Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 10
10 fimmtudagur 2. júní 2016VÍKURFRÉTTIR
Hinn 18 ára Bjarki Jóhannsson var
hlaðinn verðlaunum við útskrift Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja sem fram fór
á dögunum. Bjarki dúxaði enda með
glæsibrag þar sem hann var með 9,18
í lokaeinkunn á stúdentsprófi. Hann
bjóst ekki alveg við þessum góða ár-
angri og átti ekki von á að hann yrði
dúx. Þrátt fyrir hógværðina þá stóð
hann sig bara ansi vel. Á þremur árum
í FS náði Bjarki 20 sinnum á fá tíu í
einkunn.
Bjarni ólst upp á Eskifirði og fluttist til
Reykjanesbæjar eftir að grunnskóla-
göngu lauk árið 2013. Bjarki hefur
þegar byrjað að feta framabrautina
en hann lauk í fyrra einkaflugmanns-
námi. Hann stefnir statt og stöðugt að
því að verða atvinnuflugmaður enda
hefur það verið draumur hans síðan
hann var smá polli.
Stútendsprófið tók Bjarki á þremur
árum samhliða einkaflugmannsnám-
inu. Eina önnina tók hann 41 einingu
þá í fluginu og FS. Þá var lítill tími
fyrir annað en námið að sögn Bjarka.
Hann hefur alltaf átt gott með að læra
og hlaut á sínum tíma viðurkenningu
fyrir námsárangur þegar hann klár-
aði grunnskóla. Hann á auðvelt með
að muna hlutina. Hann er fljótur að
læra hlutina þannig að hann þarf ekki
að liggja lengi yfir bókunum. Hann
er hvað sterkastur í raungreinum en
viðurkennir sjálfur að íslenskuna megi
bæta. Bjarki lærði á píanó og gítar á
sínum yngri árum auk þess sem hann
æfði fótbolta. Nú er það hins vegar
flugið sem er aðaláhugamálið.
„Það er skrítið að vera búinn með
skólann en samt góð tilfinning,“ segir
Bjarki léttur í spjalli við blaðamann
Víkurfrétta. Hann er þegar kominn
í sumarvinnu en hann verður starfs-
maður á bílaleigu í Flugstöðinni í
sumar. Næsta haust er svo stefnan
tekin rakleiðis á atvinnuflugmann-
inn og varð flugakademía Keilis fyrir
valinu. „Ég byrja bara strax í haust og
ætla reyna að klára eins fljótt og hægt
er svo ég komist í vinnu sem flug-
maður sem fyrst,“ segir Bjarki. Þrátt
fyrir að vera gríðarlega sterkur náms-
maður þá heillar háskólalífið Bjarka
ekki. Hann segist ekki sjá það fyrir sér
og stefnir ótrauður á flugið.
Mikill stuðningur frá fjölskyldunni
Útskriftarveislan var vegleg og komu
fjölmargir ættingjar að austan og
fögnuðu áfanganum með Bjarka.
Amma og afi voru einstaklega stolt af
stráknum en Bjarki segir að afi sinn
hafi verið duglegur að spyrja hann
um námið. „Mamma og pabbi voru
alltaf að fylgjast með lærdómnum
mínum og að passa upp á að ég lærði
heima og svona. Síðan var afi sem býr
á Eskifirði alltaf að fylgjast með mér.
Hann hringdi oft og spurði hvernig
mér gengi í skólanum. Hann táraðist
held ég gamli maðurinn þegar ég fékk
öll verðlaunin. Svo í veislunni styrktu
þau amma mig með mjög veglegri
gjöf sem mun nýtast vel í flugnáminu.
Þannig að fjölskyldan á miklar þakkir
fyrir stuðninginn og á stóran part í
þessu,“ segir Bjarki.
Hefði viljað vera busaður
Þrátt fyrir að hafa fyrst haft áhuga
á því að stunda nám í Menntaskól-
anum í Reykjavík eða í Verslunar-
skólanum ákvað Bjarki að velja FS.
