Fréttatíminn - 07.04.2017, Qupperneq 20
20 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Félagsbústaðir keyptu fasteignina Seljahlíð í Breiðholti fyrir skömmu en það er kjarni hjúkr-unar- og þjónustuíbúða
fyrir aldraða. Í kjölfarið var íbúum
hússins tilkynnt að húsaleigan yrði
hækkuð í samræmi við önnur úr-
ræði Félagsbústaða. Leigan standi
í stað næsta árið en eftir það taki
hún að hækka í þrepum um allt að
hundrað prósent.
Íbúum var sagt að þeir fengju
flestir húsnæðisbætur á móti, svo
hver og einn íbúi myndi í raun ekki
borga hærra verð. Kerfinu yrði bara
breytt. Óvíst er þó hve margir eigi
rétt á húsnæðisbótum.
Íbúar tóku þessum tíðindum mis-
jafnlega og hafa meðal annars lýst
óánægju sinni í fjölmiðlum. Þeir
segja að fyrirhugaðar hækkanir
komi illa við íbúana. Breytingarn-
ar skapi óþægilega óvissu og hafi
valdið sumum miklum kvíða. Fé-
lagsbústaðir benda hinsvegar á að
gæta verði jafnræðis í leiguverði,
það sé erfitt að réttlæta að leigan sé
ódýrari í Seljahlíð en öðrum úrræð-
um Féalgsbústaða.
Stattu nú upp
Fréttatíminn hefur flutt fréttir af
Seljahlíð að undanförnu og var á
staðnum þegar forsprakkar Félags-
bústaða heimsóttu íbúðakjarnann í
vikunni. Gamli og nýi tíminn mætt-
ust í mötuneyti Seljahlíðar þar sem
málin voru rædd í þaula.
Birgir Ottóson, forstöðumað-
ur Félagsbústaða, og Auðun Freyr
Ingvarsson framkvæmdastjóri
höfðu boðað komu sína í hádeginu.
Þeir sögðust ekki vera komnir til
að halda formlegan fund, heldur
eingöngu til að borða og spjalla við
þá sem vildu. Úr varð að þeir sett-
ust niður afsíðis með blaðamanni
og Margréti, forstöðukonu hússins,
og útskýrðu í hverju fyrirhugaðar
breytingar fælust. Þar til aðstand-
andi bankaði upp á og sagði að fjöl-
margir íbúar sætu í matsalnum og
biðu eftir að rætt yrði við þá.
Úr varð að Margrét Ósvaldsdótt-
ir, forstöðukona Seljahlíðar, til-
kynnti í þéttsetnum matsalnum að
forsprakkar Félagsbústaða væru
komnir til að sitja fyrir svörum.
Auðun Freyr tók til máls og hóf
að útskýra hvað Félagsbústaðir
væru, að þeir ættu margskonar hús-
næði í borginni þar á meðal sam-
býli, búsetuúrræði fyrir fatlaða og
eldri borgara.
„Stattu nú upp og segðu hvað þú
heitir,“ kallaði Ingibjörg S. Finn-
bogadóttir hátt yfir salinn.
Ingibjörg er í húsráði Seljahlíð-
ar og hefur gagnrýnt fyrirhugaðar
hækkanir á húsaleigu.
„Já, ég heiti Auðun Freyr og er
uppalinn í Árbænum,“ sagði hann
og reis á fætur. „Ég hef verið hjá Fé-
lagsbústöðum í þrjú ár.“ Hann hélt
áfram að útskýra hver tilgangur og
markmið Félagsbústaða væri og að
batteríið sé ekki rekið í hagnaðar-
skyni.
„Er ekki til hátalari hérna? Það
heyrist ekkert í manninum,“ kallar
Ingibjörg.
Forstöðukonan útskýrði að íbú-
um hafi hingað til þótt verra að
heyra þegar talað væri í hljóðnema.
Byggt sem elliheimili
Auðun hélt áfram að segja frá Fé-
lagsbústöðum og að þeir hygðust
lyfta grettistaki í viðhaldi hússins
og stefndu meðal annars á að taka
garðinn umhverfis húsið í gegn.
