Fréttablaðið - 27.01.2018, Blaðsíða 22
V ið lofum skemmti-legri f jölskyldu-stemningu þar sem fólk getur meðal ann-ars haldist í hendur og leitt rafmagn í
gegnum sig. Látið útvarp hljóma
þannig sem slokknar svo á þegar
takinu er sleppt,“ segir Sævar Helgi
Bragason, kennari og einn þekktasti
vísindamaður landsins, sem verður
í Húsdýragarðinum í dag þar sem
verður mikið fjör og mikið stuð,
svona í bókstaflegri merkingu.
Orka náttúrunnar og Veitur bjóða
fjölskyldum og krökkum að koma á
skemmtun og fræðslu um rafmagn-
ið. Í veitingahúsinu í Húsdýragarð-
inum verður Vísindasmiðja Háskóla
Íslands með tilraunir, þrautir, tæki,
tól, leiki og óvæntar uppgötvanir
fyrir alla aldurshópa og þar getur
fjölskyldan leikið sér af hjartans
lyst.
Gestir geta meðal annars kynnst
undraverðum eiginleikum ljóss,
lita, hljóðs og rafmagns, smíðað
vindmyllu og margt fleira. Kann-
aðar verða stjörnur, sólir og tungl
og gestum boðið að spreyta sig á að
búa til einfalt vasaljós.
Boðið verður upp á heitt kakó
og kruðerí og aðgangur er ókeypis
í garðinn á meðan viðburðurinn
fer fram en hann byrjar klukkan 13
og verður slökkt á öllu stuðinu um
kaffileytið.
„Við ætlum að reyna að kveikja
áhuga á vísindum sem veitir nú
ekki af. Fræða fólk um hvernig
rafmagnið okkar verður til á eins
náttúrulegan hátt og hægt er.
Þarna verða sérfræðingar frá
Háskóla Íslands sem sýna krökkum
ýmislegt sem tengist rafmagni og
náttúrunni,“ segir Sævar Helgi en
þetta er fyrsti viðburður sem Vís-
indasmiðja Háskólans býður upp
á þetta árið. „Það verður fullt af
skemmtilegum hlutum í boði því
vísindin eru svo skemmtileg. Þegar
þau eru sett í auðskiljanlegan bún-
ing þá verða þau enn skemmtilegri.“
benediktboas@365.is
Lofar alveg
geggjuðu
stuði
Fjölskyldudagur verður haldinn í dag í
veitingahúsinu í Húsdýragarðinum þar sem
Sævar Helgi Bragason og Vísindasmiðja Há-
skóla Íslands munu setja vísindi og rafmagns-
fræði í skemmtilegan búning. Frítt verður í
garðinn á meðan viðburðurinn stendur.
Sævar Helgi Bragason verður í banastuði í Húsdýragarðinum í dag eins og honum einum er lagið. FréttaBlaðið/Hanna
TónleikaHald og afmæli
„Um helgina ætla ég ásamt Andra Ívars að
skemmta á þorrablótum í Njarðvík og Grindavík.
Ætli ég kíki ekki við í afmæli hjá Bibba í Skálmöld
eftir það.“
fóTBolTi í
úTvarpi og
Sjónvarpi
„Ég er að fara
að stýra út-
varpsþættinum
mínum sem ég
hef gert í 9 ár
á X-inu ásamt
Tómasi Þór kl.
12-14 og eftir
það er fótbolta-
gláp. Á sunnu-
dag ætla ég að
horfa á aðeins
meiri fótbolta,
bæði hér heima
og á skjánum.“
Það verður fullT af
SkemmTilegum HluTum
í Boði Því víSindin eru
Svo SkemmTileg. Þegar
Þau eru SeTT í auð-
Skiljanlegan Búning Þá
verða Þau enn
SkemmTilegri.
Sævar Helgi Bragason
Um helgina
Stefán Jakobsson.
Elvar Geir Magnússon.
leSTu
Dóru Bruder eftir
Patrick Modiano. Í
bókinni rýnir Mod-
iano í eigin ævi þar
sem faðir hans leikur
eitt lykilhlutverkið.
Sigurður Pálsson
þýddi.
Horfðu á
franskar kvikmyndir.
Franska kvikmynda-
hátíðin hófst í gær og
stendur yfir til 4. febrúar.
Á dagskránni kennir
ýmissa grasa og allir
ættu að finna mynd við
sitt hæfi. Þá er einnig að
finna teiknimynd fyrir
börnin.
2 7 . j a n ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r22 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
helgin
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
8
-7
3
8
0
1
E
D
8
-7
2
4
4
1
E
D
8
-7
1
0
8
1
E
D
8
-6
F
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K