Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.06.2016, Side 21

Víkurfréttir - 02.06.2016, Side 21
21fimmtudagur 2. júní 2016 VÍKURFRÉTTIR Kylfingurinn Hólmar Árnason fór í þriðja sinn á ævinni holu í höggi á dögunum. Ekki nóg með að það sé magnað afrek, þá er það enn merki- legra að Hólmar hefur slegið drauma- höggin öll á par fjögur holum, en það er mjög sjaldgæft því þær eru yfirleitt of langar til þess. Í lang flestum til- fellum fara kylfingar holu í höggi á par þrír holum. Hólmar, sem er með 4,1 í forgjöf, hefur stundað golf síðan hann var sex ára, eða í 22 ár. Hann ól manninn í Grindavík en er núna búsettur í Vog- unum. Árni faðir hans dró hann á völ- inn á sínum tíma. „Pabbi kenndi mér allt sem ég kann. Hann var hörku- kylfingur þegar hann var yngri,“ segir Hólmar sem fór fyrst holu í höggi í hitteðfyrra á par fjögur holu. Síðar það sumar þá endurtók hann leikinn á sömu holunni en um er að ræða átt- undu holu í Bakkakotsvelli í Mosfells- dal. „Það var nákvæmlega sama kylfa og sama höggið. En sitt hvort vitnið. Í síðara skiptið þá sagði ég við manninn sem var með mér, sem var nýbyrjaður í golfi, nú ætla ég að fara holu í höggi því ég þarf að fá nýtt vitni. Svo bara fór boltinn ofan í,“ segir kylfingurinn léttur í bragði. Hólmar segir það allt öðruvísi tilfinn- ingu en að hann hafði haldið að fara holu í höggi. „Þetta er af svo löngu færi að maður hefur ekki séð bolt- ann fara í holuna. Maður er ennþá að bíða eftir því að sjá boltann fara ofan í á par þrjú holu. Þetta er þó ótrúlega gaman.“ Þarf sjö draumahögg til viðbótar Þegar maður fer holu í höggi þá kemst maður í svokallaðan einherjaklúbb. Samkvæmt skráningu klúbbsins þá eru 46 kylfingar á landinu sem hafa þrisvar farið holu í höggi. Sá sem hefur verið iðnastur við kolann hefur níu sinnum afrekað að fara holu í höggi. „Ég á bara sjö eftir til þess að bæta það,“ segir Hólmar og hlær. Aðeins 22 kylfingar hafa farið oftar en þrisvar sinnum holu í höggi. Hólmar fór núna síðast holu í höggi á fjórðu holu á Húsatóftavelli í Grinda- vík. „Það var hliðarvindur og ég tek upp „dræverinn“ eins og vanalega á þessari holu. Ég hugsaði með mér að ég ætlaði að ná eins nálægt flötinni eins og ég gæti með því að með því að slá hann í „slæsi“. Ég gerði það og hann fer eftir brautinni og tekur eitt skopp fyrir neðan flöt og svo rúllar hann ofan í.“ Þarna var Hólmar að spila með ókunnugum manni sem hafði aldrei séð neitt þessu líkt. „Við gengum upp að holunni og hann missti eiginlega andlitið. Það var ekki svo með mig, enda vanur maður,“ bætir Hólmar við og hlær. Völlurinn í Grindavík er frábær um þessar mundir að sögn Hólmars sem reyndar spilar mest á Kálfatjarnarvelli í Vogum. Hólmar varð fyrir taugameiðslum þegar hann skarst á hendi í vinnuslysi fyrir þremur árum. „Ég er nú bara heppinn að geta spilað golf að ein- hverju ráði eftir það,“ segir Hólmar sem nær ekki að spila mikið þegar hitastigið fer að lækka en það hefur áhrif á taugarnar. Hann hefur þó náð öllum þremur draumahöggunum eftir að hann meiddist þannig að það virðist ekki mikið há honum. Hólmar segist eiga nóg inni og býst við því að verða bara betri spilari með árunum. Hann stefnir ótrauður að því að fikra sig enn hærra upp einherjalistann. „Það er ekkert annað í boði en að ná því. Maður er kominn með þrennuna. Eina sem ég á eftir í golfinu er að fara holu í höggi á par þrjú holu. Ég er búinn að gera allt annað.