Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 34

Víkurfréttir - 02.06.2016, Blaðsíða 34
Kl. 22:00 Bryggjan-kaffihús: Bubbi og Vignir (Guðbrandur Einarsson og Vignir Bergmann) leika lifandi tónlist fyrir gesti. Bátarnir hans Gylfa á Bjargi til sýnis á staðnum alla helgina. Kl. 23:00 Kanturinn: DjWho heldur uppi fjörinu FRÍTT INN Kl. 23:00 – 05:00 Íþróttahúsið: PALLABALL. Páll Óskar Hjálmtýsson með alvöru Pallaball. Hljómsveitin Geimfararnir taka nokkur lög með Palla. 18 ára aldurstakmark. Happy hour frá kl. 23:00 til miðnættis. Aðgangseyrir. Sunnudagur 5. júní: Kl. 08.00 Fánar dregnir að hún. Bæjarbúar hvattir til að flagga. Söguratleikur Grindavíkur 2016 sem byggir á heimildum um Tyrkjaránið. Tyrkjaránið í Grindavík 1627, þegar 12 Íslendingum, þar af helmingur Grindvíkingar og þremur Dönum var rænt í Grindavík, auk áhafnar á kaupfari utan við víkina. Sýnilegar minjar og sögur um atburðinn eru við- fangsefni ratleiksins. Bókstafi og tölustafi á hverjum stað þarf að færa inn á lausnarblaðið og skila því í Kvikuna ekki síðar en 24. júní. Dregið verður úr réttum lausnum og það tilkynnt í Jónsmessugöngunni á Þorbirni 25. júní. Vinningar: Gjafabréf í Bláa Lónið og þriggja rétta máltíð á Lava Restaurant. Sjá nánar á bls. 11. Kl. 10:00 – 17:00 Opnunartími Sundlaugar Grindavíkur Kl. 10:00 – 18:00 Kvikan, auðlinda- og menningarhús – Hafnargötu 12A. Opið á Saltfisksýninguna, jarðorkusýninguna og Guðbergsstofu. Kl. 11:00 – 12:00 Dorgveiðikeppni fyrir 16 ára og yngri. Fer fram á Miðgarði fyrir framan Ísfélagið. Skráning á staðnum. Foreldrar/forráðamenn fylgi yngri börnum og eru þau á ábyrgð þeirra. Veitt verða verðlaun fyrir mesta aflann, þyngsta fiskinn og ljótasta fiskinn. Keppnin er tvískipt; 12 ára og yngri annars vegar og hins vegar 13 – 16 ára. Ljótustu fiskarnir fara í fiskabúr og verða til sýnis. Um hádegisbil (kl. 13:00): Þyrla Land- helgisgæslunnar til sýnis við höfnina og sýnir björgun úr sjó úr Grindavíkurhöfn. Kl. 11:30 Salthúsið. El- dhúsið opið frá kl.11.30 – 22:00 Hjá Höllu: Okkar vinsæli matseðill auk þess að nóg verður til af kökum, brauði og ýmsum heilsudrykkjum. Kl. 12:00 Kanturinn. Brakandi ljúffeng humarsúpa, klúbb samlokur og börgerar, kaldur á Kantinum. Kl. 13:00 – 18:00 Fiskasafn með lifandi sjávardýrum í fiskabúrum á bryggjukantinum. Sjóarinn síkáti í samvinnu við Hafrannsóknastofnunina í Grindavík og sjávarúvegs- fyrirtæki setja upp fiskabúr af ýmsum stærðum þar sem verður að finna marga af helstu nytjafiskum sem veiðast við Ísland auk krabba, sæfífla, krossfiska, ígulkerja, kolkrabba og skeldýra. Á staðnum verða meðal annars snertibúr með kröbbum, krossfiskum og ígulkerjum sem spen- nandi er fyrir börnin að skoða og handfjatla. Ein- nig verða furðufiskar sem veiðst hafa á grind- vískum bátum til sýnis í fiskikörum. Kl. 13:00 – 18:00 Leiktæki frá Sprell og Skemmtilegt.is verða á hafnarsvæðinu. Aldrei áður hafa fleiri leiktæki verið á svæðinu fyrir krakka á öllum aldri. Kl. 13:00-17:00. VIGT Hafnargata 11. Verslun og vinnustofa opin. Kl. 13:00-17:00 Blómakot. Hlutavelta, engin 0. Hátíðar- stemming í kotinu. Kl. 13:00 Sjómannamessa í Grindavíkurkirkju. Ræðumaður Hinrik Bergsson. Karlakór Keflavíkur leiðir söng. Organisti er Bjartur Logi Guðnason. Prestur: Sr. Elínborg Gísladóttir. Blómakrans verður að venju borinn að minnisvarðanum Von. Þar mun karlakórinn syngja og bænir beðnar. Kl. 13:00 – 17:00 „Paintball“ og „Lazertag“ á Lands- bankatúninu. Aðgangseyrir. Kl. 13:00-17:00 Gokart fyrir framan Ísfélagið. Aðgangseyrir. Kl. 13:00 – 18:00 Vatnaboltar – við Fiskmarkað Suðurnesja. Aðgangseyrir. Kl. 13:00 – 17:00 Sýning á fornbílum. Félagar úr