Fréttablaðið - 27.01.2018, Page 28
Nemendur í skólum sem innleitt hafa l e st ra ra ð f e r ð i n a B y r j e n d a l æ s i (BL), taka ekki meiri framförum
í íslensku en jafnaldrar þeirra, ef
marka má niðurstöður úr samræmd
um íslenskuprófum 4. bekkjar. Á
þriggja ára tímabili eftir að BL hefur
verið innleitt fá börn í fjórða bekk í
þeim skólum að jafnaði örlítið lakari
einkunn á samræmdum íslensku
prófum en börn í sömu skólum
gerðu á þriggja ára tímabili fyrir inn
leiðingu. Sveitarfélögin vörðu 105
milljónum króna til verkefnisins á
árunum 2005 til 2016.
Kjartan Ólafsson, lektor við
Háskólann á Akureyri, segir að
þetta séu áþekkar niðurstöður og
Menntamálastofnun fékk út 2015.
Hann bendir á að þó munurinn sé
marktækur sé hann mjög lítill og
segir að það virðist í raun litlu máli
skipta með tilliti til einkunnar á sam
ræmdu prófi 4. bekkjar hvort BL hafi
verið innleitt eða ekki. Hann bendir
á að meðaltalið segi ekki alla söguna.
„Það væri áhugavert að skoða líka
breytileikann milli nemenda í þess
um skólum,“ segir hann og nefnir
til dæmis að kanna mætti hvort bil
á milli þeirra bestu og lökustu hefði
minnkað eða stækkað.
Aðferðin þróuð frá 2004
Á árunum 2005 til 2016 hafði Mið
stöð skólaþróunar við Háskólann á
Akureyri um 105 milljónir króna í
tekjur frá sveitarfélögunum af inn
leiðingu lestraraðferðarinnar BL,
en miðstöðin hefur staðið að þróun
hennar frá árinu 2004. Í svari mið
stöðvarinnar kemur fram að átta
starfsmenn starfi hjá miðstöðinni, í
6,14 stöðugildum.
Meginmarkmið BL er að börn nái
góðum árangri í læsi sem allra fyrst
á skólagöngu sinni. Áhersla er lögð
á að unnið sé heild stætt með tal,
hlust un, lestur og rit un, auk þess sem
hljóð vit und, rétt rit un, skrift, orða
forði, setn inga bygg ing og mál fræði
er hluti af ferl inu.
Alls hafa 83 íslenskir grunnskólar
lokið BL en þrír til viðbótar eru í inn
leiðingarferli. Grunnskólar á Íslandi
eru 170 talsins, samkvæmt vef Hag
stofunnar. Helmingur grunnskóla á
Íslandi hefur því innleitt BL. Flestir
aðrir nota svonefnda hljóðaðferð við
lestrarkennslu, í einhverri mynd.
Úrtakið helmingur nemenda
Fjörutíu og níu skólar sem oftar en
ekki höfðu fleiri en ellefu nemendur
í 4. bekk, luku BL á árunum 2008 til
2015. Fréttablaðið rýndi í einkunnir
nemenda í 4. bekk í þessum skólum
þrjú ár áður en innleiðing hófst og
þrjú ár eftir að innleiðingu lauk.
Að baki hverjum árgangi liggja
Íslensk lestraraðferð
skilar ekki betri einkunnum
Byrjendalæsi hefur verið innleitt í helming grunnskóla á Íslandi. FréttABlAðið/Ernir
Lestraraðferðin
Byrjendalæsi hefur
verið þróuð og inn-
leidd í helming skóla
á Íslandi frá 2004.
Samræmd próf sýna
ekki að aðferðin sé
betri en sú gamla.
Forsvarsmenn segja
prófin ekki mæla
þá færni sem nem-
endum er kennd.
2 2
5 5
11
12
15
14
3
11
0
1
2
2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
✿ Fjöldi skóla sem hefur innleiðingu Byrjendalæsis innleiðingin átti að skila. Það sé hlut
verk sveitarfélaganna að svara því.
„Þetta virðist ekki skipta neinu máli
gagnvart þessu tiltekna prófi,“ segir
hann og bætir við að stundum sé
verið að leita að einföldum svörum
við flóknum spurningum.
