Fréttatíminn - 18.03.2017, Qupperneq 34
Jónas Guðmundsson sér um slysavarnamál hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þegar hann er spurður hvað ferða-
langar þurfa að leggja áherslu á
áður en lagt er í ferðalag að vetrar-
lagi segir Jónas:
„Það eru í sjálfu sér nokkur atriði
sem mér dettur í hug. Í fyrsta lagi
þá er það að fólk skili inn ferðaá-
ætlunum hjá okkur og það er hægt
að gera í gegnum vefsíðuna. Þú get-
ur stillt það þannig að það sé hægt
að fylgjast með þér hvenær þú ert
að koma til baka á ákveðnum tíma,
ef þú ert til dæmis að ferðast einn.
Svo er það líka þannig að ef þú set-
ur inn ferðaáætlun þá færðu sendar
allar viðvaranir eins og til að mynda
veðuraðvaranir, þá færðu það sent
með sms-skilaboðum. Annað sem
mig langar að nefna sem er nýtt hjá
okkur og við höfum verið að vinna í
samstarfi við Ortovox. Við vorum að
setja upp nú fyrir stuttu tvö fyrstu
skiltin hérlendis, en þetta hefur gef-
ið mjög góða raun erlendis. Þetta
eru skilti með snjóflóðaýlismóttak-
ara. Við erum búinn að setja upp
svona skilti í Hlíðarfjalli og við
Kaldbak. Svo erum við að setja upp
svona skilti í Landmannalaugum og
það stendur líka til að setja svona
upp í Bláfjöllum og Skálafelli.“
Það er greinilega margt fróðlegt og
skemmtilegt að gerast hjá Lands-
björg. En fyrir hvern er síðan www.
safetravel.is aðallega hugsuð?
„Síðan er náttúrlega á íslensku,
ensku, frönsku og er að detta inn
hjá okkur á þýsku. Það er stærri
hluti erlenda ferðamanna sem not-
ar síðuna. En það er nú bara þannig
að erlendir ferðamenn eru orðnir í
meirihluta af þeim sem eru að ferð-
ast um landið. En Íslendingar nota
síðuna líka,“ segir Jónas.
En hvað finnst Jónasi, hefur starf-
semi ykkar breyst mikið undanfar-
in ár með auknum straumi erlendra
ferðamanna?
„Já og nei. Á tímabilinu 2010 -2013
var útköllum svolítið að fjölga. Við
höfum hins vegar lagst í gríðarlega
mikla vinnu með atvinnuvegaráðu-
neytinu, Ferðamálastofu, Samtök-
um ferðaþjónustunnar og f leiri
hagsmunaaðilum til að vinna að
forvörnum. Í dag er því svo kom-
ið að atvikum er ekkert að fjölga í
samræmi við aukinn straum ferða-
manna. Þau eru hins vegar of mörg,
við erum að liðsinna 7-10 þúsund
ferðamönnum á ári. Þeirri tölu þurf-
um við að reyna að ná niður eins
og okkur er hægt og rólega að tak-
ast með auknum forvörnum. Það er
nú líka þannig að flest atvik gagn-
vart ferðamönnum eru minni, taka
skemmri tíma og þarfnast minni
mannskapar. Aðgerðir þar sem Ís-
lendingar koma við sögu eru yfir-
leitt stærri í sniðum og umfangs-
meiri,“ segir Jónas.
Hvað gerum við gert betur þegar kem-
ur að öryggismálum?
„Við höfum verið að gera ansi margt
gott. Vakinn gæðakerfi ferðaþjón-
Hvetjum fólk til að
skila inn ferðaáætlun
Hálendisferðir í sérflokki
Mountaineers of Iceland er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í
jeppa-, trukka- og vélsleðaferðum á Langjökli. Fyrirtækið hefur verið starfrækt síðan árið 1996.
Unnið í samstarfi við
Mountaineers of Iceland
Fyrirtækið býður upp á dags-ferðir fyrir bæði hópa og einstaklinga ásamt því að taka að sér skipulagningu
og framkvæmd á lengri ferðum.
Mountaineers of Iceland tók ný-
verið við Vakanum sem er gæða
og umhverfisstaðall aðila í ferða-
þjónustu. Auk þess fékk fyrirtækið
nýverið viðurkenningu frá Credit
Info fyrir að vera framúrskarandi
fyrirtæki en þetta er í þriðja árið í
röð sem fyrirtækið hlýtur
þá viðurkenningu.
