Víkurfréttir - 02.06.2016, Qupperneq 24
24 fimmtudagur 2. júní 2016VÍKURFRÉTTIR
Stefánía María Aradóttir flutti í íbúð
á Ásbrú í febrúar síðastliðnum en
fyrir bjuggu þar tvær dætur hennar og
sonur eiginmannsins. Stuttu eftir að
hún flutti tók hún rúnt niður Hafnar-
götuna í Keflavík og sá þá autt versl-
unarhúsnæði við Hafnargötu 35 sem
hún hreifst af og ákvað að opna þar
verslunina SA Iceland Design. „Ég
ólst upp í Neskaupstað og stofuglugg-
inn hérna í versluninni minnti mig
á æskuheimilið en þar var einmitt
svona gluggi. Þetta fór því þannig að
ég ákvað að opna hér verslun, eigin-
lega bara fyrir tilviljun,“ segir Stefanía.
Fyrir rekur hún Saumastofu Íslands
í Reykjavík og tekur því á móti fatn-
aði, fortjöldum og öðru í viðgerð í
versluninni við Hafnargötu. Í SA Icel-
and Design eru á boðstólum flíkur
sem Stefanína hannaði og eru saum-
aðar hjá Saumastofu Íslands, bróderuð
handklæði, rúmföt og ýmsar vörur
sem höfða til ferðamanna. Í verslun-
inni er tekið á móti almennum við-
gerðum á fatnaði frá Cintamani.
Búið er að opna verslunina og segir
Stefanía marga viðskiptavini hafa litið
við, bæði ferðamenn og heimamenn.
Formleg opnun verður svo um næstu
mánaðamót og verða þá ýmis opn-
unartilboð.
Sá fallegt, autt húsnæði
og ákvað að opna verslun
Elísabet Ýr Norðdahl og Stefanía María Aradóttir. VF-mynd/dhe
Í Reykjanesbæ þann 16. apríl var hald-
inn kynningarfundur Viðreisnar, nýs
stjórnmálaafls, sem hyggst bjóða fram
á landsvísu til næstu Alþingiskosn-
inga. Frjálslyndi og almannahags-
munir eru rauði þráðurinn í stefnu
Viðreisnar - almannahagsmunir séu
ætíð teknir fram yfir sérhagsmuni.
Markmið Viðreisnar er að berjast fyrir
frelsi, jafnrétti, réttlátu samfélagi, vest-
rænni samvinnu, stöðugu efnahagslífi
og fjölbreyttum tækifærum. Hún berst
gegn mismunun og vill nýta mark-
aðslausnir í stað sérhagsmunavörslu
stjórnmála- og embættismanna.
Fagmennska
Mótun þessa afls hefur nú staðið í rúm
tvö ár. Þar hefur gott fólk úr öllum
áttum komið að starfinu. Þá hefur álit
sérfræðinga á helstu málefnum sam-
félagsins myndað grundvöll stefnu-
mála Viðreisnar. Því það er ekki nóg
að koma með hugmynd eða ávarpa
eitthvað ákveðið vandamál, heldur
þarf einnig að koma með útfærslu
á hugmyndinni og leið til að leysa
vandamálið. Í því skyni er samvinna
innan stjórnmála mjög mikilvæg. Öll
vinnum við að sama markmiði; að
bæta lífskjör íbúa samfélagsins.
Frjálslyndi
Best er að lýsa Viðreisn sem fersku
og nýju umbótaafli. Nú er einmitt
samhljómur og einlægur vilji meðal
almennings að auka heiðarleika og
gegnsæi í stjórnmálum. Þá er einmitt
tímabært að afl eins og Viðreisn svari
kallinu, þar sem það afl mun berjast
fyrir auknum heiðarleika og breyttum
háttum í íslenskum stjórnmálum.
Þetta afl samræmist best hinu nútíma-
lega, frjóa og víðsýna frjálslyndi, sem
nauðsynlegt er þjóðinni til að taka
skref inn í nútíðina og uppræta sér-
hagsmunagæslu afturhaldsafla.
