Fréttablaðið - 27.01.2018, Síða 34
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vil-
helmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson,
olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabla-
did.is, s. 512 5439 ,
DJI er stærsti drónaframleið-andi í heimi og brautryðj-andi á sínu sviði. Fyrirtækið
er þekkt fyrir að vera framsækið en
engu að síður þekkt fyrir gæði og
góða þjónustu. Nýjasta afurðin er
smávaxinn dróni, Mavic Air, sem
tekur vídeó í 4K upplausn. „Þessi
dróni er bylting,“ segir Sigurður
Helgason, eigandi DJI verslunar-
innar í Lækjargötu og iStore í
Kringlunni.
Allar stærðir dróna
„Við erum með allar stærðir af
drónum í Lækjargötunni en
þessi nýi, Mavic Air, er alveg ein-
stakur. Það hefur verið farið mjög
leynt með framleiðslu og þróun
drónans. Framleiðendur hjá DJI
eru sniðugir að halda nýjungum
leyndum þangað til þeir eru til-
búnir að markaðssetja þær. Það
eru bara fjórir dagar síðan spurðist
út að Mavic Air væri að koma í
búðir. Ekkert hefur lekið út um
þennan litla fullkomna dróna,“
segir Sigurður. „Nýi dróninn
hentar mjög vel fyrir byrjendur
og líka þá sem vilja fá mikið fyrir
lítið. Ég held að ef einhver dróni
eigi eftir að koma fólki til að fljúga
dróna þá sé það þessi. Hann kostar
einungis um 114.990 krónur, er
nettur og hefur flesta þá fítusa sem
dýrari drónar hafa og býður upp á
tækninýjungar sem dýrari drónar
hafa ekki í dag,“ segir hann.
Dróni fyrir alla
Mavic Air hentar vel því fólki
sem er á ferðinni en vill forðast
þungan farangur. „Dróninn fer vel
í vasa enda er hægt að brjóta hann
saman og þá er hann á stærð við
síma. Það er mjög lítil þjöppun í
upptökum þannig að myndirnar
eru kýrskýrar og fullkomnar að
gæðum,“ segir Sigurður og segir
að allir geti notað Mavic Air.
„Fólk kaupir dróna sem áhuga-
mál en einnig til að nota í vinnu.
Drónarnir hafa komið sterkir inn
hjá fasteignasölum. Bændur nota
þá til að reka fé eða finna það,
björgunarsveitarmenn nota dróna
við leitarstörf, veiðiverðir við
eftirlit og stór hópur fólks tekur
vídeó og myndir fyrir sjálft sig. Það
er skemmtilegt að deila þeim á
Facebook eða Instagram og fá við-
brögð frá öðrum.
Mjög margir nota dróna ein-
göngu sem myndavél en með
honum er hægt að ná sjónarhorni
DJI verslunin er við hliðina á Hard Rock í Lækjargötu. MYND/STEFÁN
Verslunin er hönnuð eftir kröfum frá DJI. Hægt er að prófa drónahermi í búðinni. MYND/STEFÁN KARLSSON
Sala á Mavic Air
hefst 31. janúar
klukkan 10.
sem væri annars ógerlegt. Við
fáum fjölda ferðamanna til okkar í
búðina sem eru að leita að góðum
drónum fyrir ferðalag sitt um
Ísland. Drónarnir hjá okkur eru
á sambærilegu verði og í öðrum
evrópskum löndum. Það borgar
sig ekki að kaupa þá erlendis.
Litli dróninn er á mjög góðu verði
miðað við að hann er með 4K
myndavél, með árekstraskynjara
að framan, aftan og undir. Hann
skynjar umhverfið í 3D til að auka
flugöryggi og stöðugleika. Hann
eltir eigandann og það er hægt að
stýra honum með handabending-
um án þess að nota fjarstýringuna.
Hann er með 8 GB innbyggt minni
sem er kostur, ef fólk gleymir
minniskortinu heima kemur það
ekki að sök. Mavic Air getur flogið í
21 mínútu og tvo kílómetra í burtu.
Þá getur hann tekið í panorama og
kúlumyndir sem hann setur sjálfur
saman, mögulega með því að flétta
saman við vídeó. Þetta er án efa
tæknivæddasti dróninn í dag með
ótrúlega marga eiginleika.“
Sigurður segir að fleiri karlar en
konur kaupi dróna en vonast til
að það breytist fljótt. „Við fögnum
í hvert sinn sem kona kemur til
okkar og kaupir dróna. Mavic Air
hentar öllum vel þar sem hann er
léttur og meðfærilegur en samt svo
öflugur,“ segir hann.
Kynning á drónum
DJI verslunin var opnuð í Lækjar-
götu 2a síðastliðið sumar og hefur
hún vakið mikla athygli bæði
Íslendinga og erlendra ferða-
manna. DJI er sérverslun með allar
stærðir dróna. Í búðinni er flugbúr
og einnig drónahermir þar sem
hægt er að æfa sig eða prófa að
fljúga dróna, en til 23. febrúar er
hægt að spreyta sig á þrautaleik
í herminum og safna stigum. Sá
keppandi sem stendur uppi með
flest stigin mun vinna Spark dróna.
Frá miðvikudeginum 31. janúar
til 7. febrúar, kl. 17 alla dagana,
verður nokkurs konar Work-Shop í
búðinni þar sem fram fer kynn-
ing á nýja drónanum. Kynningin
er öllum opin sem hafa áhuga á
að kynna sér kosti drónans, en
þeir sem mæta á kynninguna fá
happadrættismiða þar sem Mavic
Air er í verðlaun. Allir sem kaupa
vörur hjá okkur á þessu tímabili fá
happadrættismiða. Einnig verður
hægt að vinna sér inn miða með
því að deila myndum úr búðinni á
Instagram og Facebook með myllu-
merkinu #DJIMAVICAIR
Nánari upplýsingar má fá í síma
519 4747 eða á heimasíðunni,
djireykjavik.is
Mavic Air, sem
tekur vídeó í 4K
upplausn.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . JA N ÚA R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
8
-9
1
2
0
1
E
D
8
-8
F
E
4
1
E
D
8
-8
E
A
8
1
E
D
8
-8
D
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K