qupperneq 1
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M • fimmtudagurinn 2. júní 2016 • 22. tölublað • 37. árgangur SJÓNVARP V ÍKURFRÉTTA NÝR ÞÁTTUR Í HVERRI VIKU INNÁ WWW.VF.IS/VEFTV SJÁÐ’ANN Í HÁSKERPU Í TÖLVUNNI, SPJALDTÖLVUNNI EÐA SÍMANUM ÞÍNUM! Með blik í auga haldið í sjötta sinn ■ Með blik í auga verður sett á svið í sjötta sinn á komandi Ljósanótt í Reykjanesbæ. Þessi viðburður hefur fest sig í sessi sem nokkurs konar upphaf Ljósanætur á hverju ári og jafnframt sem lokaviðburður hátíðarinnar. Með blik í auga VI verður eins og undanfarin ár með þrjár sýningar. Annars vegar eina sýningu á miðvikudeginum fyrir Ljósanótt og svo tvær sunnudagssýningar í lok Ljósanætur. Ekki verður upplýst strax hvaða söngvarar taka þátt í upp- færslunni, annað en að þeir eru úr íslenska tónlistarlands- liðinu. Fjölgar á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði ■ Um áramót voru 119 umsækjendur á biðlista í Reykjanesbæ eftir félagslegu leiguhúsnæði, þar á bak- við voru 93 börn. Í apríllok 2016 voru 125 umsækjendur á biðlista, þar á bakvið voru 95 börn. Farið var yfir málið á síðasta fundi Velferðarráðs Reykja- nesbæjar. Ekki kemur fram í gögnum frá fundi ráðsins hvernig bregðast skuli við stöðunni. Þá var á fundinum rætt um húsnæðismál umsækjenda með fíkni- og geðvanda og felur velferðarráð sviðsstjóra að ræða við Hjálpræðisherinn og Rauða kross Íslands. Tónlistarkennari í 53 ár Ragnheiður Skúladóttir lét af störfum sem píanókennari við Tónlistarskólann í Reykjanesbæ á dögunum eftir yfir hálfrar aldar starf. // 12-13 ■ Hin 16 ára Anita Lind Daníelsdóttir fagnar hér sigurmarki sínu gegn Grindavík ásamt liðsfélögum sínum í ungu og efnilegu Keflavikurliði. Keflvíkingar höfðu fram að þessum 1-0 sigri ekki unnið Grindavík í deildarleik á þessari öld. Nánar er fjallað um leikinn í blaðinu ásamt umfjöllun um sama Suðurnesjaslaginn í karlaboltanum. Fyrsti Keflavíkursigurinn á þessar öld MESTA AUKNING GISTI- NÁTTA Á SUÐURNESJUM Aukning gistinátta erlendra ferðamanna, í þeirri upp- sveiflu sem nú er, hefur hvergi á landinu verið meiri en á Suðurnesjum. Þetta kom fram í erindi Gústafs Stein- grímssonar, sérfræðings í Hagfræðideild Landsbankans, á fundi bankans í Reykjanesbæ í síðustu viku. Fundurinn bar yfirskriftina: Hvar liggja fjárfestingartækifæri á Íslandi? Á tímabilinu 2010 til 2015 var aukning gistinátta erlendra ferðamanna á Suðurnesjum 245 prósent. Landsmeðaltal aukningar á tímabilinu var 161 prósent og er því ljóst að aukning á Suðurnesjum er langt umfram það. Næst mest var aukningin á Vesturlandi, eða 234 prósent. Minnst var aukningin á Austurlandi, 138 prósent. Herbergjum fjölgaði um allt land á milli áranna 2014 og 2015 en mest var aukningin á Vesturlandi, 96 prósent. Næst mest var aukningin á Suðurnesjum eða 95 prósent. Til samanburðar hefur erlendum ferðamönnum hér á landi fjölgað um 175 prósent svo nýting herbergjanna hefur batnað töluvert. Að sögn Gústafs hefur herbergjanýting yfirleitt verið best á höfuðborgarsvæðinu og þannig er staðan enn. Hvað nýtingu varðar, koma Suðurnesin vel út og best af svæðum utan höfuðborgarsvæðisins og skiptir nálægð við alþjóðaflugvöllinn miklu máli í því samhengi. Hvunndagshetjan Kristján varð internet- stjarna á svipstundu ●● Kóreskir●ferðamenn●ánægðir●með● úrlausn●sinna●mála●sem●tók●rúmlega●þrjá● klukkutíma // 16

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.