Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.06.2016, Side 28

Víkurfréttir - 02.06.2016, Side 28
www.sjoarinnsikati.is • Snapchat: sjoarinnsikati •#sjoarinnsikati • www.facebook.com/grindavikurbaer Barnadagskráin í öndvegi á 20 ára afmæli Sjóarans síkáta Við erum á samfélagsmiðlunum „Bæjarhátíð okkar Grindvíkinga, Sjóarinn síkáti, fagnar 20 ára afmæli í ár. Þá vill svo skemmtilega til að Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur heldur upp á 60 ára afmæli í ár þannig að það er tvöföld ástæða til að halda upp á Sjó- mannadagshelgina í Grindavík með pompi og pragt í ár,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menn- ingarsviðs en Sjóarinn síkáti fer fram helgina 3.-5. júní n.k. en reyndar byrjar hátíðin nokkrum dögum fyrr. Undirbúningur hefur staðið yfir frá því í ársbyrjun og verður mikið lagt í hátíðina í ár. Að sögn Þorsteins verður barnadagskráin í öndvegi en búið er ráða m.a. Villa og Góa, Gunna og Felix, Einar Mikael, íþróttaálfinn, Sollu stirðu, Sigga sæta, Gogga Mega, Sirkus Ísland, Pílu pínu, brúðubílinn o.fl. Þá verða leiktæki og hoppukastalar alla helgina, paintball og lazertag, vatnaboltar, gokart, dorgveiðikeppni, skemmtisigling, sjópulsa í höfninni, krakkakeyrsla á mótorhjólum, andlitsmálning, svo eitthvað sé nefnt. „Einnig verðum við með fiskasafn með lifandi sjávardýrum í fiskabúrum á bryggjunni á sunnudeginum en þetta er sam- starfsverkefni Sjóarans síkáta, Hafró í Grindavík, Gunna kafara og sjávarúvegsfyrirtækjanna í Grindavík. Við gerðum þetta í fyrsta skipti í fyrra og sló algjörlega í gegn. Við bætum við í ár. Einnig hafa frystitogarar Þorbjarnar safnað saman ýmsum furðufiskum og verða þeir til sýnis fyrir gesti og gangandi. Við erum með sullu- búr fyrir krakkana þar sem þau geta komist í tæri við krabba, skelj- ar og minni fisktegundir,“ segir Þorsteinn. Óhætt er að segja að landslið skemmtikrafta verði á Sjóaranum síkáta í ár. Á meðal þeirra sem búið er að bóka á Sjóarann síkáta er Páll Óskar sem kemur fram bæði á Bryggjuballi og verður með Palla-ball í íþróttahúsinu. Bræðurnir Jón og Friðrik Dór Jónssynir munu skemmta saman ásamt hljómsveit á bryggjuballinum og heimamaðurinn Ellert Heiðar Jóhannsson sem sló í gegn í The Voice treður upp ásamt hljómsveit sinni. Ingó Veðurguð sér um brekkusöng eins og honum einum er lagið. Þá verður keppnin Sterkasti maður á Íslandi á sínum stað og er met þátttaka í ár. Þá mun hópur tónlistarfólks í Grindavík standa fyrir klassískri rokkhátíð í íþróttahúsinu. Alls koma fram 15 flytjendur, sem flest- ir búa í, hafa búið í eða tengjast Grindavík á einhvern hátt. Þetta fólk kemur úr ólíkum áttum en á það sameiginlegt að njóta þess að flytja frábæra tónlist. Hópurinn ætlar að flytja framsækið rokk sem átti sitt blómaskeið á áttunda áratugnum. Flutt verða lög eftir hljómsveitir á borð við Pink Floyd, Marillion, Yes og Queen, í bland við nýrra efni. Björgunarsveitin Þorbjörn kemur að skipulagningu og gæslu á hátíðinni með öflugum hætti að vanda og er í lykilhlutverki á hátíðinni. Hátíðin hefur vaxið með hverju árinu, þar er fjölbreytt dagskrá alla helgina en mikið er lagt upp úr vandaðri barna- dagskrá. Um 25 þúsund gestir voru á hátíðinni í fyrra. Sjómannadagsblaðið tileinkað 60 afmæli Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur Í tilefni af 60 ára afmæli Sjómanna- og vélstjórafélagsins verður Sjómannadagsblaðið í ár með veglegasta móti. Rifjuð verður upp saga félagsins í fortíð og nútíð og spáð í framtíðina. Viðtöl verða við gamla sjóara. Ritstjóri blaðsins er Óskar Sævarsson. Verð pr. blað er 1.500 