Skoða tengsl aðferða og árangurs
Tuttugu reykvískir skólar eru á meðal
þeirra 49 sem luku BL á árunum 2008
til 2015. Í svari frá Skúla Helgasyni,
formanni skóla og frístundaráðs,
kemur fram að munurinn á niður
stöðum fyrir tímabilin fyrir og eftir
innleiðingu BL, þegar reykvísku skól
arnir eigi í hlut, sé ekki marktækur.
Í sjö tilvikum (skólum) hafi orðið
framfarir en í 13 hafi vegin meðalein
kunn fyrir árin þrjú lækkað. Varast
beri að lesa of mikið í það.
Að mati Skúla er mjög mikilvægt
að fylgjast með námsárangri í lestri
út frá mismunandi prófum og skim
unum. Hann nefnir að taka þurfi
upplýsingar á borð við fjölda barna
með annað móðurmál en íslensku
með í jöfnuna þegar námsrárangur
í íslensku er metinn.
Skúli segir að fyrir áramót hafi til
laga skóla og frístundaráðsfulltrúa
meirihlutaflokkanna, aðgerðaáætl
un varðandi læsi, verið samþykkt.
Þar eigi meðal annars að skoða tengsl
námsárangurs og kennsluaðferða, til
að skerpa á áherslum borgarinnar í
læsismálum. „Eðlilega verður litið til
þess hvort skólarnir hafi tekið þátt í
Byrjendalæsi eða ekki í þeirri grein
ingu og tekið verður á því ef sú skoð
un sýnir skýran mun á þeim skólum
sem notað hafa Byrjendalæsi og
þeim sem ekki hafa gert það,“ segir
Skúli. Hann tekur fram að margir
skólar sem nota BL beiti líka öðrum
lestrarkennsluaðferðum. „Það flækir
verulega allan samanburð.“
Byrjendalæsi hefur verið innleitt
í annan hvern grunnskóla lands
ins. Niðurstöður á samræmdum
íslenskuprófum í 4. bekk sýna að
munurinn á árangri barna í BLskól
um fyrir og eftir innleiðingu er mjög
lítill. Ósannað er hvort innleiðingin,
og þeir fjármunir sem varið hefur
verið til verkefnisins, hafi skilað því
sem til var ætlast; að börn nái betri
árangri í læsi snemma á skólagöng
unni. baldurg@frettabladid.is
einkunnir 1.700 til 2.000 barna en
að jafnaði eru á bilinu 4.000 til 4.400
börn í árgangi á landsvísu. Úrtakið
er því tæplega helmingur þýðisins.
Notast var við vegið meðaltal ein
kunna, svo fámennir bekkir vega
ekki þyngra en fjölmennir.
Staðlaður einkunnakvarði er not
aður til að birta niðurstöður sam
ræmdra prófa fyrir landið allt. Ein
kunnir eru normaldreifðar þar sem
meðaltalið er 30 og staðalfrávikið 10.
Niðurstöðurnar ár frá ári eru stilltar
á sama kvarða þannig að þær verða
sambærilegar á milli ára. Nemendur
í fjórða bekk í skólunum 49 fengu
yfir þriggja ára tímabil einkunnina
30,34 áður en BL var tekið upp. Það
er aðeins yfir landsmeðaltali. Meðal
tal einkunna í 4. bekk sömu skóla,
yfir þriggja ára tímabil eftir að inn
leiðingu BL lauk, reyndist 29,74, eða
aðeins undir landsmeðaltali. Munur
inn er lítill en marktækur, eða 0,6.
tekist á 2015
Illugi Gunnarsson, þá menntamála
ráðherra, gagnrýndi BL nokkuð harð
lega árið 2015, í kjölfar minnisblaðs
Menntamálastofnunar um árangur
barna sem lært hefðu með BL. Hann
sagði að aðferðin byggði á ótraustum
grunni. „Menn eiga að geta spurt sig,
þegar nýjar aðferðir eru innleiddar
í íslenskt menntakerfi, hvaða lág
markskröfur eru gerðar um rann
sóknir og vísbendingar er varða
ágæti þeirra – hvort rétt sé að inn
leiða þær eða ekki. Ég tala nú ekki
um þegar um lestur og stærðfræði er
að ræða.“
Háskólinn á Akureyri svaraði
gagnrýninni sem fram kom árið
2015 á þann veg að innra símat væri
innbyggt í aðferðafræði BL og að
þau gögn sýndu framfarir nemenda.
