Fréttablaðið - 27.01.2018, Blaðsíða 6
TAO
Apartments
Hotel
Costa Caleta
Occidental Jandia
Playa Hotel
Labranda Cactus
Garden Hotel
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
86
13
3
Frá kr. 69.995
m/ekkert fæði innif.
Netverð á mann frá
kr. 69.995 m.v. 2 fullorðna
og 2 börn í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 89.995 m.v. 2 fullorðna
í íbúð.
Frá kr. 104.895
m/allt innifalið
Netverð á mann frá
kr. 104.895 m.v. 2
fullorðna og 2 börn í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 123.895 m.v. 2
fullorðna í herbergi.
Frá kr. 115.245
m/hálft fæði innif.
Netverð á mann frá
kr. 115.245 m.v. 2
fullorðna og 2 börn í
fjölsk.herb.
Netverð á mann frá
kr. 131.795 m.v. 2
fullorðna í herbergi.
Frá kr. 112.795
m/allt innifalið
Netverð á mann frá
kr. 112.795 m.v. 2
fullorðna og 2 börn í svítu.
Netverð á mann frá
kr. 147.595 m.v. 2
fullorðna í svítu.
Bókaðu sól
FUERTEVENTURA
12. febrúar í 10 nætur
Allt að
25.000 kr.
afsláttur á mann
Frá kr.
89.995
Frá kr.
69.995
SAMFÉLAG „Allar konur geta lent í
ofbeldi, en eðli þess er annað, þegar
um er að ræða konur af erlendum
uppruna. Kona sem kemur frá öðru
landi er berskjölduð, með engan
stuðning. Það er kannski engin
fjölskylda og enginn skilningur á
hennar stöðu. Svo er hún einangruð
og er sagt að þegja ef hún kvart-
ar. Bara, velkomin til Íslands,“ segir
Shelagh Smith, varaformaður Félags
kvenna af erlendum uppruna, eða
W.O.M.E.N.
Shelagh telur að í kjölfarið á
þessum frásögnum sé mikilvægt að
upplýsingum sé komið til kvenna,
um allt land, um aðstoð og vernd
sem þær eiga rétt á.
„Það geta auðvitað allar konur
lent í ofbeldi, en það sem vantar
fyrir konur af erlendum uppruna er
sama upplýsingagjöf og til íslenskra
kvenna,“ segir Shelagh. Næsta skref-
ið sé að reyna að koma jafn miklu
af upplýsingum til þessara kvenna.
„Sérstaklega ef þær eru fastar
heima. Það gengur ekki að þær fái
einungis upplýsingar fá karlinum
sem er að beita þær ofbeldi, eða
vinnuveitanda sem er að ljúga að
þeim. Það vantar einhvern full-
trúa án fordóma, sem ekki er undir
áhrifum frá vinnuveitendum og er
einfaldlega algerlega hlutlaus.“
Shelagh vill að brugðist verði við
sögunum. Kannski helst úti á landi,
þar sem er ekki sama þjónusta í
boði og á höfuðborgarsvæðinu. Þar
sé mögulega brýnna að konur geti
sótt sér upplýsingar og aðstoð, því
þar séu þær jafnvel enn einangraðri.
„Ég vil að það sé einhver í hverj-
um bæ og þorpi, skilgreindur, sem
hægt er að leita til. Það væri gott ef
sveitarfélögin gerðu það. Þau eiga
auðvitað að taka ábyrgð á íbúum
sínum,“ segir Shelagh.
Að sögn Shelagh getur margt
stjórnað því að konur segi ekki frá
og samþætting við íslenskt samfélag
Ofbeldið gegn erlendu
konunum annars eðlis
Varaformaður W.O.M.E.N., félags kvenna af erlendum uppruna, telur mikilvægt
að bæta upplýsingagjöf til þessa hóps og tryggja að gætt sé að réttindum allra.
Hún segir hópinn vera sérstaklega berskjaldaðan og oft með engan stuðning.
✿ Hlutfall af erlendum uppruna
5% 24% 31%
Stígamót
Saman gegn ofbeldi:
Heimilisofbeldi á
höfuðborgarsvæðinu Kvennaathvarfið
20% 11%
Barnaverndarstofa Bjarkarhlíð
geti að mörgu leyti verið betri.
„Hræðsla getur auðvitað stjórnað
því að miklu leyti hjá konum af
erlendum uppruna hvort þær segi
frá eða ekki. Þær eru hræddar við að
missa heimilið, börnin sín, eða jafn-
vel verða sendar úr landi. Einfald-
lega af því að það er búið að segja
það við þær, eitthvert bull. Eina
upplýsingagjöfin er mögulega frá
manni sem er að beita þær ofbeldi,“
segir Shelagh.