kr. Sjómannadagsblaðið verður m.a. selt í helstu sjoppum í Grindavík, Kvikunni, í sölubás Þórkötlu á Sjóaranum, á Granda í Reykjavík og svo er hægt að hafa samband við skrifstofu Sjó- manna- og vélstjóarfélagsins. Jafnframt fara sölubörn í öll hús í Grindavík. Athygli er vakin á því að dagskrá Sjóarans síkáta er hægt að nálgast í nýja Grindavíkurappinu. Við erum einnig á Snapchat: sjoarinnsikati. Þar munu fulltrúar Sjóarans síkáta sjá um stýra Sapchat aðganginum, m.a. frá lita- hverfunum fjórum, ungmennaráði og ýmsum fleiri. Sjóarinn síkáti er einnig á Instagram, notið endilega #sjoarinnsikati og skellið ykkar myndum inn. Þá er Sjóarinn síkáti á Facebook í gegnum síðu Grindavíkurbæjar. Heimasíða Sjóarans síkáta er www.sjoarinnsikati.is. Skipulagsbreytingar Skipuleggjendur Sjóarans síkáta í samvinnu við Björ- gunar-sveitina Þorbjörn og ásamt lögreglu hafa ákveðið að gera smávægilegar breytingar á hátíðarsvæðinu sem miða að því að þjappa því betur saman fyrir gesti og gangandi og einfalda götu- lokanir og gerir skipulagið mun einfaldara. Helsta breytingin felst í því að hoppukastalar og önnur leiktæki sem hafa verið á Hafnargötu verða færð niður fyrir Kvikuna og á hafnarsvæðið við Seljabót. Með þessu móti verður hægt að nýta alla Hafnargötuna fyrir bílastæði og jafnframt þarf ekki að loka Ránargötu við Mánagötuna heldur verður lokunin við Vísi. Öll leiktæki verða því við hafnar- svæðið sjálft. Sjá nánar á korti á heimasíðu Sjóarans. Í ár verður stórt og glæsilegt svið á Sjóaranum síkáta sem að þessu sinni verður mun nær sviðinu við Kvikuna en áður. Þá gerir Slysavarnadeildin Þórkatla breytingar á sölustarfsemi sinni. Í sölugámi á hátíðarsvæði verður candy-flos, blöðrur og ýmislegt góðgæti til sölu. Í Kvikunni verður hins vegar til sölu kaffi, heitt kakó ásamt kökum og heitum vöfflum. Vakin er athygli á því að handverksmarkaðurinn verður á 2. hæð Kvikunnar. Strandblakvöllur vígður á Sjóaranum Ungmennaráð Grindavíkur ætlar að vígja formlega strandblakvöll í nýja ungmennagarðinum í Grindavík á Sjóaranum síkáta. Blásið verður til grillveislu og fyrsta strandblaksmótsins í Grindavík þegar ung- mennagarðurinn verður vígður, laugardaginn 4. júní kl. 20:00. Um er að ræða löglegan keppnisvöll með öryggis- svæði í kring. Jafnframt verður tekin í notkun kósýróla við vígslu ungmennagarðsins. Strand- blakvöllurinn er hluti af ungmennagarðinum sem er hluti af skólalóð grunnskólans. Ungmennaráð hefur unnið að ungmennagarðinum síðastliðið ár, m.a. er búið að setja þar aparólu, grillskýli og kósýskýli. Nú bætist við strandblakvöllur og kósýróla og í næsta áfanga er gert ráð fyrir trampólínkörfuboltavelli. Hver á heima hér? Léttur leikur í aðdraganda Sjóarans síkáta stendur yfir frá fimmtudeginum 2. júní og fram yfir Sjóarann síkáta. Þekkja þarf 8 útidyrahurðir í bænum (2 í hverju litahverfi). Bækling um um leikinn verður dreift í hús og mun hann einnig liggja frammi á völdum stöðum og á heimasíðu bæjarins. Þar þarf að skrá í hvaða götu hvert hús er og húsnúmer. Skila þarf útfylltu blaðinu í Kvikuna. Glæsileg verðlaun verða í boði en vinningshafar verða dregnir út mánudaginn 8. júní. Forseti Íslands flytur hátíðarræðuna Herra Ólafur Ragnar Grímsson, forsti Íslands, flytur hátíðarræðuna á hátíðarhöldum Sjómannadagsins, sunnudaginn 5. júní n.k. Þetta verður væntanlega ein af síðustu embættisskyldum forsetans en hann lætur af störfum í sumar. D A G S K R Á R B L A Ð FÁÐU LÍKA DAGSKRÁNA Í GRINDAVÍKURAPPINU dagskrasjoari2016_1:dagskra2016 24.5.2016 17:34 Page 1

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.