Fréttablaðið - 27.01.2018, Síða 38
Ég hóf mitt tónlistarám við Allegro Suzuki tónlistarskóla og lærði í fyrstu á píanó. Það
hljóðfæri varð fyrir valinu því
bróðir minn nam píanóleik en ég
verð að viðurkenna að ég hafði
ekki mjög mikinn áhuga á því.
Þegar Guðmundur Hafsteinsson
trompetkennari kom í skólann og
kynnti það hljóðfæri fyrir okkur
nemendum fór ég strax heim og
sagðist vilja skipta frá píanói yfir
á trompet. Ég fann að það myndi
eiga betur við mig,“ segir Árni
Daníel Árnason.
Foreldrar hans voru ekki lengi
að láta það eftir honum og Árni
Daníel hefur nú stundað nám í
trompetleik hjá Guðmundi við
Tónskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar í átta ár.
Leggur ekki frá sér trompetið
Árni Daníel ásamt Guðmundi Óla Gunnarssyni, stjórnanda hljómsveitarinnar.
Sinfóníuhljóm-
sveit tónlistar-
skólanna hefur
æft tónleika-
dagskrána frá
áramótum.
Notar tímann vel
Árni Daníel er á öðru ári á náttúru-
fræðibraut við Menntaskólann í
Reykjavík og hefur því í nægu að
snúast. Þrátt fyrir annir í skólanum
gefur hann sér góðan tíma á hverjum
degi til að æfa sig á trompetið. „Ég
reyni að nota tímann vel. Mig langar
líka til að standa mig vel í skólanum
og vissulega er oft strembið að púsla
þessu öllu saman. Það hefur þó tek-
ist, enda skiptir máli að hafa áhuga á
því sem maður er að gera. Ég æfi mig
á trompetið í einn til einn og hálfan
tíma á dag. Það er ekki alltaf gaman
að vera einn heima að æfa sig en um
leið og ég kem á hljómsveitaræfingu
finn ég hvað þetta er gaman,“ segir
hann en undanfarnar þrjár vikur
Árni Daníel Árna-
son hefur spilað
á trompet frá níu
ára aldri. Hann
leikur einleik með
Sinfóníuhljóm-
sveit tónlistar-
skólanna í Lang-
holtskirkju í dag
klukkan 16.00.
hefur Sinfóníuhljómsveit tónlistar-
skólanna sótt árlegt námskeið í
hljómsveitarleik. Hljómsveitin er
skipuð tónlistarnemum úr tónlistar-
skólum á suðvesturhorni landsins
og fá framúrskarandi hljóðfæra-
leikarar tækifæri til að leika einleik
með hljómsveitinni. Í ár kemur það
í hlut Árna Daníels og hann er að
vonum spenntur fyrir tónleikunum
sem fara fram í Langholtskirkju í
dag klukkan 16 en þá leikur hljóm-
sveitin undir stjórn Guðmundar Óla
Gunnarssonar.
Finna rétta hljóðfærið
„Ég hef spilað með Sinfóníuhljóm-
sveit tónlistarskólanna í fjögur ár.
Auk þess hef ég spilað með Ung-
sveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands
og í gær fluttum við einmitt verk
á Myrkum músíkdögum í Hörpu.
Síðan hef ég líka verið í Skólahljóm-
sveit Austurbæjar og farið með
henni í þrígang til útlanda,“ upplýsir
Árni Daníel.
Ætlar þú að leggja trompetleik
fyrir þig í framtíðinni? „Það er stóra
spurningin. Ég hef ekki hugmynd
um það. Ég vil bara halda öllu opnu
og tek framhaldspróf í trompetleik
núna í vor. Þá sé ég kannski til hvað
ég geri. Ég útskrifast úr MR eftir eitt
og hálft ár og gæti líka hugsað mér
að fara í læknisfræði eða jafnvel
verkfræði.“
Hvaða ráð áttu fyrir ungt tónlistar-
fólk sem er að taka sín fyrstu skref í
hljóðfæraleik? „Finna rétta hljóð-
færið, eins og með mig og píanóið.
Ég skipti og núna get ég ekki lagt frá
mér trompetið.“
Viltu kaupa fasteign á Spáni?
M a s a I n t e r n a t i o n a l - m a s a i c e l a n d @ g m a i l . c o m - w w w. m a s a i n t e r n a t i o n a l . i s
Flogið er með WOW-air til Alicante þann 22. febrúar, nk. og heim aftur 25. febrúar.
Verð aðeins kr. 30.999
Innifalið er flug, hótel og uppihald, ásamt skoðunarferðum
með reynslumiklum fasteignaráðgjöfum MASA.
MASA International hefur starfað á fasteignamarkaði á Spáni frá árinu 1981
og hjálpað yfir 35.000 manns að finna sitt annað heimili í sólinni.
Hafðu samband við kynningarfulltrúa MASA International á Íslandi og bókaðu ferðina,
Jón Bjarni 896 1067 - Jónas 842 1520
MASA International býður þér í skoðunarferð til Costa Blanca á Spáni,
þar sem draumaeignina þína gæti verið að finna.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . JA N ÚA R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
8
-B
8
A
0
1
E
D
8
-B
7
6
4
1
E
D
8
-B
6
2
8
1
E
D
8
-B
4
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K