W.O.M.E.N hefur síðastliðin tvö
og hálft ár boðið upp á jafningja-
ráðgjöf. Það er ókeypis þjónusta þar
sem ráðgjafar samtakanna annað-
hvort aðstoða konurnar eða leið-
beina þeim um hvar eða hvernig
þær geti leitað sér hjálpar. Frá því
að þær byrjuðu að bjóða upp á slíka
ráðgjöf hafa 40 til 60 konur leitað til
þeirra á skrifstofuna og svo fá þær
yfirleitt eitt til þrjú símtöl á viku.
Ráðgjöfin er í boði tvisvar í
mánuði, á þriðjudagskvöldum. Þar
eru ráðgjafar sem tala ýmis tungu-
mál, meðal annars íslensku, ensku,
pólsku, þýsku, rússnesku, taílensku
og spænsku. lovisaa@frettabladid.is
Hræðsla getur
auðvitað stjórnað
því að miklu leyti hjá konum
af erlendum uppruna hvort
þær segi frá eða ekki.
Shelagh Smith,
varaformaður
Félags kvenna
af erlendum
uppruna
SAMGönGuMáL Stjórn Samtaka
ferðaþjónustunnar skorar á stjórn-
völd að bregðast við þeim aðstæðum
sem komnar eru upp hvað varðar
innanlandsflug og stöðu flugvalla á
Íslandi.
Stórefla þarf alla innviði flugsam-
gangna. Uppsöfnuð viðhaldsþörf
annarra flugvalla og lendingarstaða
en Keflavíkurflugvallar nemur tveim-
ur 2 til þremur milljörðum króna
Í byrjun janúar hóf bresk ferða-
skrifstofa að fljúga til Akureyrar og
eru 14 flugvélar áætlaðar til Akureyr-
ar fram í miðjan marsmánuð. Mikið
hefur verið rætt um mikilvægi þess
að dreifa ferðamönnum um landið
sem og að lengja tímabil ferðaþjón-
ustunnar á landsbyggðinni. Tvisvar
hefur það gerst að vélarnar hafa þurft
að hverfa frá Akureyrarflugvelli og
lenda í Keflavík.
„Öruggar samgöngur, hvort heldur
sem er á landi eða í lofti, skipta miklu
máli þegar kemur að því að dreifa
ferðamönnum betur um landið
okkar. Á það sérstaklega við yfir vetr-
armánuðina þegar ferðaþjónusta á
landsbyggðinni á undir högg að
sækja,“ segir í ályktun stjórnar SAF.
Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra segir Isavia hafa haft
þá stefnu að stækka Keflavíkurflug-
völl á meðan stefnuna hafi skort í
uppbyggingu annarra flugvalla.
„Já, ég vil halda því fram að það
hafi skort stefnu,“ segir Sigurður Ingi.
SAF segir í ályktun sinni að mikil-
vægt sé að ráðast í að stækka flug-
hlað og flugstöðina á Akureyri til að
hægt sé að sinna millilandaflugi og
þjónusta flugfarþega með viðunandi
hætti. Sigurður Ingi tekur í sama
streng.
„Sóknarfærin sem felast í því að
opna fleiri hlið inn í landið eins og
nú er að gerast kalla á uppbyggingu
á Akureyri alveg eins og eftirspurnin
í Keflavík kallaði á uppbyggingu þar.
Þetta er það sem við erum að kort-
leggja,“ bætir Sigurður Ingi við.
Að mati samgönguráðherra er
uppsöfnuð viðhaldsþörf mikil.
„Samgöngur í heild sinni, og þá
sérstaklega vegina og flugið, hefur
skort fjármagn í mörg ár. Við höfum
aukið þetta síðastliðin tvö ár en
uppsöfnuð þörf er orðin nokkuð
mikil.“ – sa
Aukning í flugi kallar á uppbyggingu á
Akureyrarflugvelli að sögn ráðherra
Að mati Sigurðar Inga þarf að leggja fé í flugvelli á landinu. Nefnd á vegum
ráðuneytisins kortleggur nú innanlandsflugið. FréttAblAðIð/VIlhelm
Sigurður Ingi
Jóhannsson.
2 7 . j A n ú A r 2 0 1 8 L A u G A r D A G u r6 F r É t t i r ∙ F r É t t A B L A ð i ð
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
8
-6
9
A
0
1
E
D
8
-6
8
6
4
1
E
D
8
-6
7
2
8
1
E
D
8
-6
5
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K