Víkurfréttir - 02.06.2016, Qupperneq 12
12 fimmtudagur 2. júní 2016VÍKURFRÉTTIR
„Þetta er mömmu að þakka, hún
sendi mig í tónlistarnám á sínum
tíma,“ segir píanókennarinn Ragn-
heiður Skúladóttir sem lét af störfum
við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar í
síðustu viku eftir 53 ára farsælt starf.
Blaðamaður Víkurfrétta hitti Ragn-
heiði á heimili hennar í Reykjanesbæ.
Stofan var eitt blómahaf því að daginn
áður voru skólaslit tónlistarskólans
þar sem Ragnheiður var formlega
kvödd. Ragnheiður er 73 ára gömul og
byrjaði tvítug að kenna hjá Tónlistar-
skóla Keflavíkur.
Við skólaslit Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar sagði Haraldur Árni Haralds-
son, skólastjóri skólans, að þrátt fyrir
að Ragnheiður væri orðin 73 ára væri
hún eitt af fáum dæmum um kennara
sem eru með mjög langan starfsaldur
en samt enn með brennandi áhuga á
kennslunni. Í ræðu hans kom fram
að Ragnheiður væri enn að pæla í
kennsluefni, kennsluaðferðum, kar-
akter nemendanna og nálgunina við
þá í kennslunni. Hún segir að starfið
hafi alltaf verið skemmtilegt. „Ég er
orðin þetta fullorðin en hef þó ekki
fundið fyrir neinum leiða. Ég er þó
búin að kenna nóg núna,“ segir Ragn-
heiður sem gjarna lætur nemendur
spila á píanó fjórhent og sexhent. „Það
er voða skemmtilegt en krefjandi. Ég
hef líka verið dugleg að sækja nám-
skeið og lært heilmikið af því.“ Hún
viðurkennir þó að í byrjun, fyrir
rúmri hálfri öld, hafi ekki alltaf verið
gaman að vera píanókennari. „Þegar
ég byrjaði fannst mér þetta ekki mjög
gaman en svo með tímanum varð
þetta skemmtilegra og skemmtilegra.
Í fyrstu tók ég það nærri mér ef nem-
endurnir voru ekki áhugasamir um
píanónámið. Svo lærði ég að þau eru
misjöfn eins og þau eru mörg og að
maður þarf að meta það hvað maður
getur látið þau spila. Maður verður
líka þolinmóðari með árunum.“
Er ekki ómissandi
Eftir öll kennsluárin hefur Ragn-
heiður misst tölu á því hversu
mörgum nemendum hún hefur kennt.
„Ég veit þó að þetta hafa verið afskap-
lega skemmtilegir krakkar og ég hef
reynt að ná góðri tengingu við þau.
Það er virkilega gaman þegar þau
sýna áhuga. Sum hafa stundað námið
í stuttan tíma en önnur í mörg ár og
þá gleymir maður þeim ekki.“ Ragn-
heiður var deildarstjóri píanódeildar
Tónlistarskólans í Reykjanesbæ þar
til hún varð sjötug. Ragnheiður segir
það hafa glatt sig mikið þegar hún var
beðin að halda kennslu áfram þrátt
fyrir að vera orðin sjötug. Þá minnk-
aði hún við sig starfshlutfallið og segir
það hafa verið mikil forréttindi að fá
að sinna starfinu aðeins lengur.
Ung stúlka sem var nemandi Ragn-
heiðar var ekki sátt á dögunum við
það að kennarinn ætlaði bara að hætta
sí svona. „Hún spurði mig af hverju
ég væri að hætta og ég svaraði að ég
væri orðin svo gömul. Þá sagði hún
bara: Og hvað með það?,“ segir Ragn-
heiður og hlær. „Þau fá góða kennara
í staðinn fyrir mig. Maður verður að
læra að maður er ekki ómissandi.“
Lærði á Mánagötunni og í Ungó
Ragnheiður fæddist að Vallargötu
19 í Keflavík og ólst þar upp. Móðir
hennar var mikill tónlistarunnandi og
sendi dóttur sína 10 ára gamla í píanó-
nám. Ragnheiður segir að stundum
hafi verið erfitt í náminu, sérstaklega
þegar hún fékk skammir frá kenn-
urum. „Þá vildi ég helst aldrei fara í
tíma aftur. Það koma svona tímabil
hjá flestum í tónlistarnámi. Ég hef haft
það fyrir reglu sem kennari að breyta
þá um verkefni og finna alltaf eitthvað
grípandi og skemmtilegt til að halda
krökkunum við efnið.“
Fyrst sótti Ragnheiður tíma hjá Vigdísi
Jakobsdóttur. „Hún var alveg yndisleg
og bjó á Mánagötunni. Mamma lagði
mikla áherslu á að ég væri kurteis við
Vigdísi svo að ég kallaði hana alltaf frú
Vigdísi. Mér leið svo vel hjá henni að
ég fæ hlýja tilfinningu þegar ég geng
götuna hennar enn þann dag í dag.“
Þegar Ragnheiður var 14 ára var Tón-
listarskóli Keflavíkur stofnaður og þá
hóf hún nám þar. „Fyrst var skólinn
uppi á lofti í Ungó. Það var svo kalt
þar að kennarinn okkar, hann Ragnar
Björnsson, sat þar í úlpu og með húfu
og vettlinga,“ rifjar Ragnheiður upp.