Suðurnesjadeild Forn- bílaklúbbsins sýna dýr- gripi sína. Bílarnir verða staðsettir fyrir neðan Vísi. Kl. 13:00 – 17:00 Hand- verksmarkaður á efri hæð í Kvikunni. Fjöl- breytt úrval af ýmis konar handverki. Kl. 13:00 – 17:00 Slysavarnardeildin Þórkatla: Í sölugámi á hátíðarsvæði verður candy-flos, blöðrur og ýmislegt góðgæti til sölu, í Kvikunni verður til sölu kaffi, heitt kakó ásamt köku og heitum vöfflum. Kl. 13:00 – 17:00 Veltibíll Sjóvá á hátíðarsvæðinu. Kl. 13:00-16:00 Andlitsmálun við Kvikuna. Ókeypis fyrir öll börn. Kl. 13:00 – 17:00 Handverksfélagið Greip með opið hús í aðstöðu félagsins að Skólabraut 8. Fjöldi glæsilegra muna til sýnis. Kl. 13:00 – 17:00 Dagskrá við hátíðarsvið o 12:30 Sterkasti maður í heimi. Stærsta keppnin til þessa. Keppt í 4 greinum báða dagana. Fyrsta grein dagsins verður við hátíðarsviðið, hinar við löndunarkantinn eða á götunni: Víkingapressa, kútakast, réttstöðulyfta, Atlassteinn. o Lína Langsokkur (13:30) o Kl. 14:00 Hátíðarhöld við Kvikuna í tilefni Sjó- mannadagsins. Ávarp flytur Ólafur Ragnar Grímsson forseti Ís- lands. Kynnir: Magnús Már Jakobsson for- maður Verkalýðsfélags Grindavíkur. Gjöf til björgunarsveitarinnar Þorbjarnar. Heiðursviðurkenningar og verðlaunaafhending fyrir kappróður. o Kl. 15:00 Koddaslagur, kararóður og flekahlaup við höfnina, stelpur og strákar. Pizzuveisla í verðlaun. o Villi og Gói skemmta o Einar Mikael töfra- maður skemmtir o Píla Pína skemmtir o Íþróttaálfurinn og Solla stirða leika listir sínar. o Spinkick hópurinn sem sló í gegn í Iceland Got talent. Í honum eru m.a. nokkrir Grind- víkingar. o Sterkasti maður í heimi (Atlassteinn) við hátíðarsviðið. Kl. 14:00-17:00 Vísir hf. kynnir nýsköpun og hátækni á vegum fyrirtækisins á opnu húsi að Miðgarði 3 um sjómannahelgina. Opið laugardag og sunnudag. Verið velkomin! Kl. 14:00 – 16:00 Hestateyming við Kvikuna. Börnum gefst tækifæri til að fara á hestbak. Kl. 14:00 – 17:00 Hoppukastali frá Landsbankanum verður staðsettur við Kvikuna. Sproti verður á svæðinu milli kl. 15:00 og 16:00. Kl. 14:15 – Víðihlíð/Miðgarður. Karlakór Keflavíkur syngur. Kl. 14:30 – Víðihlíð/Miðgarður. Raggi Bjarna skemmtir. Kl. 16:00 – 17:00 Grindjánar bifhjólaklúbbur við Fiskmarkaðinn. Ókeypis krakkakeyrsla. Börn fá að sitja aftan á bifhjólum og fara hring. Mömmur fá að fara rúnt á eftir. Kl. 17:00 Kanturinn – Íslandsmeistaramót í sjómanni um leið og keppni í Sterkasta manni í heimi lýkur. Þrír aldurs- flokkar. ATH að keppendur í Sterkasta manni í heimi mega ekki keppa. Kl. 17:15 Knattspyrnumót hverfanna. Knattspyrnumót á Grindavíkurvelli á milli hverfanna fjögurra í Grindavík. Keppt er á hálfum velli, 10 í liði, 2x6 mínútur. Valið er í lið samkvæmt eftirfarandi reglum: - Enginn meistaraflokksleikmaður má vera með. Skylda er að spila á strigaskóm (takkaskór bannaðir) og markvörður verður að vera í stígvélum. Leiknar verða 2x6 mínútur. Leiknir verða undanúrslitaleikir (dregið á staðnum) og svo úrslitaleikur. Liðin þurfa að mæta í búningum í sínum litum. - SKRIÐTÆKLINGAR BANNAÐAR. Yfirdómari er Sig- urður Óli Þorleifsson, alþjóðlegur FIFA dómari. Kl. 20:00 Sjómannastofan Vör. Hátíðarkvöldverður Sjó- manna- og vélstjórafélags Grindavíkur. Hlaðborð. Vinsam- lega pantið borð tímanlega í síma 426-8570. Veislustjóri er Svavar Knútur. Matti Matt sér um söng og tónlist. Jón á Sjó- mannastofunni sér um matinn af sinni alkunnu snilld. Kl. 20:00 Körfuboltamót hverfanna á körfuboltavellinum við Hópsskóla. 5 í liði, alltaf 2 konur eða 2 karlar inn á í einu. Umsjón: Jóhann Árni. dagskrasjoari2016_2:dagskra2016 24.5.2016 17:10 Page 7

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.