Fréttablaðið - 27.01.2018, Qupperneq 85
Fjölskyldudagskrá nýársins á Borgarbókasafninu hefst á notalegri sögustund í
skammdeginu. Þá ætlar Ingibjörg
Sveinsdóttir, eða Imma eins og
hún er kölluð, að segja söguna Of
margir álfar, eftir Margaret Read
Mac Donald.
Imma er bókmenntafræðingur
að mennt og hefur síðastliðinn
áratug unnið með börnum. Eitt
af því skemmtilegasta sem hún
gerir er að segja börnum sögur og
það hefur hún gert upp á hvern
dag. Sem sagnaþulur leggur Imma
áherslu á þátttöku áheyrenda og
leikinn í bókinni.
Leikur og lifandi frásögn Immu
hefst í Menningarhúsinu Grófinni
á morgun, sunnudaginn 28. janúar,
klukkan 15 til 16. Hægt er að skoða
veigamikla og fjölbreytta fjöl-
skyldudagskrá Borgarbókasafnsins
á heimasíðu og Facebook-síðu
safnsins.
Leikur og
lifandi frásögn
Samkvæmt nýrri sænskri rannsókn virðist svokallaður steinaldarmegrunarkúr bera
árangur. Sjötíu konur sem allar
voru eldri en 55 ára og höfðu verið
á breytingaskeiði tóku þátt. Þær
voru allar frískar en vildu léttast.
Helmingurinn var settur á stein-
aldarkúrinn en hinn borðaði venju-
lega norrænan heimilismat. Báðir
hóparnir léttust en sá sem borðaði
steinaldarmat missti fleiri kíló.
Rannsakendur segja að þær sem
voru á steinaldarkúrnum hafi jafn-
framt verið heilbrigðari, kólesteról
í blóði minnkaði talsvert og því
minni hætta á hjarta- og æðasjúk-
dómum.
Steinaldarkúrinn samanstóð af
fitulausu kjöti, fiski, eggjum, græn-
meti, ávöxtum, berjum, lárperum
og grænmetisolíu. Ekki mátti borða
mjólkurvörur og ekki nota salt eða
sykur í mat. Hópurinn fékk 40% fitu,
30% kolvetni og 30% prótín.
Norræni kúrinn samanstóð af
trefjaríkum mat, kjöti, fiski, græn-
meti, ávöxtum og mjólkurvörum.
15% innihéldu prótín, 30% fitu og
55% kolvetni.
Léttust á steinaldarkúr
Vatnaskil
Málþing Geðhjálpar um nýtt sjónarhorn í geðheilbrigðismálum
Þingsalir, Reykjavík Natura 1. febrúar 2018.
Fundarstjóri Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, sviðsstjóri sálfræðisviðs Háskólans í Reykjavík
13.00 – 13.15 Opnunarávarp
Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar.
13.15 – 14.00 Þörf breyttrar hugmyndafræði við stefnumótun og framkvæmd þjónustu
Dainius Puras, sérstakur skýrslugjafi Sameinuðu þjóðanna í geðheilbrigðismálum,
prófessor í barnageðlækningum og lýðgeðheilsu við háskólann í Vilnius.
14.00 – 14.45 Heildræn sýn á manneskjuna bætir andlega og líkamlega vellíðan
Peter Kinderman, prófessor í klínískri sálfræði við Liverpool-háskóla og
varaformaður Breska sálfræðingafélagsins.
14.45 – 15.00 Að passa ekki inni í kerfið
Jónína Sigurðardóttir.
15.00 – 15.15 Kaffi
15.15 – 16.00 Fyrirframgerð ákvarðantaka í geðheilbrigðisþjónustu: tækifæri og áskoranir
Fiona Morrissey, doktor í fyrirframgerðri ákvarðanatöku innan geðheilbrigðisþjónustunnar.
16.00 – 16.15 Saga af fyrirframgerðri ákvarðanatöku
Ágúst Kristján Steinarrsson.
16.15 – 16.45 Pallborðsumræður
Hrannar Jónsson, Dainius Puras, Peter Kinderman, Jónína Sigurðardóttir,
Fiona Morrissey og Ágúst Kristján Steinarrsson.
Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig á málþingið með því að senda tölvupóst með nafni
þátttakanda og nafni og kennitölu greiðanda í gegnum netfangið verkefnisstjori@gedhjalp.is.
Aðgangseyrir kr. 2.500, frítt fyrir félaga í Geðhjálp.
Í tilefni af fæðingardegi tón-skáldsins Wolfgangs Ama-deusar Mozart munu nemendur
Söngskólans í Reykjavík syngja
á árlegum Mozart-tónleikum á
Kjarvalsstöðum í dag. Mozart
fæddist 27. janúar árið 1756 og
hafa afmælistónleikar honum til
heiðurs verið haldnir undanfarin
ár á Kjarvalsstöðum í umsjón Lauf-
eyjar Sigurðardóttur fiðluleikara.
Í dag eru það nemendur úr Söng-
skólanum í Reykjavík sem koma
fram ásamt píanóleikaranum
Kristni Erni Kristinssyni.
Á efnisskránni eru aríur og sam-
söngsatriði úr óperum og mótett-
um eftir tónskáldið. Garðar Cortes
heldur stutt erindi milli atriða.
Mozart samdi fyrsta tónverk sitt
fimm ára og fyrstu sinfóníuna sjö
ára gamall. Eftir hann liggja rúm
sex hundruð verk af ýmsum toga
en hann lést árið 1791, aðeins 35
ára að aldri.
Tónleikarnir hefjast klukkan
18 og er aðgangur ókeypis meðan
húsrúm leyfir.
Nánari upplýsingar á listasafn-
reykjavikur.is.
Árlegir
afmælistónleikar
Steinaldarhópurinn léttist að meðaltali um níu kíló en hinn um sex.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 9 L AU G A R DAG U R 2 7 . JA N ÚA R 2 0 1 8
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
8
-A
4
E
0
1
E
D
8
-A
3
A
4
1
E
D
8
-A
2
6
8
1
E
D
8
-A
1
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K