Fréttablaðið - 27.01.2018, Blaðsíða 12
Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2018 verða sendir til íbúa á næstu dögum. Fasteigna-
gjöldin verða innheimt í gegnum netbanka þar sem jafnframt er hægt að prenta út greiðsluseðil.
Greiðsluseðlar verða ekki sendir út en hægt er að óska eftir heimsendum greiðsluseðlum á mínum
síðum á www.reykjavik.is eða í gegnum þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 411 1111.
Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar annast álagningu og innheimtu á
fasteignaskatti, lóðaleigu og sorphirðugjaldi.
Fasteignagjöld ársins 2018, yfir 25.000 kr., greiðast með níu jöfnum
greiðslum á gjalddögum 3. febrúar, 4. mars, 2. apríl, 2. maí, 2. júní,
2. júlí, 4. ágúst, 1. september og 2. október. Gjalddagi fasteignagjalda
undir 25.000 kr. er 3. febrúar.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar, sem fengu lækkun á fasteigna-
skatti og fráveitugjaldi á liðnu ári, fá einnig að óbreyttu lækkun
fasteigna skatts og fráveitugjalds fyrir árið 2018 að teknu tilliti til
tekju- og eignaviðmiða. Fjármálaskrifstofa framkvæmir breytingar
á fasteignaskatti og fráveitugjaldi eftir yfirferð skattframtala elli- og
örorku lífeyrisþega. Það þarf því ekki að sækja sérstaklega um lækkun
eða niðurfellingu þessara gjalda. Við álagningu fasteignagjalda í janúar
verður afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við
tekjur ársins 2016. Þegar álagning vegna tekna ársins 2017 liggur fyrir
haustið 2018, verður afslátturinn endanlega ákvarðaður og verða þá
allar breytingar tilkynntar bréflega.
Skilyrði lækkunar eru að viðkomandi sé elli- eða örorkulífeyrisþegi,
sé þinglýstur eigandi fasteignar, eigi þar lögheimili og geti átt rétt á
vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um
tekjuskatt og eignaskatt.
Einungis er veitt lækkun vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Borgarráð hefur ákveðið að tekjumörk elli-og örorkulífeyrisþega vegna niður-
fellingar/lækkunar fasteignaskatts á árinu 2018 verði eftirfarandi:
100% lækkun: Einstaklingar með tekjur allt að 3.910.000 kr.
Samskattaðir aðilar með tekjur allt að 5.450.000 kr.
80% lækkun: Einstaklingar með tekjur á bilinu 3.910.000 til 4.480.000 kr.
Samskattaðir aðilar með tekjur á bilinu 5.450.000 til 6.060.000 kr.
50% lækkun: Einstaklingar með tekjur á bilinu 4.480.000 til 5.210.000 kr.
Samskattaðir aðilar með tekjur á bilinu 6.060.000 til 7.240.000 kr.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, veitir
allar upplýsingar varðandi álagningu og breytingar á gjaldi fyrir meðhöndlun
úrgangs í síma 411 1111. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á
netfangið sorphirda@reykjavik.is.
Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar, Höfðatorgi, Borgartúni 12-14, veitir
upp lýsingar varðandi álagningu fasteignaskatts og lóðarleigu og breytingar á
þeim í síma 411 1111. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið
fasteignagjold@reykjavik.is.
Hægt er að leita upplýsinga um ofangreind atriði á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is
Fasteignagjöld
2018
Borgarstjórinn í Reykjavík, 27. janúar 2018.
www.reykjavik.is
Norður-Kórea Þrátt fyrir að
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
hafi samþykkt í ágúst að banna öll
viðskipti með kol frá Norður-Kóreu
hefur einræðisríkið haldið áfram
útflutningi og að minnsta kosti
þrisvar flutt kol til rússnesku hafnar-
borganna Nakhodka og Kholmsk.
Þar voru flutningaskipin affermd
og send áfram til Suður-Kóreu og
Japans. Frá þessu greindi Reuters í
gær og vitnaði í heimildarmenn sína
innan úr þremur vesturevrópskum
leyniþjónustustofnunum.
Samkvæmt einum nafnlausum
heimildarmanni miðilsins komu
kolin til Japans og Suður-Kóreu í
október. Þetta staðfesti annar heim-
ildarmaður innan bandarískrar
leyniþjónustu og sagði þessi við-
skipti enn vera stunduð.
Dmitrí Peskov, talsmaður rúss-
nesku ríkisstjórnarinnar, sagði
Rússa hafa í einu og öllu farið eftir
alþjóðalögum. „Rússland er ábyrgur
meðlimur heimssamfélagsins,“
sagði Peskov við blaðamenn.
Rússneski miðillinn Interfax
hafði það eftir heimildarmanni í
rússneska sendiráðinu í einræðis-
ríkinu að Rússar hefðu ekki keypt
kol af Norður-Kóreumönnum og
að kol hefðu heldur ekki farið frá
Norður-Kóreu til annarra landa í
gegnum rússneskar hafnir.
Reuters sagði frá því að þeir lög-
fræðingar sem miðillinn ræddi við
hefðu sagt að aðgerðir Rússa væru
brot á samþykktum öryggisráðsins.