Staða nemenda væri metin þrisvar
á ári meðan á innleiðingu stæði. Þá
kom fram að staðlaðar niðurstöður
samræmdra prófa næðu til takmark
aðs hluta markmiða BL og að umtals
verðar sveiflur væru á milli ára innan
einstakra skóla. Lítil fylgni væri á
milli frammistöðu einstakra skóla á
samræmdum prófum yfir tíma.
Í greiningu Menntamálastofnunar
frá 2015 kom fram að ólíklegt væri
að aðrar skýringar væru betri en sú
að sama kerfisbundna breytingin á
vinnubrögðum í skólunum tengdist
því að nemendur þessara skóla stæðu
sig verr en nemendur í sama hverfi
áður en breytingin var gerð.
Í svari stofnunarinnar voru athuga
semdir gerðar við að ekki væru til
nýrri fræðigreinar um BL en frá 2003.
Þá byggði mat á stöðu nemenda á
skimunarprófi sem ekki hefur verið
staðlað fyrir Ísland. „Niðurstöður úr
slíku prófi í lok 1. bekkjar geta ekki
talist mælikvarði á árangur nemenda
í lestri,“ sagði Menntamálastofnun.
Samanburðurinn næði aðeins til BL
skóla en hvorki til annarra skóla né til
þess tímabil áður en kennsla með BL
hófst í skólunum. Í svari miðstöðvar
innar við fyrirspurn Fréttablaðsins
kemur fram að nú í byrjun árs sé von
á bók með 14 ritrýndum greinum um
þróunarverkefnið BL.
Óljóst hverjir nota aðferðina
Laufey Petrea Magnúsdóttir, for
stöðumaður Miðstöðvar skólaþró
unar við Háskólann á Akureyri, varar
við að draga þá ályktun að orsaka
samband sé á milli innleiðingar BL
og lægri einkunna á samræmdum
prófum 4. bekkjar. Hún bendir á að
innleiðingin nái einungis til fyrstu
tveggja bekkja grunnskóla. Hún segir
að ekki sé ljóst hvort og í hvaða mæli
þeir skólar sem tekið hafa upp BL
notist við þær aðferðir. „Við getum
ekki vottað, þó innleiðingarferlið
hafi átt sér stað, að það hafi orðið
breytingar á starfsháttum.“ Það sé
því „í besta falli vafasamt“ að gefa sér
nokkuð um orsakasamhengið.
Til eru sérfræðingar sem stigið
hafa fram og gagnrýnt BL. Þann
ig sagði Hermundur Sigmundsson,
prófessor í lífeðlislegri sálfræði
við háskólann í Þrándheimi, við
Morgunblaðið árið 2014 að rétt
væri að nota aðeins raunprófaðar
aðferðir við lestrarkennslu. BL væri
ekki raunprófuð aðferð. Hann spurði
hvers vegna aðferðin hefði verið
tekin upp þegar ótal rannsóknir
hefðu sýnt að hljóðaðferðin kæmi
best út í upphafi lestrarkennslu.
Lesturinn væri undirstaða alls náms
og vanda þyrfti til verka frá upphafi.
Fulltrúi Miðstöðvar í skólaþróun
við Háskólann á Akureyri svaraði því
til að BL væri aðferð sem byggð væri
á viðurkenndum og rannsökuðum
aðferðum, meðal annars banda
rískum. Hljóðaðferðin væri raunar
hluti af BL.
Kjartan segir að einkunnir á sam
ræmdum prófum í 4. bekk séu ein
leið til að skoða árangurinn af BL.
Matið á áhrifunum fyrir og eftir inn
leiðingu sé mat á áhrifum BL umfram
annað sem gert er í skólakerfinu á
sama tíma. Ef skilin væru skarpari
og skólar kenndu annaðhvort eftir
aðferðum BL eða ekki væri niður
staðan skýrari. Önnur hugsanleg
þróunarverkefni samhliða geti haft
áhrif.
Kjartan segir að það sem alltaf
vanti í þessa umræðu sé það hverju
2 7 . j a n ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r28 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
8
-6
E
9
0
1
E
D
8
-6
D
5
4
1
E
D
8
-6
C
1
8
1
E
D
8
-6
A
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K