Fréttablaðið - 27.01.2018, Blaðsíða 4
Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir
borgarfulltrúi
hyggst í byrjun
febrúar leggja
fram tillögu í
borgarstjórn
um að borgar-
yfirvöld auðveldi
skólastjórnendum
að banna notkun snjallsíma í
grunnskólum borgarinnar. Svein-
björg segir snjallsímanotkun
grunnskólabarna á skólatíma vera
vaxandi vandamál en hún hefur
fulla trú á að hægt sé að koma
böndum á notkun símanna.
Ólafía Hrönn Jónsdóttir
leikkona
missti Lúðvík
Steinarsson,
lögmann og
formann þorra-
blótsnefndar, í
gólfið á þorra-
blóti Stjörnunnar
um síðustu helgi.
Atriðið var að sögn Ólafíu vel æft
en hlutirnir fóru úrskeiðis þegar á
hólminn var komið. Lögmaðurinn
er lemstraður eftir útreiðina en á
batavegi.
Sigríður Á. Andersen
dómsmálaráðherra
svaraði bréfi
umboðsmanns
Alþingis þar
sem hann
óskaði eftir
upplýsingum
um þá aðila sem
ráðherrann ráðfærði
sig við vegna skipunar dómara við
Landsrétt. Sagði hún að líkast til
myndi hún greina frá öllum sam-
skiptum sínum við umboðsmann.
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
ÖLL BRAUÐ Á
25%
AFSLÆTTI
ALLA MÁNUDAGA
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
• Fálkagötu 18
PREN
TU
N
.IS
www.bjornsbakari.is
NeyteNdur Coca-Cola á Íslandi
mun ekki breyta uppskriftinni að
upprunalega kókinu í viðleitni
sinni til að draga úr sykri í vöru-
línum sínum hér á landi um tíu
prósent fyrir árið 2020.
Coca-Cola European Partners
Ísland greindi frá þessari skuld-
bindingu sinni á janúarráðstefnu
Festu í Hörpu á fimmtudag.
Í kjölfarið mátti greina áhyggju-
raddir meðal aðdáenda klassíska
kóksins sem óttuðust að hróflað
yrði við sykurmagninu á kostnað
bragðs. Stefán Magnússon, mark-
aðsstjóri Coca-Cola á Íslandi, segir
að þeir geti andað léttar.
„Við erum að tala um grömm á
hvern seldan lítra af óáfengum vöru-
tegundum. Við reiknuðum út hvað
við seljum mikið, mjög nákvæmlega
hvað er mikill sykur í hverri vöru og
fengum út hversu mörg grömm af
sykri við seldum per lítra,“ útskýrir
Stefán.
Yfirlýsingar um tíu prósenta
sykur minnkun eiga þó ekki við
um mest selda sykraða gosdrykk
landsins um langt árabil, Coca-Cola
Classic.
„En það verður vöruþróun í
Fanta, Sprite og Schweppes og nýjar
vörur sem við setjum á markað
verða sykurminni. Í einhverjum til-
vikum verða þær með sykri en við
erum markvisst að draga úr magni í
grömmum per seldan lítra og leggja
áherslu á minni skammtastærðir,“
segir Stefán.
Það er ekkert leyndarmál að
undir staðan í klassíska kókinu, sem
og helstu keppinautum þess á borð
við Pepsi, er að megninu til sykur.
Í hverjum einasta lítra af gos-
drykknum vinsæla eru 108 grömm
af viðbættum hvítum sykri, eða
sem nemur 54 sykurmolum, ef hver
og einn er tvö grömm. Eftir sem
áður verður mest seldi gosdrykkur
Íslands óbreyttur, meðan unnið
verður að skaðaminnkun á öðrum
sviðum. – smj
Áfram sama sykurmagn í klassísku kóki
Svona líta sykurmolarnir 54 í kók
lítranum út. Fréttablaðið/anton brink
Þrjár í fréttum
Símabann,
fall og
ráðherraraunir
tÖLur VIKuNNAr 21.01.2018 tIL 27.01.2018
26
börn eru nú á leikskólaaldri á
Kirkjubæjarklaustri. Hefur þeim
fjölgað úr 13 í 26 á einu ári og bið-
listi myndast. Var því nýlega ákveð-
ið að kaupa
færanlega
kennslu-
stofu fyrir
11 millj-
ónir króna til
þess að koma
öllum fyrir.
3,2
milljarða króna fram-
kvæmdum hefði þurft að
ljúka til að kísilver United
Silicon hefði talist fullklárað.
Félagið lýsti sig gjaldþrota
fyrr í vikunni eftir samfellda
raunasögu sem var á köflum
nánast reyfarakennd.
