Fréttablaðið - 27.01.2018, Page 22

Fréttablaðið - 27.01.2018, Page 22
V ið lofum skemmti-legri f jölskyldu-stemningu þar sem fólk getur meðal ann-ars haldist í hendur og leitt rafmagn í gegnum sig. Látið útvarp hljóma þannig sem slokknar svo á þegar takinu er sleppt,“ segir Sævar Helgi Bragason, kennari og einn þekktasti vísindamaður landsins, sem verður í Húsdýragarðinum í dag þar sem verður mikið fjör og mikið stuð, svona í bókstaflegri merkingu. Orka náttúrunnar og Veitur bjóða fjölskyldum og krökkum að koma á skemmtun og fræðslu um rafmagn- ið. Í veitingahúsinu í Húsdýragarð- inum verður Vísindasmiðja Háskóla Íslands með tilraunir, þrautir, tæki, tól, leiki og óvæntar uppgötvanir fyrir alla aldurshópa og þar getur fjölskyldan leikið sér af hjartans lyst. Gestir geta meðal annars kynnst undraverðum eiginleikum ljóss, lita, hljóðs og rafmagns, smíðað vindmyllu og margt fleira. Kann- aðar verða stjörnur, sólir og tungl og gestum boðið að spreyta sig á að búa til einfalt vasaljós. Boðið verður upp á heitt kakó og kruðerí og aðgangur er ókeypis í garðinn á meðan viðburðurinn fer fram en hann byrjar klukkan 13 og verður slökkt á öllu stuðinu um kaffileytið. „Við ætlum að reyna að kveikja áhuga á vísindum sem veitir nú ekki af. Fræða fólk um hvernig rafmagnið okkar verður til á eins náttúrulegan hátt og hægt er. Þarna verða sérfræðingar frá Háskóla Íslands sem sýna krökkum ýmislegt sem tengist rafmagni og náttúrunni,“ segir Sævar Helgi en þetta er fyrsti viðburður sem Vís- indasmiðja Háskólans býður upp á þetta árið. „Það verður fullt af skemmtilegum hlutum í boði því vísindin eru svo skemmtileg. Þegar þau eru sett í auðskiljanlegan bún- ing þá verða þau enn skemmtilegri.“ benediktboas@365.is Lofar alveg geggjuðu stuði Fjölskyldudagur verður haldinn í dag í veitingahúsinu í Húsdýragarðinum þar sem Sævar Helgi Bragason og Vísindasmiðja Há- skóla Íslands munu setja vísindi og rafmagns- fræði í skemmtilegan búning. Frítt verður í garðinn á meðan viðburðurinn stendur. Sævar Helgi Bragason verður í banastuði í Húsdýragarðinum í dag eins og honum einum er lagið. FréttaBlaðið/Hanna TónleikaHald og afmæli „Um helgina ætla ég ásamt Andra Ívars að skemmta á þorrablótum í Njarðvík og Grindavík. Ætli ég kíki ekki við í afmæli hjá Bibba í Skálmöld eftir það.“ fóTBolTi í úTvarpi og Sjónvarpi „Ég er að fara að stýra út- varpsþættinum mínum sem ég hef gert í 9 ár á X-inu ásamt Tómasi Þór kl. 12-14 og eftir það er fótbolta- gláp. Á sunnu- dag ætla ég að horfa á aðeins meiri fótbolta, bæði hér heima og á skjánum.“ Það verður fullT af SkemmTilegum HluTum í Boði Því víSindin eru Svo SkemmTileg. Þegar Þau eru SeTT í auð- Skiljanlegan Búning Þá verða Þau enn SkemmTilegri. Sævar Helgi Bragason Um helgina Stefán Jakobsson. Elvar Geir Magnússon. leSTu Dóru Bruder eftir Patrick Modiano. Í bókinni rýnir Mod- iano í eigin ævi þar sem faðir hans leikur eitt lykilhlutverkið. Sigurður Pálsson þýddi. Horfðu á franskar kvikmyndir. Franska kvikmynda- hátíðin hófst í gær og stendur yfir til 4. febrúar. Á dagskránni kennir ýmissa grasa og allir ættu að finna mynd við sitt hæfi. Þá er einnig að finna teiknimynd fyrir börnin. 2 7 . j a n ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r22 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð helgin 2 7 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 0 F B 1 2 0 s _ P 0 9 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E D 8 -7 3 8 0 1 E D 8 -7 2 4 4 1 E D 8 -7 1 0 8 1 E D 8 -6 F C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 2 0 s _ 2 6 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.