Fréttatíminn - 07.04.2017, Síða 26

Fréttatíminn - 07.04.2017, Síða 26
26 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017 Hér er besta avókadóið í bænum Patience Adja- hoe Karlsson rekur verslun í Hólagarði í Breiðholti sem er í raun hálfgerð félagsmiðstöð. Mynd | Hari Ég á níu ára dóttur sem er með ótrúlegt hár. Ég veit ekki alveg hvaðan það eiginlega kemur. Það er svo svakalega þykkt og krullað að það er algjör- lega vonlaust að vinna með það,“ segir Patience Adjahoe Karlsson og hlær en það var einmitt þetta ótrúlega hár sem varð til þess að hún ákvað að flytja inn hárvörur til Íslands og opna sína eigin verslun. Patience er frá Gana þar sem hún hitti Íslending á túnfiskveiðum fyr- ir fjórtán árum. „Við giftum okkur í Gana og fluttum svo til Íslands. Á þeim tíma var ég í skóla að læra að verða bókari og ég ákvað að halda áfram að læra þegar ég kom hing- að. Ég kláraði svo námið þegar ég var búin að eiga börnin mín, seg- ir Patience sem hafði lengi átt sér þann draum að opna sína eigin verslun þar sem hún gæti selt vör- ur frá Afríku. „Ég hafði mikið reynt að tala við Hagkaup og Kost til að benda þeim á að það væri stór markað- ur fyrir afrískar vörur á Íslandi en það hlustaði enginn á mig. Hér er stórt samfélag fólks sem vantaði bæði mat og hreinlætisvörur og ég benti þeim á að ef þeir flyttu þetta inn gæti ég selt vöruna fyrir þá. En þeir hlustuðu ekki á mig svo á endanum gerði ég þetta bara sjálf,“ segir Patience. Hún tók endanlega ákvörðun þegar hún var stödd á Englandi, í skiptinámi frá Háskól- anum í Reykjavík. „Það er bara eitt krem sem virkar á hárið á dóttur minni og ég var vön að fá það sent frá vinkonu minni sem býr í Bandaríkjunum. En svo þegar hún bjó þar ekki leng- ur var ég í algjörum vandræðum. Þegar ég svo bjó á Englandi fann ég þetta krem aftur og keypti hell- ing. Vinkonur mínar fóru að biðja mig um að kaupa fyrir sig og senda til Íslands og ég sá að nú yrði ég bara að opna búðina. Ég var ekki alveg viss um hvernig búðin myndi líta út og hvað ég myndi nákvæm- lega selja en ég vissi að ég vildi ekki bara selja hárvörur heldur líka mat.“ „Vinsælasta varan í búðinni, fyr- ir utan hárkremin, er grænmetið og ávextirnir,“ segir Patience en hún fær ferskmetið sent frá London í hverri eða annari hverri viku. „Ég er með allt sem ekki er hægt að fá annarsstaðar eins og til dæmis okru, en líka mangó, papaya og hér er besta avokaódið í bænum,“ segir Patience en í búð- inni hennar er hægt að finna allt frá kryddum, þurrkuðum fiski, olí- um, smjöri og sósum yfir í hælaskó, afrísk efni, föt, húðkrem og gervi- hár. Í einu horni búðarinnar er hárgreiðslustofa og í öðru er borð og tveir kollar þar sem situr næst- um alltaf einhver og spjallar eða borðar. Patience segir verslunina í raun líkjast meira félagsmiðstöð en búð enda þekki hún örugglega alla frá Gana á Íslandi, sem eru hátt í hundrað manns. „Mér finnst skipta mestu máli að hafa mat í búðinni því matur er svo mikilvægur fyrir innflytj- endur. Þegar þú ert langt í burtu frá heimalandinu er svo huggandi að borða þinn eigin mat, sérstak- lega í félagi við annað fólk,“ seg- ir Patinence sem hittir landa sína reglulega og þá oftar en ekki til að elda saman. „Hér áður fyrr hittu- mst við allar helgar en núna er það ekki jafn oft en samfélagið okkar er mjög samheldið. Þetta er eig- inlega meiri menningarmiðstöð en búð. En það kemur hingað alls konar fólk, bæði úr hverfinu og líka fólk sem kemur langt að sem er að leita að einhverju sérstöku. Þetta er einmitt það skemmtilega við að reka búð, allt þetta fólk.“ Í verslun Patience Adjahoe Karlsson er hægt að finna allt frá hælaskóm og afrískum efnum yfir í þurrkaðan fisk, krydd og ferskvöru frá London. En þar er líka alltaf hægt að lenda á spjalli og panta sér hárgreiðslu. „Mér finnst skipta mestu máli að hafa mat í búð- inni því matur er svo mikilvægur fyrir innflytj- endur. Þegar þú ert langt í burtu frá heimalandinu er svo huggandi að borða þinn eigin mat.“ Voxis hálstöflur eru unnar úr laufum íslenskrar ætihvannar og njóta mikilla vinsælda. VELDU VOXIS FYRIR RÖDDINA „VOXIS ER MITT FYRSTA VAL“ Gissur Páll Gissurarson, tenór SÆKTU RADDSTYRK Í ÍSLENSKA NÁTTÚRU Sykurlaus Voxis, klassískur og sykurlaus með engifer NÝJARUMBÚÐIR NÝJAR BRAGÐ- TEGUNDIR E N N E M M / S IA • N M 80 9 16 INNFLYTJANDINN Patience Adjahoe Karlsson

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.