Hækkun húsaleigunnar skýrist af
því að jafnræði verði að ríkja með-
al leigjenda. „Hjá Félagsbústöðum
er leiguverðskerfi sem tekur mið af
flatarmáli og fasteignamati. Leiga í
öðrum þjónustuíbúðum Félagsbú-
staða er mun hærri og til að vera
sanngjarnir verðum að hækka leig-
una í Seljahlíð.“
„En þessar íbúðir eru öðruvísi
en annarstaðar hjá ykkur. Ég hef
skoðað íbúðirnar á öðrum stöðum.
Það er til dæmis ekki útskot fyrir
rúm hjá okkur eins og er hjá hinum.
Við sofum bara í því sem á að heita
eldhús. Ég er með lögin hérna hjá
mér og þar stendur þetta skýrum
stöfum.“ Ingibjörg stóð upp og rétti
Auðuni blaðabunka sem hann sagð-
ist ætla að líta á síðar.
Nokkrir íbúar vilja meina að með
kaupum Félagsbústaða á húsnæð-
inu og því að nú eigi íbúar skyndi-
lega rétt á húsnæðisbótum, sé ver-
ið að reyna að láta herbergin sem
íbúar hússins leigi, hljóma eins og
fullbúnar íbúðir.
„En þetta eru bara herbergi. Það
er engin eldunaraðstaða. Það eru
pínulítil helluborð og brunakerf-
ið fer bara í gang ef maður reynir
að steikja pönnukökur. Þetta hús
var byggt sem elliheimili en ekki
íbúðir. Ég kom hingað í Seljahlíð
fyrir rúmu ári og hafði þá skoðað
aðrar íbúðir á vegum borgarinn-
ar. Ég spurði sérstaklega að því
hversvegna leigan hér væri lægri en
annarstaðar og þá var það vegna
þess að íbúðirnar hér uppfylltu ekki
skilyrði fyrir húsnæðisbótum,“ seg-
ir Sigrún Símonardóttir.
Ingibjörg segist hafa sótt um
húsaleigubætur fyrir tveimur árum
en ekki fengið.
Vildu heilbrigt samtal
Auðun getur ekki svarað því
hversvegna Ingibjörg hafi fengið
synjun á því en nú viti hann ekki
betur en að íbúar eigi rétt á bótum.
Það sé ekki hans að verja eða svara
fyrir þessa hluta kerfisins, þeir séu
einfaldlega ekki á hans könnu. „En
þetta er kerfið sem hefur verið kos-
ið hér í þessu landi.“
Margrét forstöðukona sagði
Íbúar Seljahlíðar mættu
Félagsbústöðum með hörðu
Kergja og óvissa hefur verið meðal íbúa Seljahlíðar eftir að tilkynnt var
að Félagsbústaðir hefðu keypt húsið og leigan myndi hækka verulega.
Félagsbústaðir benda á að margir fái húsnæðisbætur á móti og muni
varla finna fyrir hækkununum. Þeir hyggjast hinsvegar taka húsnæðið
í gegn og segja enga skerðingu á þjónustu fyrirhugaða. Fréttatíminn
fylgdist með því þegar aldraðir íbúar mættu fulltrúum Félagsbústaða til
að ræða breytingar sem mörgum þykir erfitt að skilja og sætta sig við.
Ingibjörg S. Finnbogadóttir er í húsráði Seljahlíðar og er ósátt við breytingarnar sem eru framundan. Hún mætti fulltrúum
Félagsbústaða með mikilli hörku í vikunni. Hér er hún ásamt öðrum íbúum hússins í matsalnum í Seljahlíð. Myndir | Hari
„Stattu nú upp og segðu
hvað þú heitir,“ kallaði
Ingibjörg S.Finnbogadótt-
ir hátt yfir salinn.
LAUGAVEGI 176 | GLERÁRTORGI | KRINGLAN | LINDESIGN.IS
FERMINGARTILBOÐ
RÚMFÖT 7.990-9.990 KR
40-70%
AFSLÁTTUR
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Sængur, koddar, rúm, sófar, lampar,
stólar, púðar, sloppar, borð og margt fleira.