Fréttatíminn - 07.04.2017, Síða 22
22 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
THE FULL RAY-BAN EXPERIENCE
NÝTT!
RAY-BAN - nú með styrkleikaglerjum framleidd af RAY-BAN. Styrkleika-
glerin eru með RAY-BAN merkingum. Fást bæði ólituð eða sem sólgler.
fólkinu að bráðum kæmu félags-
ráðgjafar á vegum borgarinnar til
að fara yfir stöðu hvers og eins og
komast til botns í því hverjir eigi
rétt á húsnæðisbótum.
„En er sanngjarnt að leigan
hækki upp í hundrað og eitthvað
þúsund þegar við fáum 230 þúsund
krónur á mánuði? Hvernig á það að
ganga upp?“ kallar Ingibjörg háum
rómi.
„Já, mér finnst hundrað þúsund
krónur sanngjarnt leiguverð fyr-
ir 57 fermetra íbúð,“ segir Auðun.
Birgir tekur undir og segist alls ekki
vilja valda ruglingi. Margt sem sagt
hafi verið um söluna á Seljahlíð sé
beinlínis rangt og það sé alls ekki
allt rétt sem fjallað hafi verið um
í fjölmiðlum. „Við viljum ekki ala
á einhverjum misskilningi og ótta.
Við viljum skapa hérna sátt við íbú-
ana. Eigum við ekki að hafa þetta
heilbrigt samtal?“ spurði Birgir.
„Vilt þú ekki bara orða spurn-
ingar okkar líka, úr því þér finnst
þær ekki vera nógu heilbrigðar?“
spurði Ingibjörg.
Þið kölluðuð sjokkið yfir fólkið
Gissur Guðmundsson tekur til máls
en foreldrar hans hafa búið í Selja-
hlíð í nokkra mánuði. „Áður en
þau fluttu hingað inn skoðuðu þau
aðra möguleika. Við litum meðal
annars á leiguverðið þegar þau voru
að gera upp hug sinn og þetta hent-
aði þeim vel. Hér gátu þau hugsað
sér að búa áhyggjulaus fram á sína
síðustu daga, því planið þeirra gekk
upp. Allt þar til að plaggat var hengt
upp hér í húsinu um að Félagsbú-
staðir væru búnir að kaupa og til
stæði að hækka leiguna. Foreldrar
mínir eiga að öllum líkindum ekki
rétt á húsnæðisbótum og þessar
fyrirhuguðu hækkanir er enginn
smá biti fyrir þau. Það er ekki verið
að hækka húsaleigu hjá venjuleg-
um þegnum Reykjavíkurborgar,
það er verið hækka leigu á öldruðu
fólki sem getur ekki varið sig og er
kannski að kljást við Alzheimer.
Fólkið hér er ekki óánægt með að
Félagsbústaðir kaupi húsið. Þið köll-
uðuð sjokkið yfir fólkið með þess-
um hækkunum. Hefði ekki verið
réttara að hækka leiguna þegar nýtt
fólk flytti inn og hlífa íbúunum hér
við þessum breytingum?”
Gissur telur að kaup Félagsbú-
staða á Seljahlíð hafi verið keyrt í
gegn í kerfinu á miklum hraða án
þess að borgarfulltrúar hafi áttað
sig á afleiðingum kerfisbreyting-
anna á íbúa hússins.
Birgir svarar því að rekstur Fé-
lagsbústaða verði að standa undir
sér og aðrir leigjendur hjá Félags-
bústöðum geti ekki að niðurgreitt
leiguna fyrir íbúa Seljahlíðar.
Erlendar konur úr eldhús-
inu koma og taka af borðum íbú-
anna. Fleiri íbúar safnast saman í
matsalnum og einhverjir ættingj-
ar líka. „Hvað með mötuneytið?“
kallaði einn aftast í salnum. „Verður
það áfram? Ég má til með að hæla
matnum hérna, hann hefur verið
frábær.“
Forstöðukonan og mennirnir frá
Félagsbústöðum fullvissa fólkið
um að þjónustan í húsinu haldist
óbreytt með öllu.
Kom brunavörnum af stað
Birgir bætir við að Félagsbústaðir
vilji taka hraustlega á því í viðhaldi
hússins. „Við hyggjumst ráðast hér
í viðhald á hitakerfi sem er komið
til ára sinna, við munum yfirfara
brunavarnir og ýmislegt fleira.“
„Já ég hef nú ekki áhyggjur af
brunakerfinu, ég hef komið því að
af stað í þrisvar með þessum hellu-
borðum,“ sagði Sigrún.
„En má ég þá spyrja ykkur að
því, hvað er það sem þið eruð svona
ósátt við?“ spurði Birgir.
„Þessar hækkanir,“ sagði Ingi-
björg.
„En það er búið að taka ákvörun
um þær og því verður ekki breytt.
Þannig er staðan,“ sagði Birgir.
„En húsaleigan hækkar ekkert
fyrsta árið. Svo hækkar hún um
3500 krónur á mánuði þar til hún
er orðin jafn há og í öðrum íbúðum
Félagsbústaða,“ sagði Margrét for-
stöðukona.
Það fer kliður um salinn. „Ha?“
spurði einhver. „Hækkar leigan
ekki strax?“
„Nei,“ sagði Margrét. „Af hverju
var okkur ekki sagt þetta strax?“
spurði annar íbúi.
Aðstandendur á staðnum hvísla
í eyru blaðamanns að í salnum
sé meðal annars fólk sem glími
við heilabilun og minnisglöp og
það sé erfitt fyrir þau að meðtaka
breytingarnar. Fundurinn stóð í
meira en klukkustund og var ekki
annað að heyra en að íbúarnir yrðu
sáttari þegar á leið. Enn voru þeir
þó ósáttir við þá einhliða ákvörðun
að leiguverðið yrði hækkað, því
engir íbúar Seljahlíðar sjá fram á að
tekjur þeirra hækki á næstu árum.
Birgir Ottóson, forstöðumaður Félagsbústaða, og Auðun Freyr Ingvarsson framkvæmdastjóri heimsóttu Seljahlíð.
„Það er verið hækka
leigu á öldruðu fólki sem
getur ekki varið sig og
er kannski að kljást við
Alzheimer.“