Sandra Dögg
Björgvinsdóttir er
markaðsfulltrúi hjá
Mountaineers of
Iceland. Þegar hún er
spurð um hverjar séu vinsælustu
ferðirnar sem þau bjóða upp á segir
Sandra:
„Vinsælustu ferðirnar okkar eru
The Pearl Tour sem er leiðsögð
ferð í súper jeppa þar sem farið er
á Geysi, Gullfoss og Þingvelli og
klukkutíma sleðaferð. Önnur ferð
sem hefur notið mikilla vinsælda hjá
okkur er Hot Spring and Cool Glaci-
er, það er súper jeppaferð þar sem
stoppað er í
Secret Lagoon á Flúðum, klukku-
tíma sleðaferð á Langjökli og há-
degismatur innifalinn. Þriðja ferðin
sem mig langar til þess að nefna er
Snowmobile Into the Glacier. Sleða-
ferð vestanmegin við jökulinn og
klukkutíma ferð um íshellinn (Into
the Glacier). Að lokum verð ég að
nefna Meet us at Gullfoss. Þá mætir
fólk á Gullfoss og er keyrt þaðan á
stórum trukk upp á sleðasvæði þar
sem farið er í klukkutíma sleðaferð.
Sú ferð er tilvalin fyrir þá sem eru
búnir að fara Gullna hringinn og
langar einfaldlega bara að koma
á sleða.“
En hvernig skyldi sumarið líta
út með bókanir ?
„Það er nóg að gera hjá
okkur allan ársins hring og er
sumarið engin undantekning.
Á sumrin erum við oftar en ekki
að taka á móti mjög stórum hópum
og það eru margar bókanir komnar
og fleiri eru að detta inn núna fyrir
sumarið og þá bæði stórir hópar
sem og einstaklingsbókanir,“ segir
Sandra.
Eru þetta aðallega erlendir ferða-
menn sem eru að sækja í ferðirnar
ykkar?
„Það eru fyrst og fremst erlendir
ferðamenn sem eru að sækja í
ferðirnar okkar, en alltaf einhverjir
Íslendingar. Við sjáum mikla aukn-
ingu á fjöldanum hjá okkur í ár mið-
að við fyrstu tvo mánuðina 2016.
Þannig það er aukning á milli ára
og það væri skemmtilegt ef við
myndum fá fleiri Íslendinga til okkar.
Því ferðirnar okkar eru alls ekki
bara fyrir erlenda ferðamann, þetta
eru líka skemmtilegar ferðir fyrir
Íslendinga,“ segir Sandra.
Eruð þið með ferðir á fleiri staði
en Langjökul ?
„Við erum með nokkrar skipulagð-
ar súper jeppaferðir og þá skoðum
við hina ýmsu staði á Suðurlandinu.
Síðan bjóðum við upp á sérsniðnar
ferðir og þá setur sölufólkið okkar
saman frábærar ferðir að óskum
viðskiptavinarins,“ segir Sandra.
Eruð þið eitthvað að nýta ykkur
Into the Glacier ?
„Já, við erum með samstarfs-
ferðir með Into the Glacier. Við erum
með eina Súper jeppaferð (Lava
& Ice Into the Glacier) þar sem við
tökum meðal annars Borgarfjörðinn
og förum svo í íshellinn. Síðan erum
við með nokkrar samstarfsferðir
þar sem farið er á sleða og Íshellir-
inn skoðaður í miðri sleðaferðinni,“
segir Sandra.
Glæsilegur hópur sem tekur
á móti þér og skipuleggur
ferðir að þínum óskum.
Slysavarnafélagið Landsbjörg rekur vefsíðuna www.safetravel.is
en síðan fór í loftið árið 2010. Vefsíðan hefur það að leiðarljósi
að auka öryggi ferðamanna á Íslandi.
Jónas Guðmundsson sér um slysavarna-
mál hjá Landsbjörgu, hann vill sjá stjórn-
völd fara í uppbyggingu á vegakerfi
landsins.
ustunnar er dæmi um verkefni sem
hefur heppnast mjög vel og er gott
tæki líka. Það sem mér finnst helst
vanta upp á núna eru ferðamanna-
staðirnir sjálfir. En það erum við
núna að sjá með nýrri ríkisstjórn
að það eru jákvæð teikn á lofti og
framkvæmdir í gangi víða við fjöl-
farna ferðamannastaði. Sú hola
sem þarf helst að fylla núna er sam-
göngukerfið, sem mér finnst okk-
ar vera okkar erfiðasti hjallur. Við
þyrftum að fara í uppbyggingastarf
á samgöngukerfinu okkar og eyða
um 5 milljörðum á ári næstu 5 árin
til þess að geta farið í nauðsynlegar
endurbætur,“ segir Jónas.
Allar frekari upplýsingar er að
finna á síðunni www.safetravel.is
Slysavarnarfélagið Lands-
björg liðsinnir um 7-10 þúsund
ferðamönnum á ári hverju.
Myndir | SigÓSig
2 LAUGARDAGUR 18. MARS 2017VETRARFJÖR
Útgefandi: Morgundagur ehf. Ábyrgðarmaður: Valdimar Birgisson. Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300