Víkurfréttir - 02.06.2016, Qupperneq 2
2 fimmtudagur 2. júní 2016VÍKURFRÉTTIR
Framkvæmdir v ið endurnýjun
norður-suður flugbrautar Keflavíkur-
flugvallar hófst á mánudag og verður
flugbrautin lokuð í sumar á meðan
framkvæmdir standa yfir. Á meðan
framkvæmdir standa yfir mun um-
ferð flugvallarins að mestu leyti fara
um austur-vestur flugbrautina. Íbúar
í grennd við aðflugslínu austur-vestur
flugbrautarinnar gætu því orðið varir
við aukna flugumferð yfir sín hverfi.
Nýlega hefur Isavia yfirfarið alla flug-
ferla í kringum Keflavíkurflugvöll og
gert sérstakar breytingar á þeim sem
miða að því að draga eins og kostur
er úr hljóðmengun í íbúabyggð í ná-
grenni flugvallarins.
ÍAV átti hagstæðasta tilboð í endur-
gerð flugbrauta Keflavíkurflugvallar.
Tilboð ÍAV hljóðaði upp á rúma 5,6
milljarða króna en tilboð Ístak var
rúmir 6,1 milljarður. Kostnaðará-
ætlun er rúmir 5,2 milljarðar.
Verkið felst í eftirfarandi verkþáttum:
Flugbraut 01/19 verður endurgerð
sumarið 2016 og flugbraut 11/29 sum-
arið 2017. Yfirborð flugbrauta verður
endurnýjað sem og rafmagns- og flug-
brautaljósakerfi. Einnig verður flug-
leiðsögubúnaður á öllum brautum
endurnýjaður.
Sumarið 2017 verður austur-vestur
brautin svo endurnýjuð og þá mun
megnið af flugumferðinni fara um
norður-suður brautina. Norður-suður
brautin er sú braut sem er mest notuð
að jafnaði, meðal annars vegna þess
að flugumferð um hana skapar minna
ónæði í íbúabyggð.
Verslanir, söluturnar og aðrir út-
sölustaðir á Suðurnesjum standa sig
flestir betur en áður þegar kemur að
því að koma í veg fyrir að ungmenni
undir 18 ára kaupi sígarettur hjá
þeim. Hins vegar féllu allt of margir á
prófinu þegar kom að sölu neftóbaks
til sama aldurshóps. Þetta er niður-
staða umfangsmikillar könnunar sem
Samsuð, Samtök félagsmiðstöðva á
Suðurnesjum, framkvæmdu 26. maí
sl., en á vegum þeirra voru sendir
14-16 ára unglingar á 24 útsölustaði.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
Samtökum félagsmiðstöðva á Suður-
nesjum.
Samkvæmt 8. gr. laga um tóbaksvarnir
frá 2002 kemur skýrt fram að tóbak
megi hvorki selja né afhenda einstakl-
ingum yngri en 18 ára. Bann þetta
skal auglýst með áberandi hætti þar
sem tóbak er selt. Einnig kemur fram
í sömu grein að þeir einir sem orðnir
eru 18 ára megi selja tóbak, en aldur
sölumanna er ekki kannaður í þessari
könnun.
Alls seldu aðeins fjórir útsölustaðir af
24 eða 17%, ungmennum undir lög-
aldri sígarettur, sem er með því besta
sem mælst hefur í sambærilegum
könnunum undanfarin ár. Í könnun
fyrir ári síðan voru 33% útsölustaða
sem féllu á prófinu.
Að þessu sinni voru 14-16 ára ungl-
ingarnir sem fóru inn í útsölustaðina
að þessu sinni jafnframt beðnir að
kaupa neftóbak. Alls seldu níu útsölu-
staðir af 24 nefbók til ungmennanna
eða hvorki meira né minna en 38%,
sem er verulegt áhyggjuefni. Þetta
er samskonar niðurstaða og fyrir ári
síðan.