2.000
krónur er fermetra-
verðið í Mathöllinni
á Hlemmi sam-
kvæmt leigusamn-
ingi sem gerður
var við Eignasjóð
Reykjavíkurborgar. Í
heild kostar leigan
rúmlega milljón
krónur á mánuði en
húsnæðið er 529
fermetrar að stærð.
1.982
tonn voru
flutt af kló-
settpappír
hingað til
lands frá
maí til
nóvember í
fyrra. Er um
talsverða
aukningu
að ræða en á sama tímabili árið
2016 voru flutt inn tæplega
1.234 tonn af klósettpappír.
11%
forstjóra
hundrað stærstu
fyrirtækja lands-
ins eru konur
en 89 prósent
karlar. Þrátt fyrir
það voru tveir af
hverjum þremur
nemendum sem
útskrifuðust úr HÍ
og HR í fyrra kon-
ur en einungis
þriðjungur karlar.
1.450
hreindýr má veiða á þessu ári
en umhverfis- og auðlindaráð-
herra gaf í vikunni út kvóta.
Þá er gert ráð fyrir 1.061 kú og
389 törfum. Fjölgunin milli ára
nemur 135 dýrum.
SAmgÖNgur „Um leið og stjórnin
bregst við og breytir þessu þá er
þetta vandamál sjálfleyst. Það
myndi einfalda margt,“ segir Guð-
mundur Heiðar Helgason, markaðs-
og upplýsingafulltrúi Strætó, um
þann vanda sem hækkun aldurs-
marka á afslætti eldri borgara í 70
ár olli öryrkjum.
Fréttablaðið fjallaði um það í
vikunni að stjórn Strætó hafi fyrir
áramót viljað lækka aldursmörk
afsláttarins aftur niður í 67 ár eftir
að þau voru hækkuð í 70 ár í hag-
ræðingaraðgerðum árið 2011.
Breytingunum var hins vegar
frestað þar sem stjórnin vildi vita
hver kostnaðurinn við hana yrði.
Fólk á aldursbilinu 67 til 69 ára
telst því til eldri borgara víðast hvar
í þjóðfélaginu, nema í strætó.
Þetta skapar vandamál fyrir fleiri.
Öryrkjar njóta sömu afsláttarkjara
og sjötugir eldri borgarar hjá Strætó
og fá sömu kort og miða. Hins vegar
fellur greiðsla örorkulífeyris eða
örorkustyrks niður við 67 ára aldur
og við tekur ellilífeyrir. Öryrkjar
teljast þá til eldri borgara, bara ekki
í Strætó.
Samkvæmt reglum Strætó ættu
öryrkjar, sem náð hafa 67 ára aldri,
því að þurfa að greiða fullt fargjald
til sjötugs.
Guðmundur Heiðar segir þetta
vissulega óhentugt en að málin hafi
hingað til verið leyst hverju sinni
til að brúa þetta þriggja ára bil og
tryggja öryrkjum afsláttarkjör sín
áfram.
„Ég er sammála því að þetta er
óheppilegt en yfirleitt hefur þetta
verið þannig að þeir sem eru með
öryrkjakortin, þótt þau séu útrunn-
in, hafa getað komið með þau og
sýnt þau. Og ef þeir hafa losað sig
við þau þá hefur það verið leyst
öðruvísi, jafnvel með því að sýna
gamla miða. Við höfum leyst málin
og fundið út úr þeim í sameiningu
með viðkomandi hverju sinni,“ segir
Guðmundur Heiðar.
Gísli Jafetsson, framkvæmdastjóri
Félags eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni, sagði í Fréttablaðinu í gær
að krafa eldri borgara væri að aldurs-
mörkin yrðu færð niður strax sem og
að gjaldfrjálst yrði fyrir eldri borgara
í strætó. mikael@frettabladid.is
Aldursmörk hjá Strætó setja
öryrkja í þriggja ára tómarúm
Öryrkjar verða ellilífeyrisþegar við 67 ára aldur og missa þá örorkuafslátt sinn af fargjöldum Strætó. Af-
sláttarkjör fyrir eldri borgara miðast hins vegar við 70 ára aldur og þurfa öryrkjar því að greiða fullt verð í
millitíðinni. Strætó segir að vandamálið hafi hingað til verið leyst í samvinnu við viðskiptavinina sjálfa.
brúa þarf þriggja ára bil milli örorkuafsláttar og eldri borgara afsláttar hjá Strætó með fiffi. Fréttablaðið/anton brink
Við höfum leyst
málin og fundið út
úr þeim í sameiningu með
viðkomandi hverju sinni.
Guðmundur Heiðar Helgason,
markaðs- og upplýsingafulltrúi Strætó
2 7 . j A N ú A r 2 0 1 8 L A u g A r d A g u r4 f r é t t I r ∙ f r é t t A B L A ð I ð
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
8
-5
5
E
0
1
E
D
8
-5
4
A
4
1
E
D
8
-5
3
6
8
1
E
D
8
-5
2
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K