Tók börnin með í vinnuna
Aðeins 16 ára gömul byrjaði Ragn-
heiður að spila undir hjá Karlakór
Keflavíkur. 19 ára gömul giftist hún
eiginmanni sínum Sævari Helgasyni
og stuttu síðar fæddist elsta barnið,
Sigurður. „Þá spilaði ég aðeins minna.
Það voru engar dagmömmur á þeim
tíma og mamma mín var látin.“ Síðar
fæddust yngri börnin, Jóhann Smári
árið 1966 og Sigrún árið 1974. Þá voru
tímarnir breyttir og leikskólar komnir
til sögunnar. Ragnheiður tók börnin
oft með sér á kóræfingar og í önnur
verkefni. „Ég man eftir því að Sigrún
sat stundum undir flyglinum hjá mér
og söng svo annan bassa í Karlakór
Keflavíkur eins og pabbi hennar,“
segir Ragnheiður og brosir. Börnin
þrjú hafa öll lagt tónlistina fyrir sig.
Sigurður er tónskáld, söngvari og
skólastjóri Nýja tónlistarskólans í
Reykjavík, Jóhann Smári er óperu-
söngvari og söngkennari. Sigrún lærði
á básúnu og píanó og býr í London þar
sem hún stýrir mastersnámi í skap-
andi tónlistarmiðlun við Guildhall
tónlistarháskólann. Barnabörnin eru
orðin átta og hafa öll, sem aldur eiga
til, lagt stund á tónlistarnám. Tengda-
börnin eru öll líka tónlistarfólk, sum
voru það áður en þau komu inn í fjöl-
skylduna á meðan önnur sáu sér ekki
annað fært en að kynnast tónlistinni
að eigin reynslu til þess að getað tekið
þátt í umræðum í matarboðum.
Aðspurð um hvað taki við núna þegar
starfsferlinum er lokið segir Ragn-
heiður margt vera á dagskránni. „Ég
ætla að halda áfram að lifa lífinu. Ég
á börn og barnabörn og hef gaman
af því að vera til. Mér finnst mjög
skemmtilegt að ganga úti. Svo heim-
sæki ég dóttur mína og fjölskyldu
hennar einu sinni til tvisvar sinnum á
ári til London. Ég hef þó grínast með
það að kannski mæti ég bara í tón-
listarskólann næsta haust, svona af
gömlum vana.“
Ragnheiður hefur helgað alla starfs-
ævina píanókennslu og undirleik með
sólistum og kórum, en ekki spilað
mikið sjálf undanfarin misseri. Hún
segir aldrei að vita nema breyting
verði á því núna. Tónlistin hefur gefið
Ragnheiði mikið og aðspurð um
það hvað sé svo heillandi við það að
vinna að tónlist sækir hún bók eftir
Sigurbjörn Einarsson, fyrrum biskup,
uppi í hillu og les tilvitnun í danska
heimspekinginn Sören Kirkegaard.
„Þangað sem geislar sólar ná ekki, geta
tónarnir náð.“
Ragnheiður Skúladóttir
tekur við nafnbótinni
Listamaður Reykjanes-
bæjar árið 2009.
ÞOLINMÆÐIN
KOM MEÐ
ALDRINUM
Ragnheiður Skúladóttir lét af störfum sem píanókennari við Tónlistarskólann í Reykjanesbæ á dögunum eftir yfir
hálfrar aldar starf. Hún segir píanókennslu krefjast mikillar þolinmæði sem hún öðlaðist með reynslunni.
Ég ætla að halda
áfram að lifa
lífinu. Ég á börn og
barnabörn og hef
gaman af því að vera til