Í kjölfar heimsóknar ungmennis í
verslun fór fulltrúi Samsuð inn í
verslun, skilaði vöru og tilkynnti
verslunarstjóra/eiganda verslunar að
könnun hafi farið fram og að starfs-
fólk verslunarinnar hafi annað hvort
gerst brotlegt á reglugerðum um sölu
tóbaks til ungmenna eða staðið sig vel
og farið að reglum í einu og öllu.
Samkvæmt reglugerð um smásölu
tóbaks fer heilbrigðisnefnd hvers land-
svæðis með leyfisveitingar og eftirlit á
smásölu tóbaks, en niðurstöður reglu-
legra kannanna Samsuð á sölu tóbaks
til ungmenna í grunnskólum, leiða
líkur að því að eftirlit með þeirri smá-
sölu sé verulega ábótavant, sérstaklega
þegar kemur að munntóbaki.
„Við skorum á Heilbrigðisnefnd
Suðurnesja að gera gangskör í að
verslunareigendur fari að lögum og
reglum um smásölu tóbaks og neftób-
aks. Könnunin var gerð með leyfi for-
ráðamanna þeirra sölustaða sem farið
var á og líklegt er að framhald verði á
tóbakssölukönnunum á vegum Sam-
suð,“ segir í tilkynningu samtakanna.
38% útsölustaða
brutu tóbaksvarnarlögEndurnýja flugbrautir fyrir 5,6 milljarða króna
●● Íbúar●í●Reykjanesbæ●verða●varir●við●aukna●flugumferð●yfir●byggð
Framkvæmdir
hafnar við
endurnýjun
norður-suður-
brautar Kefla-
víkurflugvallar.
Vf-mynd: Hilmar Bragi
STÖRF HJÁ IGS
Við bjóðum fjölbreytileg og skemmtileg störf í spennandi umhverfi flugheimsins.
IGS leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytileg og skemmtileg störf í farþegaafgreiðslu,
hlaðdeild og flugvélaræstingu.
Mikil áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum,
reglusemi, stundvísi, sveiganleika og árvekni. Unnið er á vöktum.
Umsækjendur þurfa að geta unnið út september og vera tilbúnir að sækja undirbúningsnámskeið.
Nánari upplýsingar um aldurstakmark og hæfniskröfur
FARÞEGAAFGREIÐSLA:
Starfið felst m.a. í innritun far-
þega og annarri tengdri þjónustu
við þá.
Lágmarksaldur 20 ár, stúdents-
próf æskilegt en ekki skilyrði, góð
tungumála -og tölvukunnátta
HLAÐDEILD:
Lágmarksaldur 19 ár, almenn
ökuréttindi, vinnuvélaréttindi
æskileg, íslenska og/eða ensku-
kunnátta
FLUGVÉLARÆSTING:
Lágmarksaldur 18 ár á árinu,
almenn ökuréttindi, íslenska og/
eða enskukunnátta
Umsóknum er skilað inn rafrænt á heimasíðu IGS sjá www.igs.is fyrir 10. júní.
Delta hefur flug til Minneapolis
Flugfélagið Delta hóf á föstudag flug
á milli Keflavíkurflugvallar og Min-
neapolis. Flugfélagið mun bjóða upp
á dagleg flug á milli áfangastaðanna
fram til 6. september, en þetta er annar
áfangastaður Delta frá Keflavíkurflug-
velli. Með fluginu til Minneapolis
flýgur Delta til New York JFK. Delta
hóf flug til Íslands árið 2011 og flaug
þá fimm sinnum í viku, en nú eru
flugin orðin 15 í hverri viku.
Flugfélögum sem fljúga til Keflavíkur-
flugvallar hefur fjölgað til muna á síð-
ustu árum. Í ár fljúga 11 félög þangað
yfir allt árið, þar á meðal Delta, en þau
voru aðeins tvö árið 2005, og í sumar
verða flugfélögin 25 og hafa aldrei
verið fleiri. Til samanburðar má nefna
að sumarið 2009 lentu flugvélar frá
sjö flugfélögum í reglubundnu flugi á
Keflavíkurflugvelli.
Isavia bauð farþegum upp á léttar veit-
ingar í tilefni dagsins.