Fréttatíminn - 07.04.2017, Page 48
Páskaliljur
Lífgaðu upp á heimilið með gulum
páskaliljum í fallegum vasa. Þær
minna okkur á að vorið sé á næsta
leiti þó að páskahret dynji
yfir. Svo er gulur auð-
vitað einstaklega
fallegur litur sem
fer vel á stofu-
borðinu.
Máluð egg
Það er gaman að föndra sitt eigið
páskaskraut og það að mála venjuleg
hænuegg í fallegum litum er alltaf klass-
ískt. Það þarf að byrja á því að gera lítil
göt á eggin til að
ná innihaldinu
út, en leiðbein-
ingar má finna á
Youtube.
Páskagreinar
Einfaldasta
páskaskrautið er
venjuleg trjágrein
með gulum slauf-
um á. Það er auðvelt að fara í stuttan
göngutúr og tína nokkrar greinar. Gula
borða má svo fá í búðum eins og Tiger
og Söstrene Grene. Settu afraksturinn í
vasa og njóttu þess að hafa í stofunni.
ÞRJÁR
HUGMYNDIR
AÐ PÁSKA
SKRAUTI
Ef þú værir dýr,
hvaða dýr værir þú?
Náttúrulegt
Þörungamagnesíum
ENGIN
MAGAÓNOT
Mikil virkni
Bragðlaust duft í kalt vatn
5 mán. skammtur
Nýjar
umbúðir
Kolbrún Helga
Pálsdóttir
Ég væri ljón. Mér finnst þau svo
tignarleg og töff, það er ákveðin
fyrirmynd í því. Svo sofa þau
frekar mikið og ég hef ósjaldan
verið kölluð ljón út frá makkan-
um á höfðinu á mér svo kannski er
einhver tenging þar.
Rakel Dögg
Óskarsdóttir
„Gíraffi. Af því að hann er með svo
langan háls og getur náð í allt.“
Magni Freyr Möller
Magnússon
„Ég fékk að hringja í vin og hann
sagði: Refur, af augljósum ástæð-
um.“