“ Hólmar hefur afrekað það að fá albatross á par fimm holu, sem þýðir að maður fer á tveimur höggum, eða þremur undir pari. Það afrekaði hann á gömlu ann- arri brautinni í Grindavík, sem nú er 13. braut. Það má segja að sé eiginlega meira afrek en að fara holu í höggi! Korpak systur í öðru sæti á heimavelli Fikrar sig upp einherjalistann ●● Þrisvar●sinnum●farið●holu●í●höggi●á●par●fjögur●holu Það eru fleiri sem sem eru að gera það gott í golfinu á Suðurnesjum. Korpak systurnar, þær Zuzanna og Kinga, nældu báðar í silfurverðlaun á Íslandsbankamótinu sem fram fór um liðna helgi á þeirra heimavelli, Hólms- velli í Leirunni. Zuzanna hafnaði í öðru sæti í flokki 15 til 16 ára. Hún leiddi mótið eftir fyrsta keppnisdag en varð að gera sér annað sætið að góðu eftir sopenn- andi keppni á öðrum degi. Hún lék hringina tvo á 87 og 84 höggum. Yngri systirin Kinga endaði einnig í öðru sæti í flokki 13 til 14 ára eftir harða keppni. Hún lék hringina tvo á 85 og 80 höggum. LAUS STÖRF Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar um- sóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði. Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/ stjornkerfi/laus-storf, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um störfin. LEIKSKÓLINN HEIÐARSEL VELFERÐARSVIÐ FRÆÐSLUSVIÐ LEIKSKÓLINN HOLT ÍÞRÓTTAMANNVIRKI MYLLUBAKKASKÓLI HEIÐARSKÓLI Margvísleg störf Störf með fötluðum Sálfræðingur Leikskólakennari Margvísleg störf Skólaliðar Deildarstjóri Úðum gegn: Lir fum og lús í trjám, roðamaur, kóngulóm, illgresi í grasötum og . Fullgild réttindi og mikil reynsla! co/ Björn Víkingur og Elín Garðaúðun Suðurnesja ehf. netfang: bvikingur@visir.is GARÐAÚÐUN Auglýsing um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninga, sem fram eiga að fara 25. júní 2016 verður sem hér segir á skrifstofum sýslumannsins á Suðurnesjum að Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ og Víkurbraut 25, Grindavík. Reykjanesbær: ■ Alla virka daga frá 1. júní til 24. júní frá kl. 08:30 til 19:00. ■ Laugardagana 4. og 11. júní frá kl. 10:00 til 12:00 og laugardaginn 18. júní og á kjördag 25. júní, frá kl. 10:00 til 14:00. Grindavík: ■ Alla virka daga frá 2. maí til 19. júní frá kl. 08:30 til 13:00. ■ Dagana 20. til 24. júní frá kl. 08:30 til 18:00. Sérstök athygli er vakin á að nú verður einnig unnt að kjósa utan kjörfundar á skrifstofu sveitarfélagsins Garðs að Sunnubraut 4, Garði sem hér greinir. Garður: ■ Mánudaga til fimmtudaga frá 6. júní til 23. júní frá kl. 09:30 til 15:00. ■ Föstudaga frá 11. júní til 24. júní frá kl. 09:30 til 12:30. Kjósendur skulu framvísa skilríkjum við kosninguna. Atkvæðagreiðsla á sjúkrahúsum og hjúkrunar- og dvalarheimilum aldraðra fer fram 20. til 22. júní nk. skv. nánari auglýsingu á viðkomandi stofnunum. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum, 31. maí 2016 Ásdís Ármannsdóttir Holu Hólmar gæti verið ágætis viðurnefni. Þrjú draumahögg. Zuzanna Korpak Kinga Korpak

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.