Bjarka líkaði lífið mjög vel í FS. „Þetta
var bara geggjað gaman. Félagslífið er
búið að þróast mjög mikið síðan ég
byrjaði,“ en Bjarki tók virkan þátt í því
öllu saman. Í vetur var hann fyrirliði
græna liðsins í starfshlaupinu ásamt
Gunnari Degi Jónssyni. „Við lögðum
gríðarlega vinnu í þetta sem skilaði sér
því við unnum hlaupið en þetta var
í fyrsta sinn í mjög langan tíma sem
græna liðið vann.“
Árgangur Bjarka var sá fyrsti í FS sem
fór ekki í gegnum hina alræmdu busa-
vígslu. Bjarka þótti leitt að missa af
því. „Það var leiðinlegt að missa af
busuninni, ég hefði viljað vera bus-
aður. Það hefði gefið mér góðar minn-
ingar,“ segir dúxinn að lokum.
Dúxinn stefnir á flugnám
●● Bjarki●Jóhannsson●útskrifaðist●með●9,18●í●lokaeinkunn
ATVINNA
Víðhlíð í Grindavík HSS
Afleysingar með möguleika á framtíðarstöðu.
Sjúkraliðar og einstaklingar með áhuga
á umönnunarstörfum.
Við hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) viljum ráða
sjúkraliða og einstaklinga með áhuga á umönnunarstörfum
til starfa á hjúkrunardeildinni Víðihlíð í Grindavík. Um er
ræða vaktavinnu þar sem unnið er á þrískiptum vöktum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfsmenn í Víðihlíð bera ábyrgð á allri ummönnun
skjólstæðinga í samráði við hjúkrunarfræðinga á deildinni.
Sjúkraliðar í Víðihlíð sinna einnig allri heimahjúkrun
í Grindavík.
Hæfniskröfur
- Sjúkraliðaleyfi fyrir starf sjúkraliða.
- Faglegur metnaður og vandvirkni.
- Jákvætt og hlýtt viðmót.
- Góð samskiptahæfni.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Samvinnufús og tilbúin að vinna þau verkefni sem þarf.
- Starfsreynsla er æskileg.
Frekari upplýsingar um starfið
Um er að ræða mjög áhugaverð, fjölbreytt og gefandi störf
með möguleika á framtíðarráðningu. Þeir sem hafa sótt
um áður eru vinsamlegast beðnir um að sækja aftur um til
að endurnýja umsókn. Laun eru samkvæmt kjarasamningi
fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Sótt er um
starfið rafrænt á: www.hss.is undir „Laus störf“. Öllum um-
sóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin.
Umsóknir geta gilt í sex mánuði.
Starfshlutfall 50-90%
Umsóknarfrestur er til og með 13. júní 2016
Nánari upplýsingar veitir
Ingibjörg Þórðardóttir, deildarstjóri í Víðihlíð veitir nánari
upplýsingar um starfið, í síma 422-0700 / 894-3774 eða í
gegnum netfangið ingibjorgthordar@hss.is.
SJÓNVARP
V ÍKURFRÉTTA
NÝR ÞÁTTUR Í HVERRI VIKU INNÁ
WWW.VF.IS/VEFTV
SJÁÐ’ANN Í HÁSKERPU Í
TÖLVUNNI, SPJAL TÖLVUNNI EÐA
SÍMANUM ÞÍNUM!
Hestur fæld-
ist vegna
torfæruhjóls
■ Kona féll af hestbaki við Mána-
grundarsvæðið í gærdag þegar
hestur hennar fældist. Óhappið bar
að með þeim hætti að konan var á
ferð á hrossi sínu eftir reiðstíg þegar
torfæruhjóli var ekið á mikilli ferð
fram hjá þeim. Hesturinn fældist
sem fyrr sagði með ofangreindum
afleiðingum. Konan fann fyrir
eymslum í baki og hálsi eftir byltuna
og ætlaði að leita sér læknisaðstoðar
ef þörf krefði.
VANTAR TIL KAUPS
3JA HERBERGJA
ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ Í
REYKJANESBÆ
Hafið samband við Harald A. Haraldsson
löggiltan fasteignasala hjá ALLT fasteignum
Hafnarfirði, í síma: 778-7500.
Vantar röska einstaklinga í bílaþvott og önnur tilfallandi
verkefni. Unnið er eftir vaktafyrirkomulagi og eru bæði
dagvaktir og næturvaktir í boði.
Umsóknir sendist á andrew@procar.is
ATVINNA