Ferksleiki
Mikilvægt er að þingið spegli sam-
félagið í heild sinni og að allir hópar
hafi fulltrúa við borðið. Því samfélagið
er ekki einungis fyrir einstaka hópa -
Það er fyrir okkur öll. Virkja þarf ungt
fólk og nauðsynlegt er að rödd þess
heyrist. Þessi hópur á að fá að taka
virkan þátt í mótun samfélagsins, ekki
síst hvað varðar menntamál, velferðar-
mál og húsnæðismál. Þar að auki er
ferskleiki mjög nauðsynlegur sam-
félaginu, þar sem það þarf að vera opið
fyrir breytingum og nýjum tíðaranda.
Framtíðin
Sve it ars t j ór narkosningar nar í
Reykjanesbæ árið 2014 voru mér
mjög hugleiknar. Þar hafði ég ýmis-
legt um stöðuna að segja. Þá stóðu
íbúar frammi fyrir ákveðnu vanda-
máli, þá var fjárhagsstaðan slæm og
útlitið svart. Nú standa landsmenn
fyrir vandamáli af allt öðrum toga.
Þetta vandamál er ekki fjárhagslegs
eðlis. Nú er um siðferði og stjórnar-
hætti að ræða. Skortur á samvinnu
veldur stjórnarkreppu í samfélaginu
og siðferðisbrestur í stjórnmálum
veldur því að almenningur sér ekki
birtuna fyrir skýjum sérhagsmuna-
afla. Hin hefðbundna hentistefna á að
víkja fyrir umbótahugsjónum. Hvað
hentar hag stjórnmálamanns hverju
sinni á ekki að ráða för í stefnumótun,
heldur hugsjónir með það markmið
að bæta samfélagið. Þá á flokksholl-
ustan að víkja fyrir gagnrýnni hugsun.
Að lokum þarf siðferðisbresturinn og
hagsmunagæslan að víkja fyrir rétt-
lætiskennd og manngæsku. Þá fyrst
sjáum við viðreisn samfélagsins.
Bjarni Halldór Janusson, á meðal
stofnenda og situr í stjórn Viðreisnar.
Viðreisn Samfélagsins
SUBWAY® er alþjóðleg keðja með yfir 40 þúsund veitingastaði í rúmlega 100 löndum. Stjarnan ehf., einkaleyfishafi Subway á Íslandi, rekur 23 Subway veitingastaði á Íslandi sem
staðsettir eru víða um land. Fyrsti veitingastaður Subway á Íslandi var opnaður árið 1994. Markmið Subway um allan heim er að bjóða upp á fjölbreyttan og bragð-góðan skyndibita með
hollustu að leiðarljósi. Strangt gæðaeftirlit tryggir að matvæli uppfylla ströngustu skilyrði um ferskleika og gæði.
Subway poszukuje bardzo dobrych i energicznych osob do pracy w Fitjar, Njarðvik.
Osoba ubiegajaca sie o prace powinna byc zmotywowana do obslugi klijenta , uprzejma , punktualna oraz gotowa do pracy w
systemie zmianowym . Wymagany jezyk islandzki albo jezyk angielski .
Zainteresowanych prosze o przeslanie aplikacji ze wszystkimi informacjami do Kierownika Do Spraw Personalnych: ingibjorg@subway.is
Subway leitar að hressum og duglegum starfsmanni í næturvinnu á veitingastaðinn sinn að Fitjum í Njarðvík.
Viðkomandi þarf að vera eldri en 20 ára, hafa góða þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, vera röskur, stundvís og
reglusamur. Við getum einnig bætt við okkur fólki í vaktarvinnu.
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn á mannauðsstjóra með helstu upplýsingum: ingibjorg@subway.is
Subway is looking for a good and energetic worker at the company‘s restaurant in Fitjar, Njarðvík.
The applicant needs to be service motivated, polite, punctual and be able to work shift work. Applicant must speak Icelandic our
English, if he speaks both languages that is even better.
Intrested applicants please send an application to the Human resource manager with all necessary iformation: ingibjorg@subway.is
SJÓNVARP
V ÍKURFRÉTTA
NÝR ÞÁTTUR Í
HVERRI VIKU INNÁ
WWW.VF.IS/VEFTV
SJÁÐ’ANN Í HÁSKERPU Í TÖLVUNNI,
SPJALDTÖLVUNNI EÐA SÍMANUM ÞÍNUM!