Fréttablaðið - 27.01.2018, Blaðsíða 8
Hann er kominn til landsins og tilbúinn í ævintýrin með þér; nýr KAROQ – með snjallar lausnir og
tækninýjungar sem gera aksturinn öruggari og skemmtilegri. Komdu og sjáðu nýjan ŠKODA KAROQ
og endurnýjaðu tengslin við það sem drífur þig áfram í lífinu. Hlökkum til að sjá þig!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is www.skoda.is
KAROQ OPNAR ÞÉR
NÝJAR LEIÐIR Í LÍFINU
NÝR ŠKODA KAROQ KEMUR SKEMMTILEGA Á ÓVART.
ŠKODA KAROQ frá:
3.890.000 kr.
Fjölmiðlar Yfirgnæfandi stuðn-
ingur er við þá tillögu nefndar um
rekstrarumhverfi einkarekinna
fjölmiðla að færa áskriftartekjur
íslenskra fjölmiðla í neðra þrep
virðisaukaskatts. Af þeim 39 þing-
mönnum sem Fréttablaðið náði
sambandi við og tóku afstöðu til
málsins voru aðeins sex andvígir
tillögunni; þingmenn Viðreisnar
og Vinstri grænna, auk Sjálfstæðis-
mannsins Brynjars Níelssonar.
Í skýrslu nefndarinnar, sem Lilja
Alfreðsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, hefur fengið,
er að finna tillögur í sjö liðum. Ein
þeirra snýr að því að sala og áskriftir
dagblaða, tímarita og landsmála- og
héraðsfréttablaða, hvort sem er á
prentuðu eða rafrænu formi, skatt-
leggist í sama skattþrepi og falli í
lægra þrep virðisaukaskatts, 11 pró-
sent. Lilja vill ráðast strax í að endur-
skoða skattalegt umhverfi fjölmiðla.
Meirihluti nefndarinnar telur að
áskriftir hljóð- og myndmiðla, bæði í
línulegri dagskrá og hljóð- og mynd-
efni eftir pöntun, skuli einnig falla
undir lægra þrepið. Í dag greiða fjöl-
miðlar 24 prósenta virðisaukaskatt
af áskriftum á rafrænu formi. Sala
á áskriftum á pappírsformi fellur
undir 11 prósenta virðisaukaskatt.
Nefndinni þótti ekki fýsilegur
kostur að afnema virðisaukaskatt af
sölu áskrifta. Hefð hafi skapast fyrir
því að íslenskir fjölmiðlar bjóði efni
sitt frítt í formi fríblaða eða á frétta-
vefjum sínum, ólíkt því sem gerist
víða erlendis. Aðgerðin hefði því
ekki sömu áhrif hér og til dæmis í
Noregi, þar sem sú leið hefur verið
farin.
Páll Magnússon, Sjálfstæðis-
maður og fyrrverandi útvarpsstjóri,
segir við Fréttablaðið að hann sé
hlynntur því að greinin greiði lægri
virðisaukaskatt en að veitur sem
miðli erlendu efni, svo sem staf-
rænar kvikmyndaleigur, greiði hefð-
bundinn skatt.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráð-
herra og formaður Vinstri grænna,
segir við Fréttablaðið að hún vilji
ræða skattalegt umhverfi fjölmiðla
með heildstæðum hætti. „Þetta með
áskriftirnar nýtist sumum og öðrum
ekki,“ segir hún.
Fréttablaðið spurði þingmennina
einnig hvort þeir teldu rétt að ganga
enn lengra og færa virðisaukaskatt
af sölu auglýsinga niður í neðra
skattþrep. Fáir treystu sér til að taka
afstöðu til spurningarinnar. Átta
þingmenn sögðust því fylgjandi en
níu voru á móti. Í þeim svörum voru
flokkslínur ógreinilegar.
baldurg@frettabladid.is
Þingið vill lægri skatt á fjölmiðlaáskrift
Tillaga nefndar um einkarekna fjölmiðla um að færa virðisaukaskatt af áskriftum íslenskra fjölmiðla niður í lægra skattþrep nýtur mikils
stuðnings á Alþingi. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er þó á móti. Aðgerðin muni bara gagnast sumum fjölmiðlum, en ekki öllum.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir það forgangs-
mál að endurskoða skatta umhverfi fjölmiðla í landinu. FréttAbLAðið/Ernir
Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra hugnast ekki að færa virðisaukaskatt af
áskriftum í lægra skattþrep, það komi bara sumum til góða. FréttAbLAðið/StEFán
Ég er ekki hlynnt
því að eingöngu
áskriftarfjölmiðlar á borð
við Morgunblaðið og Við-
skiptablaðið fái sérmeðferð
með sérstökum skattaaf-
slætti. Við þurfum auðvitað
að skoða þetta umhverfi
heildstætt og finna lausn sem
gagnast öllum fjölmiðlum á
markaði en ekki
sumum.
Rósa Björk Brynj-
ólfsdóttir, þing-
maður VG
Ég get ekki stutt
tillögu sem virðist
þjóna hagsmunum tiltek-
inna fjölmiðla umfram
annarra. Það verður að gera
kröfu um að við endur-
skoðun sé tekið tillit til
heildarmyndarinnar. Mark-
miðið er jú að jafna sam-
keppnisstöðuna, ekki
skekkja hana enn
frekar. Ekki
satt?
Hanna Katrín
Friðriksson, þing-
maður Viðreisnar
2 7 . j a n ú a r 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
8
-7
D
6
0
1
E
D
8
-7
C
2
4
1
E
D
8
-7
A
E
8
1
E
D
8
-7
9
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K