Miðillinn gerði hins vegar þann
fyrirvara við umfjöllun sína að ekki
hefði verið hægt að staðfesta hvort
kolin sem komu til Rússlands væru
þau sömu og fóru til Suður-Kóreu
og Japans né hvort eigendur skip-
anna sem fluttu kol frá Rússlandi til
ríkjanna tveggja hefðu vitað hvaðan
kolin komu.
„Það er klárt mál að Rússar þurfa
að standa sig betur. Öll aðildarríki
Sameinuðu þjóðanna, þar með
talið Rússland, eru skyldug til þess
að fylgja þvingununum eftir og við
búumst við því að það sé gert,“ sagði
upplýsingafulltrúi bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins.
Í desember greindi Reuters frá
því að rússnesk olíuskip hefðu séð
Norður-Kóreumönnum fyrir olíu.
Þá sagði Donald Trump, forseti
Bandaríkjanna, í samtali við miðil-
inn þann 17. janúar að Rússar væru
að aðstoða einræðisríkið og sjá því
fyrir birgðum sem gengi þvert gegn
samþykktum öryggisráðsins.
thorgnyr@frettabladid.is
Norðurkóresk kol millilenda í
Rússlandi þrátt fyrir þvinganir
Leyniþjónustustofnanir í Evrópu eru sammála um að Norður-Kóreumenn selji enn kol, þvert gegn sam-
þykktum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Talið að kolin fari fyrst til Rússlands og þaðan meðal annars til
Suður-Kóreu og Japans. Rússar segjast fylgja alþjóðalögum alfarið og hafna því að þeir hafi brotið af sér.
Frá höfninni í Nakhodka á Kyrrahafsströnd Rússlands. NoRdicphotos/AFp
SýrlaNd Tyrkneski herinn er tilbú-
inn til þess að sækja alla leið austur
að landamærum Sýrlands og Íraks
í aðgerðum sínum gegn YPG, her-
sveitum Kúrda. Þetta sagði Recep
Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands,
í gær. Ítrekaði hann að næst myndu
Tyrkir taka borgina Manbij.
Manbij er nú undir stjórn YPG
en bandarískir hermenn hafa all-
nokkrir aðsetur í borginni eftir að
hernaðarbandalaginu gegn ISIS
tókst að vinna borgina af skærulið-
um árið 2016. Rétt eins og Tyrkir og
Bandaríkjamenn eru Kúrdar aðilar
að bandalaginu.
Tyrkir telja YPG hins vegar hern-
aðararm Verkamannaflokks Kúrda
(PKK) en flokkurinn er álitinn
hryðjuverkasamtök af bæði Atlants-
hafsbandalaginu og Evrópusam-
bandinu. Því eru Bandaríkjamenn
ekki sammála.
Erdogan sagði í gær að það þyrfti
að „hreinsa Manbij“ og átti við að
uppræta þyrfti hryðjuverkamenn-
ina úr YPG úr borginni.
Bandaríkjamenn hafa verið í
borginni frá því í mars 2017 en þá
tókst þeim að fá Tyrki til þess að
hætta við áform sín um að taka
borgina og í staðinn myndi YPG
færa sig austur yfir ána Efrat. Það
gerðist hins vegar aldrei og telur
BBC líklegt að innrás Tyrkja nú gæti
leitt til átaka á milli Bandaríkja-
manna og Tyrkja. – þea
Tyrkir hyggjast
sækja að Írak
BretlaNd Sex af hæst launuðu karl-
kyns starfsmönnum BBC, breska
ríkis útvarpsins, hafa samþykkt að
taka á sig launalækkun eftir að í ljós
kom að mikill munur var á launum
kynjanna hjá miðlinum. Frá þessu
greindi BBC í gær en í upphafi árs
sagði Carrie Gracie, ritstjóri BBC í
Kína, af sér í mótmælaskyni.
„Þetta er eitthvað sem þarf að laga.
Ég styð kvenkyns samstarfsfólk mitt
heilshugar,“ sagði Jeremy Vine, einn
sexmenninganna. Laun hans voru um
700 þúsund pund á ári fyrir lækkun-
ina en óljóst er hver þau eru nú. – þea
Karlmenn hjá
BBC taka á sig
launalækkun
SviSS Donald Trump, forseti Banda-
ríkjanna, hét því í gær á fundi
Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í
Sviss að hann ætlaði að ráðast gegn
ósanngjörnum viðskiptaháttum
þeirra ríkja sem versla við Banda-
ríkin. Sagði hann að „ránviðskipti“
hefðu slæm áhrif á bandarískan efna-
hag og hann myndi ekki lengur líta
fram hjá slíkum viðskiptaháttum.
„Við munum alltaf setja Banda-
ríkin í fyrsta sæti þegar kemur að
viðskiptum. Það þýðir hins vegar
ekki að Bandaríkin ætli að standa ein.
Við erum opin fyrir áframhaldandi
viðskiptum,“ sagði Trump.
Boðskapur Trumps og viðskipta-
stefna hans, sem hann kallar „Amer-
ica First“, þykir vera á skjön við til-
gang fundarins en markmið hans
er að ýta undir hnattvæðingu og
alþjóðasamstarf. – þea
Trump ætlar
að ráðast gegn
ránviðskiptum
donald trump, forseti Bandaríkj-
anna. NoRdicphotos/Getty
2 7 . j a N ú a r 2 0 1 8 l a u G a r d a G u r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
8
-6
4
B
0
1
E
D
8
-6
3
7
4
1
E
D
8
-6
2
3
8
1
E
D
8
-6
0
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K