Fréttatíminn - 07.04.2017, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 07.04.2017, Blaðsíða 44
44 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017 Kathryn kom til Íslands frá Bandaríkjunum til þess að vinna að doktorsverkefni sínu. Hún klappar nú kisunum í Kattholti í hverri viku, því hún saknar kattanna sinna heima. Í Kattholti búa ótal kátir kettir sem bíða þess að komast inn á gott heimili. Þeir þurfa að sjálfsögðu sömu alúð og ást og bræður þeirra og systur sem búa á heimilum landsins. Til þess að kisurnar fái alla þá ást sem þær þurfa fær Kattholt stundum sjálfboðaliða til þess að kjassast í kisunum, klappa þeim og leika við. Hin bandaríska Kathryn er meðal þeirra sjálfboða- liða sem koma reglulega í Kattholt til að leika við kisur. Kathryn á sjálf kisur í Bandaríkjunum sem hún varð að skilja eftir heima vegna aldurs, en hún býr hér á landi og vinnur að doktorsverkefni sínu í fornleifafræði. Kathryn finnst yndislegt að mæta í Kattholt enda er fátt jafn róandi og að klappa malandi kisu. „Þetta er frábært, ég stoppaði bara einn daginn og spurði hvort ég mætti vera sjálfboðaliði. Ég er í rauninni bara að klappa kisunum, sleppi þeim út og gef þeim tæki- færi til að hlaupa um í smá stund.“ Kathryn segir eldri kisurnar vera sérstaklega hugljúfar og best sé að kúra með þeim, en hún hvetur alla til þess að taka að sér kisur. Á laugardaginn er Páskabasar Katt- holts og þá geta áhugasamir sjálf- boðaliðar og aðrir kattaaðdáendur kíkt í Kattholt og klappað þessum loðnu vinum, eða jafnvel tekið að sér einn einmana kisa í leit að heimili. Kathryn elskar að klappa köttum. Mynd | Hari Gömlu kisurnar þurfa mikla ást Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@frettatiminn.is Aníta Estíva Harðardóttir var vakin með söng að morgni brúðkaupsdags-ins síns fyrir fimm árum síðan. Þar var að sjálf- sögðu að verki maðurinn henn- ar, Óttar Már Ingólfsson, en þó ekki í eigin persónu. Hann samdi til hennar lag, en til að virða ósk hennar um að gera hana ekki vandræðalega með að syngja það í brúðkaupsveislunni, útfærði hann atriðið á annan hátt. Fyrir skömmu tóku þau sig svo til og gerðu myndband við lagið sem nú má finna á Youtube. „Maðurinn minn er mjög dug- legur við að semja, syngja og spila á gítar, og ég var búin að segja við hann að mér þætti það svo kjána- legt ef hann myndi syngja í veisl- unni. Hann tók málið því á annað stig, fór í stúdíó og tók lagið upp og lét mömmu og pabba spila það fyrir mig þegar þau vöktu mig að morgni brúðkaupsdagsins, en ég gisti heima hjá þeim nóttina fyrir brúðkaupið,“ segir Aníta og hlær þegar hún rifjar þetta upp. „Hann ákvað að gera þetta svona, þannig þetta væri bara fyrir mig persónu- lega. En mig minnir að lagið hafi verið spilað í veislunni,“ bætir hún við. Aðspurð segist Aníta hafa bú- ist við því að maðurinn hennar myndi gera eitthvað fallegt fyrir hana í tilefni brúðkaupsins. „Hann er rosalega rómantískur og hef- ur verið duglegur að koma mér á óvart. Þannig í rauninni bjóst ég við því að hann myndi syngja í veislunni,“ segir hún kímin. En það var einmitt ástæðan fyrir því að hún minntist á það við hann að fyrra bragði. „Það er mjög gaman að eiga svona rómantískan mann, ég er mjög ánægð með þetta og við höld- um mikið upp á lagið. Þetta er svo einlægur og persónulegur texti, en samt fyndinn líka. Hann grín- ast mjög mikið og þetta er því mik- ið í hans stíl. Þetta er ekki einhver algjör klisja.“ Fyrr á þessu ári, fimm árum eftir brúðkaupið, settu þau svo saman myndband við lagið. „Ég var eitthvað að vesenast í tölv- unni, rakst á lagið og fékk þessa hugmynd. Til að geta sett það á facebook. Hann var ekkert alveg til í það í fyrstu en lét til leiðast. Við notuðum bara persónulegar myndir og myndbönd úr lífi okkar saman.“ Aníta viðurkennir að þetta hafi hins vegar aðeins undið upp á sig og margir hafi horft á myndbandið á Youtube. Viðbrögðin hafa verið góð, enda kunni fólk vel að meta svona krúttlegheit. Ekki skemmir fyrir að það leynist óvæntur gestur í mynd- bandinu. „Í einu myndbandinu sem við notuðum, þar sem ég er í ungbarnasundi með stráknum mínum, syndir allt í einu forseti Íslands bak við okkur. Það kemur út eins og hann sé að dansa inn í myndina. Við áttuðum okkur ekkert á þessu á þeim tíma, enda var hann ekki orðinn forseti þá. Við sáum þetta bara þegar við vor- um að klippa myndbandið. Mjög fyndið. Hann veit ekkert af þessu en hver veit nema hann sjái mynd- bandið núna.“ Forsetinn varð óvænt leynigestur í brúðkaupsmyndbandinu Óttar kom Anítu á óvart á brúðkaupsdaginn þeirra fyrir fimm árum. Eiginmaður Anítu samdi lag til hennar í tilefni af brúðkaupi þeirra, skellti sér í stúdíó og tók það upp. Nýlega settu þau saman myndband við lagið þar sem Guðni Th. Jóhannesson poppaði óvænt upp.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.