Fréttablaðið - 27.01.2018, Page 18
Smith & Norland
er framúrskarandi
fyrirtæki
Smith & Norland hlaut fyrir stuttu viðurkenningu Creditinfo fyrir
að hafa verið Framúrskarandi fyrirtæki árið 2017, annað árið í röð.
Creditinfo framkvæmir árlega fjárhagslegt styrk- og
stöðugleikamat á fyrirtækjum landsins. Með tilliti til ársins 2017
uppfylla 2,2% allra íslenskra fyrirtækja þau skilyrði sem Creditinfo
setur þeim til að geta talist Framúrskarandi fyrirtæki.
Við erum stolt af árangri fyrirtækisins og þakklát fyrir þessa
viðurkenningu. Við viljum nýta tækifærið og þakka góðu
starfsfólki og traustum viðskiptavinum þennan góða árangur.
fótbolti Crosthwaite-fjölskyldan
hafði kært Chelsea til borgarráðsins
í Hammer smith og Fulham vegna
áætlana félagsins um að byggja
nýjan 60 þúsund manna völl en hann
mun kosta allt að einum milljarði
punda. Sumir breskir fjölmiðlar hafa
reyndar dregið úr þessum kostnaði
og sagt hann vera nær 500 milljónum
punda.
Í kærunni var vísað til þess að
íbúar eigi rétt á sólarljósi en nýi
völlurinn mun koma í veg fyrir að
sólarljós nái í gegnum fjóra af fimm
gluggum á húsi Crosthwaite-fjöl-
skyldunnar. Borgarráðið hefur tekið
kæruna fyrir og vísað henni frá enda
eru öll leyfi komin fyrir vellinum og
ekki er hægt að kæra borgarráðið til
hæstaréttar.
Crosthwaite-fjölskyldan er að
íhuga næstu skref og að sögn BBC
hefur lögmaður hennar sagt að hún
hafi ekki sagt sitt síðasta orð í þessu
máli.
Húsið sem Crosthwaite-fjölskyld-
an á er ekkert slor og er fasteigna-
mat þess um fjórar milljónir punda.
Þetta eru því engir vitleysingar. Fjöl-
skyldan vill fá 20 milljónir punda í
bætur ef nýi völlurinn verði byggður.
Þriggja herbergja íbúð í götunni seld-
ist á um tvær milljónir punda í fyrra.
Fjölskyldan hefur búið nánast
ofan í Stamford Bridge í rúm 50 ár.
Chelsea hefur að sögn BBC boðið
fjölskyldunni yfir milljón pund í
bætur en það var afþakkað.
Chelsea sótti um að rífa núver-
andi leikvang í nóvember 2015
en áætlanir félagsins hafa tafist
töluvert vegna íbúa í grennd við
Stamford Bridge. Félagið hefur
þegar greitt um 50 íbúum skaða-
bætur vegna þess að sólin mun
skína minna inn í stofur þeirra og
útsýni skerðist. Í nágrannakynn-
ingu voru þó 97 prósent nágranna
samþykkir áformum Chelsea.
Chelsea hefur bent á að sjö millj-
ónir punda fari í innviði í hverfinu
og að 2,4 milljónir gesta muni heim-
sækja nýjan völl. Hverfið muni því
blómstra sem aldrei fyrr.
Borgarstjórinn í London, Sadiq
Khan, skrifaði svo upp á teikningarn-
ar fyrir um ári og allt virtist klappað
og klárt en hjónakornin Nicolas og
Lucinda Crosthwaite voru ekki til í
að kvitta upp á hvað sem er.
Þau eru ekki á móti nýjum velli
en finnst að austurstúkan, þar sem
Chelsea ætlar að hafa allar sínar fínu
veislur og sína mikilvægustu gesti,
sé of há og vilja að arkitektastofan
Herzog & de Meuron endurhanni
þann hluta. Þau benda á Emirates-
völlinn, heimavöll Arsenal, en þar
fara 16 prósent undir hina mikilvægu
gesti. Á nýjum Stamford Bridge-leik-
vangi verður hlutfallið 28 prósent.
Eigandi Chelsea, Roman Abramo-
vich, er trúlega ekki vanur að láta
einhverja meðaljóna stoppa sig og
lögfræðingateymi hans hefur, sam-
kvæmt breskum fjölmiðlum, unnið
dag og nótt að því að finna leið til
að fá völlinn samþykktan. Og það
hafðist að lokum í vikunni.
Chelsea er enda langt á eftir
öðrum liðum þegar kemur að fjölda
áhorfenda á heimavelli. Arsenal,
West Ham og Tottenham eru öll með
mun fleiri áhorfendur en Stamford
Bridge er sjöundi stærsti völlurinn í
ensku úrvalsdeildinni.
Talið er að Chelsea geti byrjað að
spila á hinum nýja heimavelli tíma-
bilið 2024-2025. Þangað til verður
líklega notast við Wembley líkt og
Tottenham hefur þurft að gera.
benediktboas@365.is
Hinn mikli Golíat sigrar Davíð í London
Chelsea getur brátt hafist handa við að rífa Stamford Bridge og byggja glænýjan og rándýran völl eftir að bæjarráð vísaði kvörtun ná-
granna frá. Crosthwaite-fjölskyldan segir að nýi völlurinn komi til með að hindra útsýni og hefta aðgang að sólarljósi og vill bætur.
Svona mun nýr Stamford Bridge-leikvangur líta út þegar hann verður tekinn í notkun á öndverðum næsta áratug.
Súlur og múrhleðslur munu setja svip á hinn nýja 60.000 sæta leikvang.
Nfl Ofurskálin eða SuperBowl
fer fram sunnudagskvöldið
4. febrúar og eru íþróttabarir
landsins komnir með starfs-
leyfi þessa nótt til að hafa opið
til lokaflauts. Tom Brady og
félagar í New England
Patriots mæta þá
Philadelphia Eagles.
Borgarráð leyfði
American Bar að
hafa opið til fjögur
um nóttina eins og
Keiluhöllinni í Egils-
höll, Lebowski Bar og Dubliner.
Enski barinn, Bjarni Fel, Ægis-
garður og Ölver fá að hafa
opið hálftíma lengur eða til
04.30. Svo virðist sem NFL-
stuðningsmenn á Íslandi
séu prúðir með ein-
dæmum en í áliti sem
lögreglan gaf kom í
ljós að engar kvart-
anir höfðu borist
inn á borð til
hennar.
– bb
Leyfin fyrir Superbowl
dottin í hús
2 7 . j a N ú a r 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r18 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
sport
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
8
-4
C
0
0
1
E
D
8
-4
A
C
4
1
E
D
8
-4
9
8
8
1
E
D
8
-4
8
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K